Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Side 22

Skessuhorn - 21.08.2019, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201922 SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS Kennsla hófst samkvæmt stunda- skrá í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í gær, þriðjudaginn 20. ágúst og segist Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari vera full tilhlökkun- ar til skólaársins. „Við erum spennt að byrja og höfum miklar vænting- ar til starfsins í vetur. Allar stöð- ur skólans eru skipaðar af áhuga- sömu fólki,“ segir skólameistarinn. Nýnemadagur var síðasta föstudag þar sem nýnemar komu og fengu kynningu á helstu þáttum skóla- starfsins. 200 nemendur eru skráð- ir í nám við Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga á haustönn þetta árið. Þar af eru 150 staðnemar og af þeim eru 50 nýnemar sem eru að hefja nám að loknum grunnskóla. Um 50 nemendur eru í fjarnámi og í framhaldsdeild FSN á Patreksfirði eru um 20 nemendur sem koma í Grundarfjörð þrisvar á önn en er annars kennt frá Grundarfirði með fjarnámskennslusniði. Nýjungar við skólann „Við höfum fjárfest í nýjum gagn- virkum skjá sem við höldum að muni gera kennsluna fjölbreyttari og í takt við kennslufræði skólans. Þessi skjár er líka góð viðbót við kennslu fjarnema og nemenda okk- ar á Patreksfirði. Við keyptum tvær fjærverur á síðustu önn og þær eru mjög góð viðbót við þá kennslu- hætti sem hér eru notaðir,“ útskýr- ir skólameistarinn. Örlitlar breyt- ingar hafa orðið á starfsmanna- hópi fjölbrautaskólans. tveir nýir starfsmenn bætast við mannskap- inn og nokkrir eru ýmist að koma úr fæðingarorlofi eða eru á leið- inni í fæðingarorlof að sögn Hrafn- hildar. „Við erum mjög spennt að byrja og hitta nemendur okkar eft- ir sumarfríið og við bindum vonir við að skólastarf í Fjölbrautaskóla Snæfellinga verði farsælt skólaárið 2019-2020,“ segir hún að endingu. glh Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akra- nesi var settur föstudaginn 16. ágúst og hófst kennsla samkvæmt stunda- skrá á mánudaginn. Í upphafi haust- annar eru nemendur skólans 488 talsins að sögn skólameistarans, ágústu Elínar Ingþórsdóttur. Þar af eru 71 í námi með vinnu. Ný- nemar sem koma beint úr grunn- skóla eru 102 talsins. Mest aðsókn er á bóknámsbrautir eins og verið hefur og flestir þar sem innritast á náttúrufræðabraut. Rafvirkjanámið er vinsælast í iðnnáminu hjá dag- skólanemendum og hefur Berlín- aráfanginn í þýsku verið eftirsóttur. Aðrir valáfangar í haust, heimspeki og fíkn- og forvarnasálfræði, voru einnig vinsælir í vali nemenda. Kennsluaðferðir og aukin vitund Skólameistarinn segir miklar vænt- ingar gerðar til nýs skólaárs. „Við viljum að FVA verði í forystu varð- andi þróun í upplýsingatækni, ár- angursríkum kennsluháttum og gæðamálum ásamt því að efla skóla- brag og skólamenningu FVA, skapa nemendum og starfsfólki góða vinnuaðstöðu og aðlaðandi um- hverfi og stuðla að velferð þeirra í skólanum,“ segir ágústa og bæt- ir við: „til að mæta hraðri þróun tækninnar verður að tryggja kenn- urum þjálfun, ráðgjöf og stuðning við að tileinka sér nýjungar í hug- búnaði og tölvutækni, meðal ann- ars með námskeiðum, vinnustofum og þjónustuveri, auk rafræns náms- stjórnunarkerfis fyrir nemendur og kennara þar sem allar upplýsingar eru aðgengilegar.