Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Side 2

Skessuhorn - 21.08.2019, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 20192 Gott er að minna lesendur Skessu- horns á að fara reglulega út í nátt- úruna. Hvort sem það er göngutúr, fjallganga eða ferð í berjamó þá hafa allir gott af því að fá sér ferskt loft í lungun og finna gjóluna leika um andlitið, sérstaklega þeir les- endur sem verja stórum hluta af deginum inni. Á morgun fimmtudag má búast við bjartviðri um landið vestanvert. Hiti 8 til 17 stig. Á föstudag verður að mestu skýjað og víða lítilshátt- ar rigning. Á laugardag breytist hiti lítið, hæg suðlæg eða breytileg átt verður og stöku skúrir. Á sunnudag er spáð skýjuðu með köflum með dálítilli rigningu sunnan- og vest- anlands. Á mánudag er útlit fyr- ir suðvestanátt og rigningu með köflum um vestanvert landið. Í liðinni viku var spurt á vef Skessu- horns. „Hvaða haustmat hlakkar þú mest til að borða?“ 30% svöruðu „nýjar kartöflur og grænmeti.“ 22% sögðu „kjötsúpa“ og 19% kusu slátur. Því næst kusu 11% „allan ömmumat“ og 9% sögðu „svið“. Valmöguleikarnir, „Aðrir valkostir“, „fiskur“ og „súpa/ grautur“ fengu allir undir 5% at- kvæða hver. 448 tóku þátt í könn- uninni. Í næstu viku er spurt: Hverjir eru verstu ókostir manneskjunnar? Nemendur, kennarar, stuðnings- fulltrúar og annað starfsfólks skól- anna, sem koma með einum eða öðrum hætti að skólastarfi í lands- hlutanum, eru Vestlendingar vik- unnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Flugslys í Svefneyjum REYKHÓLAHR: Flugslys varð í Svefneyjum á Breiða- firði síðdegis síðastliðinn fimmtudag. Flugvél í flug- taki fékk á sig vindhviðu undir vænginn með þeim afleiðingum að flugmaður- inn missti stjórn á vélinni. Vélin fór fram af flugbraut- inni og lenti ofan í fjöru þar sem hún steyptist fram fyrir sig og endaði á hvolfi. Flug- maður og farþegi reyndust ómeiddir og komust út úr vélinni af sjálfsdáðum. Þyrla Landhelgisgæslu Íslands var send út í Svefneyjar ásamt fulltrúa frá rannsóknanefnd samgönguslysa og lögreglu- mönnum frá Stykkishólmi. Mennirnir voru síðan fluttir til baka upp á land með þyrl- unni. -kgk Innlegg hækkar um 10% milli ára LANDIÐ: Frá því var greint í síðasta Skessuhorni að veg- ið landsmeðaltal sex af sjö af- urðastöðvum sem taka dilka til slátrunar í haust hafi ver- ið 429 krónur í síðustu viku. Nú hefur Fjallalamb gef- ið út sitt verð, síðast afurða- stöðva, en auk þess tilkynnti Norðlenska um hækkun á áður birtri verðskrá sinni og hækkar reiknað meðalverð fyrirtækisins úr 432 kr/kg í 445 kr/kg. Vegið landsmeð- altal er nú 444 kr/kg, en var 401 króna í síðustu sláturtíð. Hækkunin er því um 10% milli ára. Verð fyrir dilkakjöt er lægst hjá Fjallalambi 432 kr/kg en hæst er það 455 kr/ kg kíló hjá Sláturfélagi Suð- urlands. -mm FJARNÁM Skráning á haustönn fer fram dagana 22. ágúst til 5. september á slóðinni www.fa.is/fjarnam 3 3 l . Lögreglan á Vesturlandi tók nýja lögreglubifreið í notkun í síð- ustu viku. Um er að ræða Landro- ver Discovery, fullbúinn lögreglu- bíl sem er auk þess sérútbúinn fyr- ir umferðareftirlit. „á þessum bíl verður fyrst og fremst haft eftirlit með atvinnutækjum sem eru á ferð- inni, en lögregla hefur eftirlit með farmi flutningabíla, fylgist með því að hvíldartímaákvæðum sé fylgt og fleira slíkt, auk þess að