Skessuhorn


Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 201910 Fjögurra ára fangelsi AKRANES: Héraðsdómur Vesturlands tók í apríl síðast- liðnum fyrir mál sem höfð- að var gegn konu á Akranesi sem grunuð var um tilraun til manndráps í nóvember á síð- asta ári. Konunni var gefið að sök að hafa stungið tengda- son sinn með hnífi í brjóst- kassa. Dómur Héraðsdóms Vesturlands var birtur síðast- liðinn föstudag í kjölfar þess að málinu hafði verið áfrýjað til Landsréttar. Hlaut konan fjögurra ára fangelsisdóm auk þess sem hún var dæmd til að greiða tengdasyni sínum 800 þúsund krónur í bætur. -arg Styrkir til lista og menningar- arfs LANDIÐ: Mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki af safnliðum á sviði lista og menningararfs og stofn- styrki til íþrótta- og æskulýðs- mála. „Veittir eru styrkir til annarra en ríkisaðila þ.e. fé- laga, samtaka eða einstaklinga vegna verkefna á árinu 2020 sem ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Um- sóknarfrestur er til miðnætt- is mánudaginn 4. nóvember nk. Rafræn umsóknareyðu- blöð er að finna á umsóknar- vef Stjórnarráðsins. -mm Í vanda við Glym HVALFJSV: Ferðamaður lenti í vandræðum þar sem hann var á göngu á Glym í vikunni sem leið. Hafði hann samband við viðbragðsaðila og kvaðst vera fastur austan við Glym, efst uppi við foss- inn. Hann kvaðst vera einn á ferð, vel útbúinn en að myrkr- ið hafi komið aftan að hon- um og hann væri kominn í sjálfheldu því hann sæi ekk- ert. Björgunarsveitarmenn frá Björgunarfélagi Akraness fóru á vettvang og komu mannin- um til aðstoðar. -kgk Pramma hvoldi FAXAFLÓI: Óhapp varð að- fararnótt miðvikudagsins í síðustu viku þegar verið var að draga pramma með áföstum krana frá Hafnarfirði. Ætlun- in var að fara með prammann á Snæfellsnes, en ekki vildi betur til svo að honum hvolfdi úti á Faxaflóa. Lögregla ákvað í samráði við Umhverfisstofn- un að draga prammann að bryggju á Grundartanga. -kgk Fauk útaf og valt HVALFJSV: Bifreið fauk út af Vesturlandsvegi við Hafn- arfjall síðastliðinn fimmtu- dag. Ökumaður reyndi að halda bílnum, sem var með kerru í eftirdragi, inni á veg- inum þegar hann fékk á sig vindhviðu. Það tókst ekki, heldur missti ökumaður bíl- inn út af veginum þar sem hann valt. Ökumaðurinn var einn í bílnum og var flutt- ur á heilsugæsluna í Borgar- nesi til aðhlynningar. Þá var fenginn krani til að ná bíln- um og kerrunni aftur upp á veginn. -kgk Aftanákeyrsla á Ólafsbraut ÓLAFSVÍK: Árekstur varð laust eftir kl. 14:00 á sunnu- dag þegar einum bíl var ekið aftan á annan á Ólafs- braut í Ólafsvík. Ökumað- ur og farþegar annars bíls- ins voru fluttir með sjúkrabíl á heilsugæsluna í Ólafsvík til aðhlynningar. Annar bíllinn er óökuhæfur og var dreginn af vettvangi með dráttarbíl. -kgk Á röngum númerum HVALFJ: Ökumaður var stöðvaður þar sem hann kom upp úr Hvalfjarðargöngum síðastliðinn laugardag. Var hann kærður fyrir skjala- fals, þar sem hann hafði röng skráningarnúmer á bifreið sinni. Hann er einnig grun- aður um akstur undir áhrif- um ávana- og fíkniefna. Ekki nóg með það, heldur reynd- ist hann ekki vera með öku- réttindi. Kom þetta í ljós á vettvangi, en í lögreglubíl- um er tölvubúnaður þar sem lögreglumenn hafa beinan aðgang inn í kerfi lögregl- unnar. Þannig má á vettvangi nálgast allar upplýsingar sem þar eru skráðar. -kgk Laust barn í bíl AKRANES: Lögreglu var tilkynnt um laust barn í bíl á Akranesi fyrir kl. 8:00 einn morgun í vikunni sem leið. Íbúi hafði þá séð laust barn í bíl og gert lögreglu við- vart. Lögregla fór á stúfana og reyndi að hafa uppi á við- komandi, enda er slíkt athæfi litið alvarlegum augum. -kgk Ók undir áhrifum AKRANES: Síðdegis á mánudag var lögreglu til- kynnt um menn sem nálguð- ust Akranes og væru mögu- lega undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Lögreglu- menn á Akranesi fóru af stað og stöðvuðu ökumann og farþega við hringtorg- ið áður en ekið er inn í bæ- inn. Ökumaðurinn er grun- aður um akstur undir áhrif- um ávana- og fíkniefna. Auk þess reyndist hann ekki vera með ökuréttindi. Mennirn- ir