Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Síða 20

Skessuhorn - 21.08.2019, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201920 SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS Nú líður að hausti og fjölskyldur í landshlutanum að komast í fyrri rútínu eftir sumarleyfi og ferða- lög. Grunnskólar á Vesturlandi eru nú margir hverjir að komast á fullt skrið og eru skólastjórnend- ur spenntir fyrir komandi vetri. Vel hefur gengið að manna stöður og að vanda eru fjölmörg og áhugaverð verkefni á döfinni í starfi grunn- skólanna í landshlutanum. Skessu- horn sló á þráðinn til skólastjóranna á Vesturlandi og ræddi stuttlega við þá um komandi skólaár. Grundaskóli á Akranesi Setningarathöfn Grundaskóla á Akranesi verður á morgun, fimmtu- daginn 22. ágúst og hefst kennsla strax degi síðar eða á föstudag- inn. Við upphaf skólaárs eru nem- endur í Grundaskóla 640 talsins og kveðst Flosi Einarsson, aðstoðar- skólastjóri Grundaskóla, vera til- búinn fyrir veturinn og að búið sé að manna allar stöður í skólan- um. „Við væntum þess að komandi skólaár verði farsælt eins og undan- farin ár. Við höfum trú á nemend- um okkar og starfsfólki og stefnum alltaf að því að gera betur en áður,“ segir aðstoðarskólastjórinn. Margt spennandi er framund- an í Grundaskóla á nýju skólaári. Búið er að festa kaup á fullkomn- um tækjum til útvarpsútsendinga og má búast við að útvarp Grundó verði komið í loftið áður en langt um líður. „Með útvarpinu viljum við þjálfa nemendur enn frekar í framsögn, lestri og munnlegri tján- ingu með því að búa til fræðandi og skemmtilega útvarpsþætti sem nemendur taka upp eða senda beint út í gegnum heimasíðu skólans. Einnig ætlum við að auka við úti- kennslu á skólaárinu,“ segir Flosi en fjölbreytilegt þróunarstarf á sér stað í Grundaskóla. „Við hlökkum mikið til að hitta nemendur okkar, hressa og káta, eftir frábært sumar,“ segir hann að endingu. Brekkubæjarskóli á Akranesi Brekkubæjarskóli á Akranesi verður settur á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst, og hefst hefðbundin kennsla samkvæmt stundaskrá föstudag- inn 23. ágúst. Um 470 nemendur eru skráðir í Brekkubæjarskóla en undanfarin ár hafa verið talsverð- ar hreyfingar á fyrstu dögum skól- ans og segir Arnbjörg Stefánsdótt- ir skólastjóri að þessi tala eigi eft- ir að skýrast frekar á næstu dögum. Lögð er mikil áhersla á að eiga gott samstarf við skólasamfélagið; nem- endur, foreldra og aðra. „Við vilj- um einnig að allir fái að njóta sín á eigin forsendum og taki framförum í námi,“ svarar skólastjórinn, að- spurð um væntingar til skólaársins. Miklar breytingar hafa átt sér stað á húsnæði skólans sem munu bæta aðstöðu starfsmanna og nem- enda talsvert. „Við bíðum spennt eftir að framkvæmdum ljúki. Einn- ig hlökkum við til að fá íþróttahús- ið og alla aðstöðuna þar í notkun aftur. Mest hlökkum við þó til að skólinn fyllist af börnum og að fá líf í skólann aftur eftir sumarið,“ segir Arnbjörg full tilhlökkunar. Vel hefur gengið að manna stöð- ur fyrir komandi vetur og segir skólastjórinn að það sé fullt hús af vel menntuðu fólki með fjölbreytta fagþekkingu. „Allir kennarar eru með leyfisbréf til að kenna á grunn- skólastigi.“ Brekkubæjarskóli nýtir einnig þau tækifæri sem felast í tækninni og færir hana sífellt meira inn í kennsluaðferðir með hverju árinu. „Undanfarin ár höfum við verið að þróa teymiskennslu í skólanum sem breytir heilmiklu í öllu starfinu og fengum meðal annars þróunarstyrk til að vinna áfram að þeirri innleið- ingu,“ útskýrir Arnbjörg, sem bætir við að lokum. „ábyrgð okkar á eig- in heilsu og álagsþáttum er okkur frekar hugleikin þessi misserin og ætlum við að leggja áherslu á það í símenntun starfsmanna okkar í vetur.“ Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit Nú fer allt að fara á fullt í Heiðar- skóla í Hvalfjarðarsveit og var skól- inn settur í dag. Stutt athöfn var í sal skólans og fengu nemendur að hitta umsjónarkennara í heima- stofum ásamt því að fá stundatöfl- ur sínar afhentar fyrir veturinn. Að athöfninni lokinni var nemend- um, foreldrum og starfsfólki boð- ið að þiggja kaffiveitingar. 