Læknablaðið - Oct 2018, Page 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gunnhildurarna@gmail.com
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
2000
Prentun, bókband
og pökkun á Íslandi
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
14.900,- m. vsk.
Lausasala
1490,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2018/104 431
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Læknablaðið hefur fengið Önnu Þorbjörgu Þorgrímsdóttur til að velja og skrifa um kápumyndir
á 104. árgangi blaðsins í tilefni 100 ára afmælis Læknafélags Íslands. Myndirnar tengjast þeim efnum sem
eru í brennidepli afmælisgreina hvers tölublaðs.
Anna er sagnfræðingur og safnafræðingur og fyrrum stjórnandi Lækningaminjasafnsins.
„Svona var lífið leiðinlegt þá“
Um miðjan nóvember 1918 lágu þúsundir Reykvíkinga veikir í inflú-
ensu. Samfélagið var allt úr skorðum, ekki nokkur sála á götunum,
búðir lokaðar og skortur á matvöru og eldiviði. Blöð komu ekki út.
Sorgin sem grúfði yfir höfuðstaðnum var blönduð hræðslu og reiði.
Hræðslu því útbreiðsla veikinnar var hröð og dánartíðnin há, sér-
staklega hjá ungu fólki, og reiði því heilbrigðisyfirvöld þóttu viðhafa
ómarkviss viðbrögð við að stemma stigu við útbreiðslunni.
Orsakavaldur veikinnar var óljós og hefðbundnar meðferðir við
hitasótt og lungnabólgu gagnslitlar. Því freistuðust læknar að reyna
ýmsar tilraunakenndar meðferðir en með litlum árangri. Í Reykjavík
störfuðu 10 læknar sem sinntu sjúkum dag sem nótt og voru undir
ofurmannlegu álagi, bæði andlegu og líkamlegu. Allir veiktust nema
Þórður Thoroddsen sem var þeirra elstur.
Mánudaginn 25. nóvember var veikin í rénun og lífið farið að taka
á sig sína réttu mynd. Þann dag hætti sérstök hjúkrunarnefnd störf-
um og í Morgunblaðinu mátti sjá tilkynningu Daníels Bernhöft um
opnun brauðsölubúðarinnar. Einnig er þar greint frá því að messað
hefði verið í Dómkirkjunni eftir þriggja vikna hlé og að undanfarið
hefðu að meðaltali 15 greftranir farið fram dag hvern. Enn var auglýst eftir hjúkrunarfólki og ný andlát tilkynnt og þenn-
an dag dró heimasætan í Ingólfsstræti 23, hin 12 ára gamla Jórunn Dagmar, andann í síðasta sinn. Sorgin er áþreifan-
leg. Myndin hefur verið dýrmæt minning syrgjandi fjölskyldu enda líklega sú eina sem til er af snótinni. Eins og hefð var
fyrir fór jarðarför fram í beinu framhaldi af húskveðjunni þann 7. desember. Nokkrum dögum fyrr fór fram önnur hús-
kveðja við Nýlendugötu sem Eufemia Waage lýsti svo: „Þegar verið var að syngja við húskveðjuna niðri í kjallaranum,
greip mig mesta hugarvíl og fór ég bara að hágráta. Svona var lífið leiðinlegt þá.“
Ólafur Oddsson tók myndina sem er birt með leyfi Ljósmyndasafns Íslands.
Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
Dómur Héraðsdóms í máli Ölmu Gunnarsdóttur
og Sjúkratrygginga Íslands er varnarsigur um
atvinnuréttindi lækna og réttindi landsmanna til
heilbrigðisþjónustu. Hann er kennslustund fyrir
heilbrigðisráðuneytið og stofnanir þess. Þetta
segir Reynir Arngrímsson, formaður Læknafé-
lags Íslands. Læknasamfélaginu hafi verið mis-
boðið.
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi 19. september
síðastliðinn úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Ís-
lands um að hafna umsókn Ölmu Gunnarsdóttur
um aðild að rammasamningi sérfræðilækna við
ríkið. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að áfrýja
ekki dómnum og hefur boðið ársframlengingu á
samningnum sem annars rennur út um áramót.
Hún boðar samráð við sérfræðilækna um kerfis-
breytingar.
Reynir segir umhugsunarvert hvers vegna
þrír heilbrigðisráðherrar hafi fengið svona slaka
ráðgjöf og anað út í lögleysu. „Við hljótum að
spyrja hver hafi ráðið þar för. Er þetta komið úr
heilbrigðisráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu eða
frá öðrum ráðgefandi aðilum eins og til dæmis
Embætti landlæknis? Því verður að svara,“ segir
hann.
Alma var ein af 8 sérgreinalæknum sem
ákváðu að höfða mál. Gísli Guðni Hall, hæstarétt-
arlögmaður og verjandi hópsins, segir að skoða
þurfi aðstöðu hvers og eins sérfræðilæknis með
tilliti til réttar á skaðabótum. Skaðinn kunni að
vera mismikill.
„Aðstæður þessara lækna eru mismunandi,
sumir búa ytra, aðrir hér heima. Svo héldu sumir
áfram að starfa á spítölum erlendis en Alma til að
mynda hafði ákveðið að flytja heim,“ segir hann
og telur líklegt að allir geti sýnt fram á tjón.
GAG
Vilja vita hver veitti
vonda ráðgjöf vegna
samningabrota Ljóst er að héraðsdómur í máli sérfræðilækna gegn Sjúkra-tryggingum Íslands hristi upp í kerfinu.