Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 27
LÆKNAblaðið 2018/104 455
skólar Evrópu eru mjög mismunandi hvað varðar námsáherslur,
einkum klíníska færni.
Læknadeild HÍ hefur fylgst vel með þessari þróun og verið
í góðu sambandi við AMEE, WFME og ECFMG, og NMBE, til
að standa sem best að vígi ef þessar fyrirætlanir verða að raun-
veruleika. Deildin hefur verið tekin út á vegum mennta- og
menningarmálaráðuneytisins eins og aðrar deildir heilbrigðisvís-
indasviðs en næsta úttekt fer fram árið 2020. Þar er um að ræða
sjálfsmat og utanaðkomandi mat og var það síðast leitt af Stefan
Lindgren sem var forseti WFME. Sjálfsagt er að deildin standi
þannig að undirbúningi fyrir þessa úttekt að sú vinna nýtist
fyrir alþjóðlega viðurkenningu læknaskóla árið 2023. Slík viður-
kenning er mikilvæg þannig að íslenskir læknar geti að loknu
kandídatsári áfram valið að sækja til erlendra stofnana í fram-
haldsnám til viðbótar við þá þróun sem verið hefur hér á landi.
Breytingar síðustu 30 ár
Þær breytingar sem orðið hafa á læknakennslu og læknanámi
á Íslandi síðastliðin 30 ár eru flestar unnar undir áhrifum frá
AMEE. Ársfundir AMEE hafa verið sóttir reglulega og þaðan
hafa komið nýjustu straumar, breytingar og áherslur. Lítil deild
getur auðvitað ekki tekið upp allt sem þar kemur fram, enda
hentar ekki allt alls staðar. Sums staðar hefur verið gengið lengra
en aðrir hafa gert og nýtur þar deildin áhrifa frá Bandaríkjunum
auk evrópskra og asískra áhrifa.
Af þeim breytingum sem læknadeild hefur gert á síðustu 30
árum langar mig til að nefna nokkur atriði. Með nýju inntöku-
prófi (2003) hafa einkunnir á BS-prófi og kandídatsprófi farið
hækkandi. Hér gæti verið um að ræða „einkunnaverðbólgu“
sem gert hefur vart við sig í íslenskum skólum ef ekki væri fyrir
samanburð við árangur á CCSE þar sem bætt frammistaða varð
ljós á sama tíma (hækkun úr 73/75 í 82/75). Þessi breyting hefur
verið rædd við NBME og metin marktæk. Þetta próf gæti gefið
vísbendingu um hvernig deildin ætti að standa sig í formlegri
erlendri úttekt læknaskóla (staðlað bandarískt próf í klínískum
greinum sem allir 6. árs læknanemar gangast undir). Auk þess
sem nemendur fá upplýsingar um stöðu sína í alþjóðlegum
samanburði fær deildin líka mikilsverðar upplýsingar um stöðu
einstakra námsgreina og deildarinnar í heild.