Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2019, Page 31

Skessuhorn - 21.08.2019, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 21. áGúSt 2019 31 Skagamenn máttu játa sig sigraða gegn Stjörnunni á útivelli, 3-1, þeg- ar liðin mættust í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á sunnudags- kvöld. Var þetta fjórða tap ÍA í röð, en síðasti sigurleikur liðsins kom á móti Fylki laugardaginn 6. júlí. Skagamenn voru nálægt því að komast yfir strax í upphafi leiks þegar Hörður Ingi Gunnarsson átti gott skot úr vítateignum eftir inn- kast Stefáns teits Þórðarsonar, en Haraldur Björnsson í marki Stjörn- unnar varði vel. Heimamenn komust yfir á 25. mínútu leiksins, þegar Sölvi Snær Guðbjargarson skoraði með skoti utan teigs sem fór af Halli Flosa- syni og þaðan í stöngina og inn. Eftir markið náði Stjarnan undir- tökunum á vellinum og stjórnaði leiknum. Skagamenn lágu til baka og freistuðu þess að sækja hratt en gekk illa að skapa sér opin mark- tækifæri. Engu að síður tókst þeim að jafna metin á lokamínútu fyrri hálfleiks. Aron Kristófer Lárusson skoraði þá glæsilegt mark, beint úr hornspyrnu, þar sem hann skrúf- aði boltann í fjærhornið. Staðan því 1-1 þegar liðin gengu til búnings- herbergja í hléinu. Stjörnumenn náðu forystunni á nýjan leik strax á upphafsmínútu síðari hálfleiks þegar Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði eftir fyrirgjöf frá Sölva Snæ. Skagamenn fundu aldrei taktinn í síðari hálfleik, gekk illa að halda boltanum og náðu ekki að skapa sér nein almennileg mark- tækifæri. Þriðja og síðasta mark Stjörnunnar skoraði Baldur Sig- urðsson á 70. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir horn- spyrnu. Heimamenn hefðu getað skorað fleiri mörk í síðari hálfleik því þeir komust tvisvar í dauðafæri þar sem árni Snær Ólafsson í marki ÍA varði vel. Auk þess áttu þeir skot í stöngina seint í leiknum. Skagamenn hafa tapað fjórum leikjum í röð og sitja nú í 7. sæti deildarinnar með 22 stig eftir 17 umferðir. Þeir hafa jafn mörg stig og Fylkir í sætinu fyrir neðan en eru tveimur stigum á eftir Val í sæt- inu fyrir ofan. Næst mætir ÍA botn- liði ÍBV á Akranesvelli laugardag- inn 24. júlí. kgk Eftir kærkominn 1-0 sigur Skaga- kvenna á ÍR í Inkassódeildinni í fótbolta á þriðjudaginn í liðinni viku var komið að stelpunum að mæta Haukum á mánudagskvöld- ið. Leikurinn gegn Haukum fór þó ekki eins vel, tapaðist 4-1. Leikið var í Hafnarfirði. Leikurinn byrjaði fjörlega. Hauk- ar áttu skot í stöngina og út áður en ÍA náði forystunni á 12. mínútu leiksins. Rangstöðugildra Hauka brást þegar hár bolti var sendur inn fyrir vörnina á Erlu Karitas Jó- hannesdóttur. Hún hafði nægan tíma til að senda boltann fyrir á Andreu Magnúsdóttir sem skoraði auðveldlega með skalla. Haukar jöfnuðu metin á 21. mín- útu eftir mistök Anítu Ólafsdótt- ur í marki ÍA. Sæunn Björnsdóttir lyfti boltanum inn á teiginn. Eng- inn leikmaður komst í boltann, sem skoppaði einhvern veginn undir Anítu og í netið. Aðeins tveimur mínútum síðar náðu Haukar for- ystunni eftir laglega sókn. Lang- ur bolti var sendur út úr vörninni á töru Björk