Skessuhorn


Skessuhorn - 09.10.2019, Síða 23

Skessuhorn - 09.10.2019, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 9. OKtÓBER 2019 23 Snyrting gróðurs á lóðamörkum Garðeigendur eru vinsamlega beðnir um að snyrta trjágróður sem kominn er út fyrir lóðamörk til að tryggja öruggar og greiðar leiðir um göngustíga bæjarins. Þessi snyrting er mjög nauðsynleg vegna snjómoksturs í vetur. Íbúar eru hvattir til þess að kynna sér lögreglusamþykkt Akraneskaupstaðar, þar sem meðal annars kemur fram í 11. gr. að gróður s.s. tré, runnar o.s.frv. skulu ekki skaga út í eða út yfir gangstéttar, gangstíga eða götur, þó er heimilt að þau skagi út yfir, ef hæð þeirra er a.m.k 2,8 m yfir gangstétt eða gangstíg, en 4,0 m yfir götu. Einnig er íbúum bent á að skoða samþykktar reglur bæjarstjórnar Akraness um umgengni og þrifnað utanhúss á Akranesi en þar er eigendum eða umráðamönnum húsa og lóða gert skylt að halda eignum vel við, hreinum og snyrtilegum þ.á m. húsum, lóðum og girðingum. SK ES SU H O R N Ítarlegri upplýsingar er að finna á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Allar ábendingar eru vel þegnar frá íbúum og skulu berast á netfangið umhverfi@akranes.is eða í síma 433-1000. • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Boðað er til hluthafafundar í Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. föstudaginn 11. október kl. 12:00 í sal skólans Dagskrá Hluthafasamkomulag1. Stjórnarkjör samkvæmt nýju 2. hluthafasamkomulagi Önnur mál löglega borin upp3. Tillögur að lagabreytingum má finna í frétt á heimasíðu félagsins, www.menntaborg.is SK ES SU H O R N 2 01 9 Fundarboð „Stjórn og starfsfólk Heimilis og skóla lýsa yfir áhyggjum af aðgengi og öryggismálum skóla og eru tvö nýleg atvik tilefni þessa erindis,“ segir í tilkynningu. „Við skorum á mennta- og menningarmálaráðu- neyti og sveitarfélög landsins að taka þessi mál til gagngerrar end- urskoðunar og setja viðmið þar að lútandi. Í byrjun september 2019 kom upp alvarlegt atvik í Austurbæjarskóla þar sem átti sér stað brot gegn barni á skólatíma. Einnig hefur borið á því undanfarið að losað hefur verið um skrúfur og dekk á hjólum skóla- barna en í upphafi mánaðar slasað- ist drengur illa þegar hann tvíhand- leggsbrotnaði eftir slíkan hrekk. Þá eru þjófnaðir í skólum ekki óal- gengir þar sem fatnaði og öðrum verðmætum er stolið frá börnum. Sem betur fer eru atburðir eins og sá fyrsti sem hér er lýst ekki algeng- ir en þegar svona alvarlegur glæpur á sér stað í grunnskóla hlýtur það að vera tilefni til að staldra við og fara yfir öryggisferla, viðbragðsáætlanir og eftirlit með nemendum.“ Þá segir að stjórn Heimilis og skóla vilji að skólar séu öruggir staðir fyrir börn þar sem þau upp- lifa sig örugg og líði vel og geta jafnframt leikið sér frjáls við trygg- ar aðstæður. „Við mælumst því til þess að öryggismál og aðgangsstýr- ing verði endurskoðuð frá grunni í skólum landsins og skýrt sé hverjir starfa við skólann, t.d. með því að merkja starfsmenn og kenna börn- um að leita aðeins til merktra starfs- manna. Af gefnu tilefni gerum við einnig athugasemd við málefni sem nær þvert á skólastig og varðar regl- ur um fræðslu fyrir börn og ung- linga. Nýlega hefur borið á því að óheppileg fræðsla hafi ratað inn í framhaldsskóla. Í viðtali við Stund- ina 4. okt. 2019 lýsir Kristín I. Páls- dóttir, talskona Rótarinnar, áhyggj- um af því að skólar hleypi mönnum inn með fræðslu- og forvarnarstarf sem ekki hafa faglega þekkingu til að sinna slíku starfi og segir að um öryggisgloppu sé að ræða. Nem- endur séu jafnvel settir í hættu. Ekki eru til nein lög eða reglur um það hverjum er hleypt inn í skólana með forvarnar- eða fræðslustarf eða hvernig slíku starfi skuli hátt- að af hálfu gestkomandi aðila. Eng- in viðmið eru til af hálfu mennta- og menningarmálaráðuneytis um hvernig haga skuli utanaðkomandi fræðslu inni í skólum. Einstök sveit- arfélög hafa sum hver sett sér við- mið um slíkt en almennt er það á ábyrgð skólastjórnenda að ákveða hvaða kynningar skuli heimilaðar. Það fyrirkomulag virðist þó ekki duga til að vernda nemendur fyrir óæskilegum áhrifum af óviðeigandi fræðslu og óskum við því eftir að mennta- og menningarmálaráðu- neyti útbúi viðmið um fræðslu í skólum og eftir því sem við á í sam- starfi við hlutaðeigandi, s.s. skóla- stjórnendur og sveitarfélög.“ mm Öryggi í skólum og reglur um fræðslu Rauði krossinn í Borgarfirði og Rauði krossinn í Stykkishólmi boða til stofnfundar nýrrar deildar Rauða krossins á Vesturlandi þriðjudaginn 22. október kl. 19.00 í Símenntunarmiðstöð Vesturlands. Allir félagsmenn velkomnir! Formaður Borgarfjarðardeildar og formaður Stykkishólmsdeildar. Stofnfundur Rauða krossins á Vesturlandi 22.10.2019, kl. 19:00 - 21:00 Þekking Gæði Þjónusta Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388 Sími: 666 5110 smaprent@smaprent.is www.smaprent.is Smáprent Bolir í mörgum litum Við hönnum, prentum og merkjum fyrir þig og þína

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.