76 nem- endur eru skráðir í Heiðarskóla og eru miklar væntingar gerðar til um- hverfismenntar. „Við viljum efla okkur enn frekar í umhverfismennt með því að til dæmis draga úr neyslu og plastnotkun. Einnig leggjum við ríka áherslu á árangursríkt samstarf við foreldra og forráðamenn með það að markmiði að hver og einn nemandi og starfsmaður nái ár- angri, líði vel í samvinnu og í skóla- samfélaginu í Heiðarskóla, læri og þroskist og verði besta útgáfan af sjálfum sér meðvitaður um að í líf- inu skiptast á skin og skúrir,“ seg- ir Sigríður Lára Guðmundsdóttir, skólastjóri Heiðarskóla. Að sögn skólastjórans eru stöður nánast fullmannaðar en vantar þó enn stuðningsfulltrúa og karlkyns starfsmann í íþróttahúsið. Heiðarskóli hefur nú í einhver ár verið með námsleiðir í boði í gegn- um spjaldtölvur og er stefnan að halda því áfram. „Við erum stöðugt að reyna að bæta okkur í að vinna út frá áhugasviði hvers og eins. á síðasta skólaári buðum við upp á áhugasviðsval í 5. – 10. bekk. Við ætlum að halda því áfram og reyna að mæta enn betur þörfum barna um nám út frá áhugasviði. Við ætl- um líka að fjölga verkefnum inn- an námshópa með áherslu á sam- þættingu námsgreina í spennandi þemaverkefnum,“ útskýrir Sigríður Lára og bætir við að lokum: „Við erum full eftirvæntingar til skóla- ársins og vonum að allir í skólasam- félaginu, börn, starfsmenn, foreld- ar og forráðamenn, séu tilbúnir að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni með okkur sem er að mennta börn- in með hagsmuni og velferð þeirra að leiðarljósi.“ Grunnskóli Borgarfjarðar Setningarathöfn Grunnskóla Borgarfjarðar fer fram á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst, og hefst svo skólinn samkvæmt stunda- skrá á föstudag. 173 nemendur eru skráðir í Grunnskóla Borgarfjarð- ar í ár sem er með þrjár kennslu- stöðvar dreifðar um Borgarfjörð: á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. 52 nemendur eru í 1.-10 bekk á Varmalandi, 82 nem- endur eru í 1.-10. bekk á Klepp- járnsreykjum og 39 nemendur eru í 1.-5. bekk á Hvanneyri. Hald- ið verður uppteknum hætti í vetur við að bæta skólabrag og lögð verð- ur sérstök áhersla á teymiskennslu sem hefur verið þróunarverkefni hjá Borgarbyggð síðustu ár. Lögð verður áhersla á vellíðan nemenda, lestur og lesskilning ásamt því að auka fjölbreytni í allri vinnu nem- enda. Að sögn Helgu Jensínu Svavars- dóttur skólastjóra hefur gengið vel að manna stöður fyrir veturinn og segir Helga skólann vera fullskip- aðan nú þegar skólastarf er að hefj- ast. „Við erum spennt fyrir komandi vetri þar sem framundan eru breyt- ingar á hluta skólahúsnæðis grunn- skólans ásamt því að kennarar eru að koma fílefldir eftir góða endur- menntun í byrjun skólaársins,“ seg- ir Helga Jensína að endingu. Grunnskólinn í Borgarnesi Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað á húsnæði Grunnskóla Borg- arness og hafa umtalsverðar breyt- ingar verið gerðar á elsta hluta skól- ans. Nú er mikið kapp lagt á að gera allt klárt fyrir veturinn, en að sögn Júlíu Guðjónsdóttur, skólastjóra Grunnskóla Borgarness, þá þurfti að fresta skólasetningu um örfáa daga þar sem enn er eitthvað óklár- að. Verður því skólinn settur mánu- daginn 26. ágúst næstkomandi og munu um það bil 290 nemendur hefja skólaárið samkvæmt stunda- skrá degi síðar. „Þetta er búin að vera ansi brött byrjun hjá okkur og í mörg horn að líta áður en skólastarf getur farið á fullt en enn á eftir að finna samastað fyrir unglingastig- ið. Starfsfólkið hefur verið ótrúlega jákvætt og lausnamiðað í öllu um- stanginu sem fylgir framkvæmd- unum,“ segir skólastjórinn þakklát- ur fyrir starfshópinn sinn. Vel hef- ur gengið að fylla stöður fyrir vet- urinn og eru átta nýir að bætast við starfsmannahóp skólans. Nýja viðbyggingin verður tekin í gagnið 1. október. Þar verða list- og verkgreinar með sínar vinnustofur ásamt því að öll kennsla á yngsta stigi fer fram á efri hæð byggingar- innar. Í fyrsta skipti í sögu skólans verður mötuneyti inni í skólanum og lýsir Júlía yfir mikilli tilhlökk- un að hafa góðan sal til afnota fyrir ýmis fjölbreytt og skemmtileg til- efni. Fram að því munu Kræsingar ehf. sjá um að næra nemendur og starfsfólk. „Það verður æðislegt að fá mötuneyti í skólann. Þetta eru virkilega spennandi tímar hjá okk- ur með nýju viðbygginguna sem býður upp á allskonar skemmtileg tækifæri sem voru ekki í boði áður. Hlutirnir verða á pínu rúi og stúi í fyrstu en með tímanum kemst allt saman í gott jafnvægi,“ útskýrir Júlía sem er spennt fyrir vetrinum framundan. Auðarskóli í Búðardal Skólasetning Auðarskóla fer fram á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst í Dalabúð. 89 nemendur hefja svo Grunnskólastarf að hefjast á Vesturlandi Ungir Grundfirðingar á leið í skólann. Krakkar úr Heiðarskóla kæla sig við lækinn á lóð skólans.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.