Skessuhorn - 21.08.2019, Blaðsíða 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 22. árg. 21. ágúst 2019 - kr. 750 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Það var líf og fjör á bæjarhátíðinni Dönskum dögum sem haldin var í Stykkishólmi í 25. skipti um liðna helgi. Fjallað er um hátíðina í máli og myndum í Skessuhorni á bls.
26. Þessar líflegu og litríku stúlkur tóku virkan þátt í hátíðarhöldunum, málaðar í fánalitum frændþjóðanna Danmerkur og Íslands. Ljósm. sá.
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið hefur birt til umsagnar
í samráðsgátt stjórnvalda tillögu til
þingsályktunar um stefnumótandi
áætlun ríkisins í málefnum sveit-
arfélaga fyrir árin 2019-2033. Er
þetta í fyrsta sinn sem slík heild-
stæð stefna á vegum ríkisins er
mótuð fyrir sveitarstjórnarstig-
ið. Þar er meðal annars lagt til að
stefnt verði að fækkun sveitarfélaga
með því að setja mörk um að lág-
marki 250 búi í hverju sveitarfélagi
við kosningarnar 2022. Þrjú sveit-
arfélög á Vesturlandi eru nú með
færri íbúa, þ.e. Skorradalshreppur,
Helgafellssveit og Eyja- og Mikla-
holtshreppur. Þá er að auki lagt
til að þúsund íbúar verði að lág-
marki í hverju sveitarfélagi í kosn-
ingum 2026. Að óbreyttu bætast þá
við sveitarfélögin Hvalfjarðarsveit,
Dalabyggð og Grundarfjarðarbær
sem öll eru nú með innan við þús-
und íbúa. Verði tillagan samþykkt
mun sveitarfélögum á Vesturlandi
því fækka um a.m.k. sex á næstu sjö
árum og verða því hugsanlega fjög-
ur árið 2026. Sjá nánar á bls. 12.
Íbúar í Grundarfirði voru 870 um mitt þetta ár. Ef tillagan verður samþykkt mun
íbúafjöldi þar verða að fara yfir þúsund á næstu sjö árum svo ekki þurfi að koma
til sameining við önnur sveitarfélög.
Stefnt að fækkun sveitarfélaga
Fjallað um upphaf
skólaársins
Í Skessuhorni í dag er púlsinn tek-
inn á skólum í landshlutanum. Rætt
er við forsvarsmenn grunnskóla,
framhaldsskóla og háskóla á Vest-
urlandi. Samhliða því að grunn-
skólar hefjast bætast mörg hundr-
uð ungir einstaklingar í umferðina.
Ökumenn eru sérstaklega hvattir til
að taka tillit til þeirra og aka var-
lega.
Sjá bls. 19-23.
Alltaf gott að
leggja sig eftir
góða máltíð
á Landnámssetri
sími 437-1600
Borðapantanir í síma
437-1600 eða
á landnam@landnam.is
Verið ávallt velkomin,
Starfsfólk Landnámsseturs