Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - okt 2018, Qupperneq 24

Læknablaðið - okt 2018, Qupperneq 24
452 LÆKNAblaðið 2018/104 Margt fleira mætti án efa um þetta mál tala, en eg læt hér nú staðar numið. Aðeins vil eg minna á það, að þessi ,,spanska veiki‘‘ hér í bæ, hefir ekki verið skæðari en inflúenzu-sóttir oft áður, þegar þær hafa gengið yfir þetta land. – Eptir skýrslum, sem birst hafa, hafa hér í bæ dáið um 260 manns meðan inflúensan geisaði. Gera má ráð fyrir, að 20-30, segjum 25 hefðu dáið hér í bæ, þennan tíma, þó að inflúensan hefði ekki komið. Það eru þá 235 dauðsföll sem inflúensunni eru að kenna, eða sama sem tæpir 16 af hverju þúsundi bæjarbúa. Schleisner telur, að árið 1843 hafi inflúensan drepið 1956 manns á öllu landinu. Það verða 34 af hverju þúsundi þálifandi landsbúa. Sóttin 1862 drepur 18 af hverju þúsundi og 1866 19 af hverju þús- undi, eins og áður er sagt, og nú síðast 1894 12 af hverju þúsundi. – Finsen skýrir frá því, að í sóttinni 1862 hafi dáið 15 af hverju Gosmökkurinn frá eldstöðinni Kötlu séður frá Reykjavík í október 1918. L Æ K N A B L A Ð I Ð 1 9 1 9 „Það sem mér fannst merkilegast við skrifin er hvað það hafði lítið verið fjallað um spænsku veikina í gegnum tíðina og áttaði mig á því að ég, eins og sjálfsagt aðrir, var með mjög óljósar hugmyndir um hvað hafði átt sér stað,“ segir rithöfundurinn Sjón sem studdist meðal annars við greinar Þórðar Thoroddsen við ritun bókarinnar Mánasteinn – Drengurinn sem aldrei var til. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka fyrir hana árið 2013, hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og Þjóðleikhúsið keypti nýverið réttinn til að setja hana á svið. „Það kom mér mjög á óvart hvað þetta voru hryllilegir dagar og augljóslega mikið trauma fyrir bæjarbúa. Allir misstu einhvern og sennilega hef- ur fólk meðvitað eða ómeðvitað sameinast um að tala ekki of mikið um spænsku veikina. Þá spilar líka inn í að hún kemur á sama tíma og þjóðin verður fullvalda. Ég held að það hafi einnig haft sín áhrif. Fólk þurfti að minnast þess að þjóðin væri orðin fullvalda án þessara hörmunga.“ Sjón segir að hann hafi sí og æ rekist á sömu heimildirnar við undirbúninginn. „Ég þurfti að grafa aðeins dýpra og fann þá greinarnar í Læknablaðinu frá árinu 1919.“ Úttekt Þórð- ar er eina heildstæða heimildin í einhver sjötíu til áttatíu ár. Sjón lýsir því hvernig upplýsingarnar nýttust um leið og hann varð að leyfa sögunni að flæða. Einnig hvernig hann passaði sig á að horfa ekki á tímann með þeirri þekkingu sem við höfum í dag, heldur jafnhliða sögupersónunum. „Við höfðum tíu lækna að sinna 10.000 sjúk- lingum og eina apótekinu var lokað vegna veik- inda,“ segir hann. „Þetta væri viðlíka og 100.000 manns legðust fárveikir á næstu 6 til 7 dögum.“ Sjón segir að hann kjósi að vinna með heimild- ir við ritstörfin og þá skipti hann máli að fara rétt með. Hann hafi áður unnið með læknisfræði sér við hlið. „Ég er með þá kenningu að ljóðskáld starfi samhliða náttúru- og líffræðingum, en skáld- sagnahöfundar samhliða læknum. Það er svo margt í læknavísindum sem skýrir hvernig menn takast á við þessi fáu ár sem þeir fá á þessari jörð.“ Rithöfundar samhliða læknum Sjón nýtti fræðigreinar Þórðar Thoroddsen í Mánasteini Rithöfundurinn Sjón ræddi um bókina Mánasteinn – Drengurinn sem aldrei var til á Læknadögum 2018.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.