“ áhersla verður lögð á aukna vit- und nemenda FVA um umhverfis- og jafnréttismál, ásamt verkefnum eins og lýðræði í skólastarfi, virku nýsköpunarstarfi og samstarfi í fjölþjóðlegum verkefnum. Hvorki fleiri né færri en þrjú erlend sam- starfsverkefni eru að fara í gang við FVA, tvö Nordplus verkefni og eitt Erasmus verkefni. Nordplusverk- efnið Education Lighthouse snýr að samanburði á menntunarkröf- um og tækifærum nemenda í þrem- ur löndum, Íslandi, Finnlandi og Litháen og verkefnið Nordic nat- ure connection - Promoting health and wellbeing at school snýr bæði að heilsueflingu og náttúru eins og hún birtist í listum. Erasmusverk- efnið Schools for a Green Future varðar umhverfismál. Starfsmannavelta og framkvæmdir Nokkrar breytingar hafa orðið inn- an starfsmannahópsins frá því á síð- ustu önn. átta starfsmenn hafa látið af störfum, meðal annars vegna ald- urs og tímabundinni ráðninga. tíu nýir starfsmenn hefja störf á önn- inni, nokkrir þeirra eru ráðnir í af- leysingar vegna forfalla eða náms- leyfa. Eru þetta kennarar í tréiðn- greinum, stærðfræði, íslensku, raungreinum, dönsku og á starfs- braut, ásamt umsjónarmanni hús- næðis og innkaupastjóra. tveir kennarar koma aftur til starfa eftir leyfi og fjórir verða í leyfi á skóla- árinu. Í sumar hafa ýmsar framkvæmdir verið í gangi við skólann. Skipt hef- ur verið um glugga og klæðningar í rafiðnaðardeild og einnig er ver- ið að setja upp hjólaskýli á tveimur stöðum við skólann. „Bætt aðstaða hjólreiðafólks tengist heilsustefnu skólans og hvetur nemendur og starfsfólk til að ferðast um á reið- hjólum,“ segir ágústa. Leiðandi afl í mótun náms Akraneskaupstaður hefur lýst yfir vilja til að Akranes verði tilrauna- sveitarfélag í rekstri framhaldsskóla frá 2020, með það að markmiði að efla menntun, frístundastarf og for- varnir. Hafa fulltrúar Akraneskaup- staðar kynnt sínar hugmyndir fyrir starfsfólki FVA. Í þessu sambandi hefur skólameistari lagt áherslu á að um pólitíska ákvörðun væri að ræða. „Ef það yrði niðurstaða og ákvörðun stjórnvalda að Akranes verði tilraunasveitarfélag í rekstri framhaldsskóla þá er ég þess fullviss að starfsfólk skólans myndi mæta því verkefni af metnaði og heilind- um,“ segir skólameistarinn. „FVA er öllum opinn og leggur áherslu á að þjóna íbúum á Vesturlandi og víðar. Hann hefur ákveðnar skyld- ur við sitt nærsamfélag og leitast við að bjóða íbúum þess eins fjölbreytt- ar leiðir til menntunar og mögulegt er. Námsframboðið er fjölbreytt sem mætir misjöfnum þörfum sam- félagsins og ættu flestir að finna nám við sitt hæfi. Rekstur FVA hef- ur gengið það vel síðastliðin ár að skólinn á að geta verið leiðandi afl í mótun náms á nútímalegan hátt, þar sem boðið er upp á vandað nám með áherslu á nýstárlega kennslu- hætti og fyrsta flokks aðstöðu,“ seg- ir ágústa að lokum. glh Skólastarf í Menntaskóla Borgar- fjarðar hófst síðasta föstudag þeg- ar nýnemar mættu í skólann til að fá stundatöflur sínar afhentar ásamt öðrum gögnum. Dagurinn hófst með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks en eldri nem- endur gátu nálgast sínar stundatöfl- ur á vefnum. Kennsla hófst svo sam- kvæmt stundaskrá á mánudaginn. Um 120 nemendur verða við nám í skólanum á haustönn en nýnemar eru 43 talsins. 