Skessuhorn


Skessuhorn - 10.07.2019, Qupperneq 19

Skessuhorn - 10.07.2019, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 2019 19 Fjölmenni var á Ólafsvíkurvökunni sem fram fór um helgina í blíðskaparveðri og var margt í boði fyrir alla aldurshópa. Há- tíðin hófst á föstudaginn með Crossfit fyrir börnin og Hrafn jökulsson stóð fyrir skákkennslu. Dorgveiðikeppni var einn- ig í boði og þar á eftir var boðið upp á grillaðar pylsur. Fjör- inu var síðan haldið áfram í Sjómannagarðinum með lifandi tónlist í flutningi Lenu Örvarsdóttur og Trausta Leó Gunn- arssonar. Á laugardaginn náði svo hátíðin hámarki með fjölbreyttri dagskrá með golfmóti, skákmóti og var margt í boði á Þor- grímspalli þar sem meðal annars Alda Dís steig á stokk og flutti nokkur lög. Soni töframaður sýndi listir sínar, dans- hópurinn Pæjurnar dansaði fyrir gesti og herra Hnetusmjör skemmti auk þess sem Vargurinn Snorri Rafnsson kynnti sinn útbúnað og hunda sem hann notar í veiðimennsku. BMX hópurinn BMX bros sýndi listir sínar. Á laugardagskvöldinu mættust svo hverfin í bænum saman í Sjómannagarðinum í sínum litum og fluttu skemmtiatriði og þar fór gula hverfið með sigur af Hólmi, ásamt því að vera val- ið sem best skreytta hverfið. Tónlistarmaðurinn jón Sigurðs- son sá um brekkusöng ásamt því að Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson komu fram, en dagskránni lauk svo með stórdansleik í Klifi þar sem Stjórnin spilaði langt fram eftir nóttu. af BMX bros sýndi listir sínar. Fjölmenn Ólafsvíkurvaka Fjölmenni á Brekkusöng. Þessar ungu dömur tóku þátt í dorgveiðikeppninni og voru ánægðar með sinn feng. Snorri Rafnsson, öðru nafni Vargurinn, var með kynningu á því sem hann er búinn að vera að gera í sínu starfi sem veiðimaður. Börnin kunnu vel að meta blautboltann enda veður til þess að sprella úti. Pæjurnar sýndu dans. Söngkonan Alda Dís söng nokkur lög. Þessi ungi drengur lét sig ekki muna um að taka heljarstökk fram af bryggjunni og í sjóinn. Herra Hnetusmjör skemmti.Þessi unga dama var upptekin við að borða sinn banana.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.