Skessuhorn


Skessuhorn - 09.10.2019, Page 4

Skessuhorn - 09.10.2019, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 20194 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Hvítur, miðaldra, gagnkynhneigður og kristinn karlmaður Frá örófi alda hefur fólki verið raðað í ákveðna flokka eða hópa, gjarnan eftir meintum stalli þess í viðkomandi ættbálki, oft eftir kyni, lit eða útliti, efnahag, eða bara einhverju allt öðru. Þetta er í raun nákvæmlega sambæri- leg flokkun og til dæmis sauðfjárbændur viðhafa þegar þeir í aðdraganda fengitímans skipa ám sínum niður í krærnar eftir því hvaða hrútur fær það hlutverk að kíkja til þeirra fyrir jólin. Mislita féð gjarnan saman og Golsi eða Móri sem hnusar að þeim. Kollur heimsækir handfangalausu skjáturn- ar og svo framvegis. En það er víðar margur sauður í mislitu fé. Ég verð nefnilega að koma með ærlega játningu. Hef undanfarið verið dáldið bæld- ur yfir þeirri staðreynd að ég flokkast í hinn smáða minnihlutahóp sem nú upp á síðkastið er skilgreindur sem; „hvítur, miðaldra, gagnkynhneigður og kristinn karlmaður.“ Get auk þess bjargað mér á enskri tungu, er skráður í ungmennafélag og er meira að segja í björgunarsveit. Þar hafið þið það! Ég hef þó ekki enn látið freistast til að skrá mig í Frímúrararegluna eða Odd- fellow, vil svona meira vita af föstu landi undir fótum áður en ég ana út í kelduna. Hef nógu oft séð búfénað fastan í dýi og meira að segja krakka í fjóshaug upp að mitti. En þessu með miðaldra, hvíta, gagnkynhneigða og kristna karlmanninn get ég bara ekkert að gert. Sit uppi með skömmina þó ég telji það dáldið ómaklegt. En í stofni miðaldra, hvítra, gagnkynhneigðra, kristinna karla er vissu- lega hægt að finna skemmd epli. Því fer fjarri að ég neiti fyrir það. Menn sem hafa alveg til þess unnið að vera smáðir og úthrópaðir. Nýverið hafa til dæmis hæstaréttarlögmaður og stjórnmálafræðiprófessor lýst óstjórnlegri reiði í garð 16 ára unglingsstelpu frá Svíþjóð. Hún er smáð fyrir að vara við hnattrænni hlýnun af manna völdum og lætur fátt stöðva sig, hvorki app- elsínugulan forseta né aðra enn minni spámenn. Staðreyndin er nefnilega sú að þessi skelegga stúlka kemur við auman blett þeirra sem telja að engu þurfi að breyta, hér getum við áfram hagað okkur að vild, með mengandi risaþotum, bílum, plastrusli og einfaldlega pönkast á jörðinni sem við höf- um að láni. Völd og ábyrgð eru bæði í okkar þjóðfélagi sem og hvarvetna á jörðinni í höndum miðaldra karlmanna, ekki endilega kristinna eða hvítra, en karlar eru þeir. Af þeim sökum virka ofsafengin viðbrögð appelsínuguls forseta, hæstaréttarlögmanns og stjórnmálafræðiprófessorsins við eldræðu Gretu thunberg sem vatn á myllu hennar. Hún kemur við auman blett og það sjá allir. Mér mislíkar einfaldlega að svona forpokaðir karlskröggar séu að sverta orðspor allra sem settur eru í þennan hóp miðaldra, hvítra, gagn- kynhneigðra og kristinna karlmanna. Ég bendi á að við fæðingu var okkur fengið ákveðið hlutverk og án karlmanna myndi fjölgun mannkyns ganga hægt. Þessi orðræða í kringum okkur karlana á vafalaust rætur að rekja til opn- ari miðlunar og upplýsingastreymis en áður þekktist. Hægt er að skrifa eða segja á samfélagsmiðlum nánast hvað sem er, hvenær sem er. Engin ritstýr- ing, engu eirt. Bullið fer grímulaust út í kosmóið og er tekið sem heilög- um sannleika. Það sama á vissulega við um orð hvítra, miðaldra, gagnkyn- hneigðra og kristinna karlmanna. Þeir láta stundum óðslega á samfélags- miðlum, senda frá sér eitraðar pillur sem þeir svo fá margfalt í hausinn. Sitja uppi með skömmina. Magnús Magnússon. Vinna stendur yfir um þessar mundir við endurbætur á Breiðar- svæðinu á Akranesi. Það er fyrir- tækið Íslandsgámar ehf. sem annast verkið. Í því felst meðal annars að jarðvegsskipta þarf hluta svæðisins og leggja nýtt yfirborðsefni. Í síð- ustu viku stöðvuðust framkvæmd- ir þegar grafið