95% af heildarfjölda nemenda eru í staðnámi. Væntingar til skólaársins „Okkar helstu væntingar eru að halda áfram að efla þann góða skóla- brag sem ríkir við þennan skóla. Við MB starfar þéttur og góður hópur og nemendum og starfsfólki líður vel í skólanum og vinnunni. Við erum fá- mennur skóli og sinnum persónu- legri þjónustu við nemendur mjög vel og það á bæði við um nemend- ur í staðnámi og fjarnámi. Þá vilj- um við eiga gott samstarf við okkar nærsamfélag og samstarf við Hug- heima, sem á marga góða bakhjarla í atvinnulífinu á Vesturlandi, er mik- ilvægur þáttur í því samhengi. Unn- ið er að hugmyndum varðandi sam- starf og komu Hugheima í ákveðinni mynd inn í skólann. Þá höfum við tekið þátt í Evrópuverkefnum þar sem nemendur hafa fengið tækifæri á að heimsækja önnur lönd en rétt í þessu fengum við 30 þúsund evra styrk fyrir tveggja ára samstarfs- verkefni ásamt Finnlandi, tyrk- landi, Póllandi og Rúmeníu. Það eru mikil tækifæri fólgin í því að fara í námsferðir erlendis, bjóða heim og kynnast fleiri heimshornum og mál- efnum,“ segir Guðrún Björg Aðal- steinsdóttir, skólameistari Mennta- skóla Borgarfjarðar. Stefna á að flagga Græn- fánanum Einhverjar breytingar er á starfslið- inu í menntaskólanum fyrir kom- andi skólaár. Nýr kennari í upplýs- ingatækni tekur til starfa en annars er kennarahópurinn óbreyttur. Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari er komin aftur til starfa úr námsleyfi. Þá hefur Guðrún Björg skólameist- ari MB sagt upp störfum og von er á nýjum skólameistara þegar líður á veturinn. Skólahúsnæði skólans en nokkuð nýlegt og þarfnast lítils viðhalds en stefnt er að því að bæta nemendarýmin og búa til svokallað kósý-rými fyrir nemendur. Engin ein námsgrein er vinsælli en önnur í skólanum en flestir nem- endur eru í íslensku og ensku auk þess sem útivistaráfangi sem skól- inn fór af stað með í fyrra í vali hefur verið vinsæll. „Við erum að fara af stað með áfanga í umhverfisstjórn- un í samvinnu við Landvernd en áfanginn er liður í undirbúningi til að flagga Grænfánanum. útivistará- fangar og afþreyingarsálfræði eru áfangar sem byrjað var með í fyrra og nutu mikilla vinsælda og verða aftur í boði nú í haust,“ segir Guð- rún Björg. Spennt fyrir vetrinum Við Menntaskóla Borgarfjarðar starfar þéttur hópi kennara og ann- ars starfsfólk sem brennur í skinn- inu að efla skólann og þróa áfram, að sögn Guðrúnar Bjargar. „Það eru nokkrar hugmyndir í gangi og erum við þar að líta mikið til tæknivæðing- ar og að láta fjórðu iðnbyltinguna ekki framhjá okkur fara. Fyrirhug- að samstarf við Hugheima er enn á teikniborðinu og við erum mjög spennt að taka á móti nýnemum sem og eldri nemendum og eiga gott og náið samstarf,“ segir skólameistar- inn að endingu. glh Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi: Mikilvægt að mæta hraðri þróun í tækni Fyrsti skóladagur FVA hófst samkvæmt stundaskrá á mánudaginn. Frá nýnemadegi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Ljósm. úr safni. Fjölbrautaskóli Snæfellinga: „Mikil tilhlökkun til skólaársins“ Menntaskóli Borgarfjarðar: Skóli sem sinnir vel persónulegri þjónustu við nemendur Leikfélagið Sv1 í Menntaskóla Borgarfjarðar færði á síðasta ári upp leikritið um Línu Langsokk. Hér er hópurinn í lok frumsýningar ásamt forsetahjónin sem komu í heimsókn. Ljósm. úr safni/mm.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.