voru á bílaleigubíl og var það bílaleigan sem gerði lög- reglu viðvart. -kgk Síðastliðinn föstudag var Svan- dísi Svavarsdóttur heilbrigðisráð- herra afhentur listi með nöfnum 38 af 46 kennara við Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem þeir lýsa van- trausti á Ágústu Elínu Ingþórsdótt- ur skólameistara. Átelja þeir stjórn- unarhætti skólameistara og fram- komu hennar við undirmenn. Yfir- lýsing kennaranna er svohljóðandi: „Undirritaður kennarar við Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akra- nesi, FVA, lýsa yfir vantrausti á nú- verandi skólameistara FVA, Ágústu Elínu Ingþórsdóttur, og beina þeim tilmælum til ráðherra að hún verði ekki endurráðin sem skólameistari skólans.“ Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra fól nýverið Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að taka að sér að skipa í stöðu skóla- meistara Fjölbrautaskóla Vestur- lands eftir að Lilja D Alfreðsdótt- ir menntamálaráðherra sagði sig frá málinu. Eins og nýlega var greint frá í Skessuhorni hefur Ágústa Elín höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna þeirrar ákvörðunar mennta- málaráðherra að auglýsa starf skólameistara laust til umsóknar frá og með næstu áramótum. Skipun- artími skólameistara FVA rennur út um næstu áramót og ákvað Lilja D Alfreðsdóttir menntamálaráðherra í sumar að auglýsa starfið laust til umsóknar. Í kjölfar auglýsingar sóttur fjórir um starfið, þar á með- al núverandi skólameistari. Í hópi þriggja annarra umsækjenda eru tveir núverandi starfsmenn skólans. mm/ Ljósm. glh. Á miðvikudaginn í síðustu viku veitti Lögreglan á Vesturlandi öku- manni á stolnum bíl eftirför frá Akrafjalli að þjóðveginum við af- leggjarann að Melahverfi í Hval- fjarðarsveit. Ökumaðurinn missti þar stjórn á bifreiðinni, ók út af og við það valt bifreiðin og end- aði á hliðinni. Lögreglan greindi frá þessu á Facebook síðu sinni og segir að skömmu áður hafi verið tilkynnt til lögreglunnar að bifreið hafi verið tekin ófrjálsri hendi við Gamla Kaupfélagið á Akranesi: „Lögreglumenn á Akranesi mættu bifreiðinni á Akrafjalls- vegi þar sem henni var ekið á 139 km. hraða í átt að hringtorginu við Hvalfjarðargöng. Ökumanni bif- reiðarinnar var gefið merki um að stöðva aksturinn, sem hann gerði ekki og var því bifreiðinni veitt eft- irför. Þrátt fyrir að lögreglan væri með forgangsljós tendruð þá jók ökumaðurinn ferðina og ók áfram út úr hringtorginu norður Vestur- landsveg á ofsahraða.“ Að sögn lögreglu var mikil umferð á Vestur- landsvegi og skapaðist mikil hætta vegna þessa. Lögreglumenn komu síðan að bifreiðinni við gatnamót- in að Melahverfi þar sem hún var utan vegar á hliðinni. Ökumaður var handtekinn á staðnum grun- aður um nytjastuld á bifreiðinni og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild HVE til skoðunnar. Hann reyndist ekki slasaður og var vistaður í fangaklefa að skoðun lokinni, segir í frétt Lög- reglunnar á Vesturlandi. mm Bifreiðin utan vegar. Ljósm. Lögreglan á Vesturlandi. Ofsaakstur og eftirför endaði með bílveltu Lýsa vantrausti á skólameistara FVA Fyrri hluta framkvæmda við Esju- braut á Akranesi er nú lokið og hef- ur verið opnað fyrir umferð frá Kal- manstorgi austur fyrir innkeyrslu að Húsasmiðjunni. Við þetta verð- ur aðkoma að Kalmansvöllum eðli- leg aftur og hjáleiðum um lóð Bjar- mars og Olís lokað. Framkvæmdir eru hafnar við næsta áfanga Esjubrautar, þ.e. frá vestan við gatnamót Smiðjuvalla / Dalbrautar að Esjutorgi. Lokað er fyrir umferð um það svæði. Smiðju- vellir og Dalbraut er því botnlanga- götur að gatnamótunum Esjubraut- ar. Aðeins seinna verður opnað frá Esjubraut að Esjuvöllum og verða ökumenn að nýta sér hjáleiðir frá Dalbraut að Esjuvöllum í viku til 10 daga lengur. Er það vegna fram- kvæmda við frágang gatnamóta Esjuvalla og Esjubrautar. Aðkoma verður frá Dalbraut að lóðunum Dalbraut 16 og Þjóðbraut 13A. Að- koma verður frá Smiðjuvöllum að lóðum Esjubraut 49 og Smiðjuvöll- um 4. mm/akranes.is Esjubraut lokuð að hluta

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.