Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Page 26

Skessuhorn - 21.08.2019, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 201926 Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Danskir dagar var haldin í 25. sinn í Stykkishólmi dagana 15.-18. ágúst. Hátíðin er ein af elstu bæjarhátíðum landsins, en hún hefur verið haldin frá árinu 1994. Nú sem fyrr sótti fjöldi fólks Hólminn heim á Dönskum dögum til að gleðjast með ættingjum og vinum og njóta fjöl- breyttrar dagskrár fyrir alla fjölskylduna. Að sögn Hjördísar Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Danskra daga, gekk hátíðin eins og best verður á kosið. „Hátíðin gekk öll afskaplega vel fyrir sig og þrátt fyrir að vindurinn hafi blásið svolítið á ok- kur þurfti ekki að aflýsa neinum dagskrárlið,“ segir Hjördís í samtali við Skessuhorn. „Aðsókn var mjög góð og mar- gir brottfluttir Hólmarar sem lögðu leið sína í bæinn. Góð stemning var í bænum alla helgina og sömuleiðis dagana fyrir hátíðina. Við vorum með smá upptakt dagana fyrir og héldum nokkra smærri viðburði. Opnunarhátíðin var á föstudagskvöldið og mjög mikið um að vera í bænum á laugardeginum, brekkusöngur um kvöldið og dansleikur í reiðhöllinni sem var vel sóttur og fór vel fram, svo aðeins fátt eitt sé nefnt,“ bætir hún við. „Allt saman gekk þetta eins og í sögu og skipuleggjendur hátíðarinnar vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem sóttu hátíðina heim, styrktu hana og lögðu hönd á plóg við hátíðarhöldin,“ segir Hjördís Pálsdóttir að endingu. kgk/ Ljósm. sá. Danskir dagar voru haldnir hátíðlegir í 25. skipti „Góð stemning í bænum alla hátíðina“ Grillað í Skógræktinni við mikla ánægju barna og fullorðinna, en það er siður sem íbúar nýlega fluttir frá Danmörku tóku með sér. Íbúar í Tjarnarásnum búnir að breyta götuheitinu í Gammeldanskvej. Glaðir krakkar á Dönskum dögum. Tunnulestin ekur af stað. Krakkarnir hafa alltaf jafn gaman af froðunni. Bryndís Guðmundsdóttir og Ingimar Guðmundsson fengu viðurkenningu fyrir best skreytta húsið á Dönskum dögum 2019. Krakkarnir gæða sér á grilluðum kræsingunum. Gestir njóta á brekkusöngnum á laugardagskvöldið. Tunnulestin á fullri ferð og einbeittir lestarstjórar í hverjum vagni. Tvær froðurennibrautir voru settar upp í Hótelbrekkunni og börnin renndu sér hverja salíbununa á fætur annarri. Notið á kvölddagskránni. Sigurvegarar á Kubbleikum Danskra daga 2019.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.