Skessuhorn


Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 09.10.2019, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 2019 15 Um þessar mundir er rannsókna- skipið Bjarni Sæmundsson í 12 daga rannsóknaleiðangri í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi. Samkvæmt frétt Hafrannsóknastofnunar er um borð unnið að mörgum og fjölbreyttum rannsóknaverkefnum og er gert ráð fyrir að teknar verði um 500 stöðv- ar með rækjuvörpu, sjótaka, botn- greip, botnkjarnataka eða neðan- sjávarmyndavél. Í þessum leiðangri fer m.a. fram stofnmæling rækju, könnuð umhverfisáhrif sjókvíaeldis og rannsóknir á ungþorski. Stofnmæling rækju „Frá árinu 1988 hefur verið farið árlega í leiðangra til að meta stofn- stærð rækju. Niðurstöður úr mæl- ingunum eru notaðar til að veita stjórnvöldum ráðgjöf um veiðar á innfjarðarækju. Ýmsum öðrum upplýsingum er safnað, meðal ann- ars um útbreiðslu, magn og lengd allra fisktegunda í báðum fjörðun- um og einnig er afrán þorsks, ýsu og lýsu kannað. Þannig hafa niður- stöður úr þessum mælingum meðal annars sýnt að tegundasamsetning og þéttleiki fiska og hryggleysingja breyttist upp úr síðustu aldamótum þegar magn þorsks og ýsu jókst en á sama tíma minnkaði magn rækju, flatfiska og ýmissa smáfiska. Umhverfisáhrif sjókvíaeldis Álag á grunnsævi fer vaxandi vegna ýmissa mannlegra athafna, svo sem fiskeldis. til að meta áhrif fiskeldis á lífríki botnsins er upp- lýsingum nú safnað í botngreipar og með myndavélum annað árið í röð. Með slíkri árlegri vöktun fást upplýsingar um þéttleika og samsetningu botndýra á fjarsvæð- um eldissvæða og hvernig það getur hugsanlega breyst. Að auki eru botnkjarnar teknir og súr- efni, brennisteinsmagn og sýru- stig er mælt úr setinu til að meta ástand þess. Verkefninu er ætlað að vakta ástand á fjarsvæðum eld- is og fjarðakerfum í heild en eldis- fyrirtæki standa sjálf að lögbund- inni vöktun við eldissvæðin. Þetta verkefni er styrkt af Umhverfis- sjóði sjókvíaeldis. Umhverfisrannsóknir Árið 2001 hófst ítarleg kortlagning hitafars og seltu í þessum tveimur fjörðum. Þá voru settar út sérstakar stöðvar þar sem árlega hefur verið safnað upplýsingum um hitastig og seltu sjávar. Á undanförnum árum hafa einnig verið gerðar mælingar á styrk súrefnis og næringarefna. Rannsóknir á ungþorski Á síðustu árum hefur verið kallað eftir ítarlegri upplýsingum varðandi nýliðun þorsks við Ísland. Í leið- angrinum er ungþorskur merktur til að sjá hversu lengi hann dvelst í fjörðunum. Að auki er lögð áhersla á mælingar á þorskseiðum með það að markmiði að skoða ástand og aldur seiða í mismunandi fjörðum við landið.“ mm/ Ljósm. Rakel Guðmundsdóttir Um 450 manns tóku á laugardaginn þátt í landsæfingu björgunarsveita á Snæfellsnesi. Veðrið var ekki upp á sitt besta á laugardaginn, strekkingsvindur og rigning. Slík- ar aðstæður eru reyndar oft þegar leit og björgun fólks á í hlut og því reyndi bæði á fólk og búnað. Á æfingunni tókst björgunarsveitafólk af öllu landinu á við 60 krefjandi verk- efni, mörg hver í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Æfð voru flest af þeim fjölbreyttu verkefnum sem björgunar- sveitir takast á við í raunveruleikanum. „Æfingin gekk vel en hún var skipulögð af heimamönnum og eiga þeir hrós skilið fyrir undirbúninginn,“ segir í tilkynningu frá Lands- björgu. Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns tók með- fylgjandi myndir á laugardaginn. Myndin af bjargsigi er af Facebook síðu Landsbjargar. mm/ Ljósm. af. Bjarni Sæmundsson í fjölþættum rannsóknaleiðangri Björgunarsveitir héldu landsæfingu í Snæfellsbæ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.