Gunnarsdóttur. Hún sendi boltann áfram á Viennu Be- hnke sem kom sér fram fyrir varn- armann og skoraði. Skagakonur tóku að pressa nokk- uð ákveðið á Haukaliðið, náðu á köflum ágætu spili en gekk illa að skapa sér marktækifæri. Eftir langa sókn ÍA á 42. mínútu náðu Hauk- ar boltanum, sendu hann á Sierru Marie Lelil sem fór framhjá varnar- manni og lagði boltann fyrir Krist- ínu Fjólu Sigþórsdóttur sem skor- aði. Staðan í hálfleik því 3-1 fyrir Hauka. Það var síðan snemma í síðari hálfleik sem heimaliðið afgreiddi leikinn þegar Vienna skoraði sitt annað mark þegar hún potaði bolt- anum í netið eftir sendingu fyrir markið. Eftir fjórða mark Hauka róað- ist leikurinn nokkuð. Skagakonur náðu að skapa sér nokkur ágætis tækifæri sem ekki tókst að nýta og því fór sem fór. Leiknum lauk með 4-1 sigri Hauka. ÍA situr í 6. sæti deildarinnar með 16 stig, stigi meira en Grindavík í sætinu fyrir neðan en fjórum stig- um á eftir Aftureldingu í sætinu fyrir ofan. Næsti leikur Skagakvenna er gegn Þrótti R. föstudaginn 23. ágúst næstkomandi. Hann verður leikinn á Akranesi. kgk Snæfellingar kjöldrógu lið Afríku þegar liðin mættust í 4. deild karla í knattspyrnu síðastliðinn laugar- dag. Liðsmenn Snæfells voru held- ur betur í stuði, enda Danskir dag- ar haldnir hátíðlegir í bænum þessa sömu helgi. áður en yfir lauk á Stykkishólmsvelli höfðu heima- menn skorað hvorki fleiri né færri en 15 mörk en gestirnir ekkert. Eins og markatalan gefur til kynna var leikurinn algjör einstefna frá upphafi til enda. Snæfellingar leiddu 9-0 í hálfleik og bættu sex mörkum við í þeim síðari. Kristinn Magnús Pétursson skor- aði hvorki fleiri né færri en sex mörk fyrir Snæfell og Matteo tuta fjögur. Elvedin Nebic og Sigurjón Krist- insson skoruðu tvö mörk hvor og þá urðu gestirnir enn fremur fyrir því óláni að skora eitt sjálfsmark. Snæfell trónir á toppi B riðils 4. deildar með 34 stig eftir 13 leiki. Næsti leikur Snæfells gegn Hvíta riddaranum á útivelli á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst. Sá leik- ur er jafnframt síðasti leikur riðla- keppninnar. kgk/ Ljósm. úr safni/ sá. Víkingur Ó. tapaði fyrir Kefla- vík með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin mættust í Inkasso deild karla í knattspyrnu á föstu- dagskvöld. Leikið var suður með sjó. Ólafsvíkingar lentu í smá brasi á leið sinni til Keflavíkur því ekið var á rútu þeirra þar sem hún stóð kyrrstæð á bílastæði í Borgarnesi. Þurftu liðsmenn Víkings að bíða eftir nýrri rútu sem nemur einum fótboltaleik, eða í um 90 mínútur. Mikil barátta einkenndi upphaf- smínútur leiksins en Ólafsvíkin- gar voru heilt yfir sterkari og fen- gu tvö ágætis tækifæri til að komast yfir. En á 23. mínútu dró til tíðin- da. Keflvíkingar fengu vítaspyrnu eftir að Emir Dokara braut á Þor- ra Má Þórissyni í teignum. Adolf Mtasingwa Bitegeko fór á punktinn og skoraði með skoti efst í hægra markhornið. Ólafsvíkingar voru ekki af baki dottnir og héldu áfram að sækja. Þeir voru nálægt því að jafna aðeins tveimur mínútum síðar en heimam- enn björguðu á línu eftir mikið at í teignum. á 30. mínútu fengu þeir síðan vítaspyrnu