var niður á sökk– ul undan gamalli olíuuppdæling- arstöð. Þá kom einnig í ljós olíu- mengaður jarðvegur. „Þessi stöð er síðan í kringum 1950. teknar voru myndir af sökklinum og allt saman skráð áður en sökkullinn var brot- inn. Hann verður síðan fjarlægð- ur,“ segir Þórður Guðnason hjá Ís- landsgámum, í samtali við Skessu- horn á mánudag. „En þarna var líka úrgangsolía og á meðan var verið að ákveða hvað ætti að gera við olíumengaða jarðveginn hafa framkvæmdir verið stopp, í rétt rúma viku,“ segir hann. „til stend- ur að færa jarðveginn yfir á næstu lóð, gömlu olíudreifingarlóðina. Það varð niðurstaðan hjá bæjaryf- irvöldum,“ segir hann. „Það hefur hins vegar gengið hægt að fá Olíu- dreifingu til að taka við jarðvegin- um á lóðina sína, en vonandi getum við hafist handa að nýju í dag eða á morgun,“ segir Þórður Guðnason að endingu. kgk Landsréttur staðfesti 1. október sl. úrskurð Héraðsdóms Vesturlands frá 23. september, sem hafði dæmt mann í þriggja mánaða nálgunar- bann gegn ólögráða pilti. Er mann- inum óheimilt að koma að heim- ili piltsins, skóla og vinnustað, auk þess sem honum er bannað að nálg- ast piltinn eða veita eftirför, hafa samband við piltinn í síma, senda orðsendingar eða bréf, hafa sam- skipti við hann á samskiptamiðlum eða setja sig í samband við hann á nokkkurn annan hátt. Í dómnum kemur fram að mað- urinn sé grunaður um að hafa lagt hendur á piltinn, hóta hon- um ofbeldi og reyna að hafa áhrif á hvað hann segði í viðtölum hjá barnaverndaryfirvöldum. Þá kem- ur einnig fram að lögregla hafi í eitt sinn stöðvað manninn þar sem hann reyndi að þvinga piltinn inn í bíl hjá sér. Foreldrar piltsins óskuðu eftir nálgunarbanni og barnaverndar- nefnd sömuleiðis. Héraðsdómur dæmdi manninn í nálgunarbann og nú hefur Landsréttur staðfest þann úrskurð. Maðurinn dvaldi um skeið á lög- heimili piltsins og kynntist honum. Eftir það héldu pilturinn og bróð- ir hans mikið til hjá manninum um skeið. Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að pilturinn hafi lýst því að í fyrstu hafi honum liðið vel í sam- skiptum við manninn, en það hafi breyst að undanförnu. Hann hafi orðið fyrir skömmum og aðkasti frá manninum, meðal annars um að pilt- urinn ætti að segja tiltekna hluti við barnaverndaryfirvöld. Þá hafi maður- inn slegið hann í andlitið og ítrekað hótað piltinum barsmíðum. Pilturinn hafi reynt að loka á öll samskipti við manninn en hann hafi ekki látið sér segjast. Lögregla hefur fjórum sinn- um haft afskipti af manninum vegna þessa, þar af einu sinni þegar hann reyndi að þvinga piltinn upp í bíl til sín. kgk/ Ljósm. úr safni. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA og varaforseti Alþýðusam- bands Íslands, segir það dapurlegt að viðskiptabankarnir þrír hafi ekki viljað skila þeirri miklu stýrivaxta- lækkun sem Seðlabankinn hef- ur hrint í framkvæmd eftir að lífs- kjarasamningurinn var undirritað- ur. „Rétt er að vekja sérstaka athygli á því að ein af aðalforsendum lífs- kjarasamningsins var að stýrivextir myndu lækka umtalsvert og að sú vaxtalækkun myndi að sjálfsögðu skila sér til íslenskra neytenda, heimila og fyrirtækja,“ skrifar Vil- hjálmur á Facebook síðu sína. „En eins og mörgum er kunnugt hefur Seðlabankinn lækkað stýrivextina í þremur aðgerðum um 1,25% eftir undirritun lífskjarasamnings. Það er alveg morgunljóst að ef fjármála- kerfið ætlar sér ekki að skila þessari vaxtalækkun til neytenda nema í al- gjöru skötulíki, þá mun það kalla á hörð viðbrögð frá verkalýðshreyf- ingunni, enda var vaxtalækkun ein af aðalforsendum lífskjarasamn- ingsins eins og áður sagði,“ skrifaði Vilhjálmur. mm Frá framkvæmdum á Breiðarsvæðinu síðastliðinn mánudagseftirmiðdag. Grófu niður á olíumengaðan jarðveg Framkvæmdir stöðvuðust í viku Segir viðskiptabankana ekki skila stýrivaxtalækkunum Nálgunarbann gegn ólögráða pilti

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.