Skessuhorn


Skessuhorn - 10.07.2019, Side 31

Skessuhorn - 10.07.2019, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 10. júLí 2019 31 Kári vann öruggan sigur á botnliði Tindastóls þegar liðin mættust í 10. umferð í öðrum flokki karla í Akra- neshöllinni á fimmtudagskvöldið. Er þetta þriðji sigur Káramanna það sem af er af tímabilinu og dýr- mæt stig í vegarnesti hjá þeim fé- lögum í botnbaráttunni, nú þegar líða fer á seinni hluta íslandsmóts- ins. Skagamenn byrjuðu leikinn af krafti og gáfu tóninn á 19. mín- útu þegar Guðfinnur Þór Leósson skoraði fyrsta mark leiksins og kom Kára í framsætið. Guðfinnur var svo aftur á ferðinni rétt undir lok fyrri hálfleiks þegar hann bætti við öðru marki á 41. mínútu. Skaga- menn voru alls ekki saddir fyrir hléið því Andri júlíusson bætti við þriðja markinu í uppbótartíma og kom Kára í 3-0 fyrir hálfleik. Gestirnir úr Skagafirði vöknuðu til lífsins í síðari hálfleik og hertu varnarlínu sína til muna. Ekki gekk þó hjá Tindastóli að skapa almenni- leg marktækifæri og voru Kára- menn allt í öllu. Það var svo á 76. mínútu sem heimamenn náðu að ryðjast í gegnum varnir gestanna þegar Hilmar Halldórsson bætti við fjórða marki Skagamanna. Tinda- stóll átti engin svör og því öruggur 4-0 sigur Kára staðreynd. Með sigrinum bætir Kári við sig þremur dýrmætum stigum en situr þó ennþá í næstneðsta sæti í deild- inni. Næsti leikur Kára verður á Selfossi. glh Snæfellingar gerðu sér lítið fyrir á föstudaginn og sigruðu íH með sex mörkum gegn engu þegar liðin mættust á Stykkishólmsvelli í átt- undu umferð í B-riðli fjórðu deild- ar. Heimamenn gáfu tóninn strax á fimmtu mínútu þegar Matteo Tuta kom Hólmurum yfir. Carles Mart- inez Liberato bætti við öðru mark- inu á 29. mínútu og Marius Ganu- sauskas því þriðja á 45. mínútu. Snæfell leiddi með þremur mörkum gegn engu þegar gengið var til hálf- leiks. Heimamenn gáfu ekki tommu eftir í síðari hálfleik en þó náðu gestirnir eitthvað að hægja á þeim. Það var ekki fyrr en á 71. mínútu að Sigurjón Kristinsson skoraði fjórða mark Hólmara og sex mínútum síð- ar bætti Milos janicijevic fimmta markinu við. Ekkert gekk upp hjá íH sem skoraði sjálfsmark á 87. mínútu og aðstoðuðu heimamenn í stöðuna 6-0 sem jafnframt urðu lokatölur í leiknum. Er þetta fjórði sigur Snæfells í röð og er liðið taplaust á íslandsmótinu eftir átta umferðir. Hólmarar fá ann- an heimaleik næsta föstudag þegar KB-menn koma í heimsókn. Leik- urinn hefst klukkan 20:00. glh Víkingur Ó. sigraði Aftureldingu 2-0 í tíundu umferð fyrstu deildar karla á föstudag. Leikið var á Ólafs- víkurvelli. Mosfellingar byrjuðu leikinn ákafir og voru meira með boltann á upphafsmínútunum. Ólsarar voru þó hvergi að gefa eftir og mættu gestunum á pari í baráttunni. Hvorugt liðið náði að skila boltan- um í netið og voru þau jöfn þegar flautað var til hálfleiks. í síðari hálfleik byrjuðu heima- menn örlítið betur en gestirnir og voru sprækir. Eftir fimm mínútna spil átti Víkingur skyndisókn sem endaði með dúndurskoti í þver- slánna. Var þetta eins og forréttur fyrir áhorfendur því Víkingur skor- aði fjórum mínútum síðar og komst yfir á 54. mínútu. Sallieu Capay Tarawallie átti góða stoðsendingu á Harley Willard sem skilaði bolt- anum í netið. Voru heimamenn allt í öllu eft- ir markið og þurfti Afturelding að hafa sig alla við að verjast. Annað mark Víkings skoraði svo Sallieu á 62. mínútu þegar hann fylgdi bolt- anum ákveðinn eftir, í mark gest- anna. Afturelding átti engin svör og náðu ekki að skapa sér almenni- leg marktækifæri það sem eftir lifði leik. Lokatölur voru því 2-0 Vík- ingi í vil. Með sigrinum stökkva Ólsarar úr sjöunda sæti í það fjórða og eru nú með 17 stig eftir tíu umferðir, jafn mörg stiga og Fram í 5. sæti. Næsti leikur Víking Ó. verð- ur gegn Njarðvík á Reykjanesinu á fimmtudag og hefst leikurinn klukkan 19:15. glh Víkingur Ó. færir sig upp um þrjú sæti Víkingur Ó. nældi sér í þrjú stig í 10. umferð. Ljósm. af. Snæfell heldur áfram á sigurbrautinni Káramenn fagna hér einu af mörkunum fjórum. Ljósm. gbh. Kári fékk dýrmæt stig

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.