Skessuhorn - 21.08.2019, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201924
á Ólafsdalshátíðinni flutti Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, ávarp. Minnt-
ist Lilja hins mikla hugvitsmanns
og frumkvöðuls torfa Bjarna-
sonar. ásamt því lagði ráðherra
áherslu á þau tækifæri sem felast í
tæknibyltingunni sem við stönd-
um frammi fyrir nú. Sjálfvirkni-
væðing, gervigreind og sýndar-
veruleiki eru allt þættir sem Ís-
land getur notið góðs af eins og
af fyrri tæknibyltingum. til þess
að þjóðin geti nýtt sér þau að
fullu þarf að styðja við læsi í víð-
asta skilningi. Einnig kom fram
í máli ráðherra að í upphafi 20.
aldar hafi um 75% vinnuafls á Ís-
landi starfað við sjávarútveg og
landbúnað en í dag starfa tæp 5%
við þessar greinar. Íslandi hafi á
þessum tíma tekið á móti tækni-
þróun og nýtt sér hana til þess
að að auka hagsæld þjóðarbúsins
verulega.
mm/ Ljósm. MM-ráðuneytið.
Minntist frumkvöðulsins
Torfa í Ólafsdal
Nokkur fjöldi gesta sótti Ólafsdal í
Dölum heim síðastliðinn laugardag
þegar árleg hátíð Ólafsdalsfélagsins
var haldin í tólfta sinn. Veðurguð-
irnir voru ekki að sýna sínar bestu
hliðar á Vesturlandi um helgina
þannig að aðlaga þurfti framkvæmd
og skipulag hátíðarinnar í samræmi
við það.
áður en formleg dagskrá hófst var
boðið upp á gönguferð að víkinga-
aldarskálanum innarlega í dalnum
þar sem fornleifafræðingar á veg-
um Fornleifastofnunar Íslands voru
að störfum fyrr í sumar, í samstarfi
við Minjavernd. Var gangan undir
leiðsögn Birnu Lárusdóttur forn-
leifafræðings sem sagði frá ýmsum
minjum á leiðinni ásamt því nýjasta
varðandi uppgröftinn.
Dagskráin hófst síðan á ávarpi
Kristjáns Sturlusonar, sveitar-
stjóra Dalabyggðar og að því
loknu flutti Lilja Alfreðsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
rerra, erindi. Bergsveinn Birgis-
son rithöfundur sagði frá og las
upp úr bók sinni „Lifandilífslæk-
ur“. Soffía Björg Óðinsdóttir söng
nokkur lög og einnig þöndu með-
limir Drengjakórs íslenska lýð-
veldisins raddböndin. Í lok form-
legrar dagskrár fór húllatrúður-
inn Sól frá Sirkus Íslandi á kost-
um og skemmti börnum á öllum
aldri. Kynnir hátíðarinnar var Jó-
hann Alfreð Kristinsson sem kitl-
aði hláturtaugar gesta með glensi
og gríni á milli atriða.
ig
Guðný Margrét Rögnvaldsdóttir
klæddi sig upp í tilefni dagsins og seldi
gestum happdrættismiða.
Ólafsdalshátíð haldin í tólfta sinn
Göngugarpar við víkingaaldarskálann, en reikna má með að unnið verði áfram að uppgreftri og rannsóknum á svæðinu
næstu tvö til þrjú sumur ef fjármagn fæst í verkefnið.
Staldrað við á brúnni. Markús
Torfason rifjar upp gamlar minningar
úr lífi og leik í Ólafsdal á fyrri árum.
ilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Svavar Gestsson, fyrr-
verandi ráðherra.
Soffía Björg Óðinsdóttir, söngkona
og lagahöfundur, heillaði gesti
hátíðarinnar með ljúfum söng og lét
það ekki á sig fá þó hitastigið væri ekki
hátt.
Brosmildir hátíðargestir fylgjast með dagskránni.
Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins, tók við gjöf frá Ásgerði
Höskuldsdóttur til félagsins. Um er að ræða þrjár myndir en þær eru af afa hennar,
Ásgeiri Torfasyni efnafræðingi og foreldrum hans, Torfa Bjarnasyni skólastjóra og
Guðlaugu Zakaríusdóttur húsfreyju.
Þessi unga dama hló svo innilega
þegar húllatrúðurinn Sól lék listir sínar
að ekki var annað hægt en að smella
af henni mynd.
Erla Karlsdóttir frá Innri-Fagradal
og Sigríður Björg Guðmundsdóttir
úr Búðardal komu við á grænmetis-
markaðnum.