eftir að brotið var á Vid- mar Miha í vítateig Keflvíkinga. Harley Willard tók spyrnuna, sko- raði af miklu öryggi og jafnaði me- tin í 1-1 og þannig var staðan í hál- fleik. Keflvíkingar voru heldur sprækari framan af síðari hálfleik, en leikurinn einkenndist þó áfram af töluverðum barningi. Aðstæður spiluðu þar stórt hlutverk, en það var heldur hvasst í Keflavík þegar leikurinn fór fram. Magnús Þór Magnússon var nálægt því að koma heimamönnum yfir á 68. mínútu þegar hann átti skot af löngu færi sem fór í þverslá og yfir. Stuttu síðar skoraði Dagur Ingi Valsson sigur- mark leiksins. Hann fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Ólafsvíkin- ga, fór framhjá einum varnarmanni og skoraði með þéttingsföstu skoti í hornið niðri. Litlu munaði að Ólafsvíkingar jöfnuðu strax í næstu sókn. Sorie Barrie átti þá skot úr teignum sem Sindri Kristinn Ólafsson í marki heimamanna varði í stöngina og af- tur fyrir endamörk. Var þetta síðas- ta alvöru marktækifæri leiksins og lokatölur því 2-1, Keflvíkingum í vil. Víkingur Ó. hefur 24 stig í 7. sæti deildarinnar þegar 17 leikir hafa verið spilaðir. Liðið er stigi á eftir Keflvíkingum en hefur þriggja stiga forskot á Þrótt í sætinu fyrir neðan. Næst leika Ólafsvíkingar gegn top- pliði Fjölnis föstudaginn 23. ágúst. Sá leikur fer fram í Ólafsvík. kgk/ Ljósm. úr safni/ af. Skallagrímur mátti játa sig sigrað- an í miklum markaleik gegn Sindra í 3. deild karla í knattspyrnu síðast- liðinn laugardag. Leikið var í Borg- arnesi og þegar flautað var til leiks- loka höfðu hvorki fleiri né færri en níu mörk litið dagsins ljós. Borg- nesingar skoruðu fjögur en gest- irnir fimm og fóru því með sigur af hólmi. Leikurinn var heldur betur kaflaskiptur, þar sem Skallagríms- menn leiddu 3-0 í hálfleik með mörkum frá Declah Joseph Red- mond, Sigurjóni Ara Guðmunds- syni og Christofer Rolin. Gestirnir frá Hornafirði jöfnuðu metin á rúmlega 20 mínútna kafla í byrjun síðari hálfleiks með marki Kristins Snjólfssonar og tveimur mörkum tómasar Leós ásgeirs- sonar. Christofer Rolin kom Skalla- grími yfir á nýjan leik á 77. mínútu en Robertas Freidgeimas jafnaði metin fyrir Sindra á 82. mínútu. Það var síðan tómas Leó sem skor- aði sitt þriðja mark og sigurmark gestanna á lokamínútu leiksins. Skallagrímsmenn hafa átt erf- itt uppdráttar í 3. deildinni í sum- ar. tapið gegn Sindra var tólfta tap liðsins í röð og eru Skallagríms- menn án sigurs síðan 30. maí. Þeir hafa sex stig í botnsæti deildarinn- ar og eru sjö stigum á eftir KH og Augnabliki í sætunum fyrir ofan. Næst leika Borgnesingar gegn KV á útivelli föstudaginn 23. ágúst næstkomandi. kgk Snæfell rótburstaði Afríku Tap í baráttuleik Skallagrímsmenn hafa átt erfitt uppdráttar í 3. deild karla í knattspyrnu í sumar. Ljósm. glh. Tólfta tap Skallagríms í röð Skagamenn hafa ekki náð sér almennilega á strik að undanförnu eftir frábæra byrjun í Íslandsmótinu. Ljósm. úr safni/ gbh. Sex vikur án sigurs Skagakonur lutu í gras Úr sigurleiknum gegn ÍR í síðustu viku. Hér fagnar ÍA sigurmarkinu frá Bryndísi Rún. Ljósm. gbh.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.