hemla- prófa og vigta atvinnutæki,“ seg- ir ásmundur Kr. ásmundsson að- stoðaryfirlögregluþjónn í samtali Síðastliðinn sunnudag mætti hóp- ur fólks í hlíðar Oks í ofanverð- um Borgarfirði. Þar var skildi með áletrun komið fyrir á stein til að minnast meints andláts jök- uls á Okinu. Meðal þátttakenda var Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra, Guðmundur Ingi Guð- brandsson umhverfisráðherra og fleiri. Forsætisráðherra hélt ræðu við rætur fjallsins og sagði að af- leiðingar hamfarahlýnunar blöstu nú við um heim allan. Hún biðl- aði til heimsbyggðarinnar um að grípa til róttækra aðgerða. Sagði hún hvarf jökuls á Oki vera birt- ingarmynd hnattrænnar hlýnun- ar og viðvörun um að loftslagsvá- in er ekki í fjarlægri framtíð heldur hér og nú. Ok er fyrsti nafnkunni jökullinn á Íslandi til að missa tit- il sinn en á næstu 200 árum er tal- ið að allir jöklar landsins fari sömu leið. Forsætisráðherra undirstrikaði í ræðu sinni þá afstöðu Íslands að berjast þyrfti fyrir loftslagsréttlæti, enda væru mannréttindi, félagslegt réttlæti og jafnrétti kynjanna sam- tengd loftslagsmálum og allar að- gerðir gegn loftslagsbreytingum yrðu að taka mið af því. Auk for- sætisráðherra hélt Mary Robinson, fyrrum forseti Írlands og baráttu- kona fyrir loftslagsréttlæti, ræðu við rætur fjallsins. Að því búnu var haldið upp á fjallið þar sem minn- isvarðanum var komið fyrir. mm/ Ljósm. forsætisráðuneytið. Nýr lögreglubíll sérútbúinn til umferðareftirlits við Skessuhorn. „Hann var sérval- inn í þetta verkefni af því hann hef- ur dráttargetu upp á 3,5 tonn og getur því dregið þungan hemla- prófunarvagn. Auk þess er í hon- um vogir til að vigta atvinnutæki,“ bætir hann við. „Nýja bílinn höfum við á leigu og er rekstur hans tölu- vert hagkvæmari en verið hefur, en hann leysir af gamla Ford transit sendiferðabifreið sem notuð var til að sinna sömu verkefnum. Sá bíll var kominn til ára sinna,“ segir ás- mundur. Þrír nýir bílar á árinu ásmundur segir að töluverðar breytingar til batnaðar séu fram- undan í bílamálum Lögreglunn- ar á Vesturlandi á næstu misser- um. Auk nýja umferðareftirlitsbíls- ins hefur Lögreglan á Vesturlandi tekið þrjá aðra nýja bíla í notk- un frá áramótum. Einn þeirra er á Akranesi, annar í Borgarnesi og sá þriðji á Snæfellsnesi. „Við vorum í raun að bregðast við slæmu ástandi og þurftum að endurnýja þrjá bíla strax, þar af einn sem var ekinn 500 þúsund kílómetra. Einn bíllinn sem við notum í dag er frá árinu 2008, eða ellefu ára gamall og annar er sjö ára. Lögreglubíla þarf helst að end- urnýja á hámark fimm ára fresti,“ segir hann, en allt í allt hefur emb- ættið 15 bíla til umráða, bæði merktar og ómerktar lögreglubif- reiðar. „Þrír lögreglubílar hafa ver- ið endurnýjaðir frá áramótum, auk nýja umferðareftirlitsbílsins, en á síðustu þremur árum þar á undan höfðum við aðeins fengið einn nýj- an bíl og ástand flotans ekki gott. Þessir bílar leystu af hólmi mjög gamla bíla, þannig að um nauðsyn- lega endurnýjun er að ræða. Ætl- un okkar er að fylgja þessu eftir og halda áfram að endurnýja bílaflot- ann,“ segir ásmundur. kgk Nýi lögreglubíllinn er af gerðinni Landrover Discovery og er sérútbúinn til um- ferðareftirlits. Ljósm. Lögreglan á Vesturlandi. Táknræn athöfn til að minna á hlýnun jarðar

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.