Læknablaðið - okt 2018, Qupperneq 38
466 LÆKNAblaðið 2018/104
Tugir karla komnir
á forvarnarlyf gegn HIV
viðtal við Bryndísi Sigurðardóttur smitsjúkdómalækni
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Á sjöunda tug karlmanna hefur á fáum
vikum farið í gegnum áhættumat á
Landspítala og fengið forvarnarlyf gegn
HIV í hendur. Bryndís Sigurðardóttir smit-
sjúkdómalæknir telur að þeir verði allt að
80 talsins innan skamms og jafnvægi verði
náð. Yfirvöld hófu nú í sumar að greiða
að fullu fyrir samheitalyf Truvada til að
fyrirbyggja ný HIV-smit meðal karla sem
stunda kynlíf sín á milli. Einungis örfáir
hafa ekki uppfyllt skilyrði fyrir lyfjun-
um. Rétt tæplega 30 einstaklingar hafa
bæst í hóp HIV-smitaðra það sem af er
ári og þykir mikið. HIV-smitum fækkar á
heimsvísu á sama tíma og þeim fjölgar hjá
karlmönnum sem sofa hjá öðrum körlum.
Bryndís segir að HIV sé þeim raunveruleg
ógn.
„Eftirspurnin er nokkru meiri en við
reiknuðum með,“ segir Bryndís. „Við gerð-
um ráð fyrir 30-50. Við ráðfærðum okkur
við HIV-samtökin sem töldu líklegt að
talan yrði um 70. Nú höfum við skimað 64
og símtölum, sem voru mörg helstu sum-
arleyfismánuðina, fækkar,“ segir Bryndís.
Í ljós komi hverjir haldi áfram lyfjameð-
ferðinni.
„Sumum hentar ekki að taka lyf á
hverjum degi. Sumir fara í fast samband
og þetta er ekki ætlað fyrir þá. Ekki einu
sinni fyrir þann sem er með HIV-smit-
uðum sem er á lyfjum og mælist með 0 í
veirumagni.“
Ríkið greiðir um 66.000 kr fyrir hvern
mánaðarskammt af samheitalyfi Truvada
sem inniheldur emtricitabine/tenofovir.
Miðað við þær forsendur kostar þetta hátt
í 800.000 krónum á ári fyrir hvern og einn,
en mönnum er ekki ætlað að vera á lyfinu
árum saman.
„Þetta er hagstæðara en að vera með
einstakling, allt frá tvítugu, í um 200.000
króna lyfjameðferð á mánuði alla ævi
vegna HIV. Mín tilfinning er sú að ef ég
kem í veg fyrir eitt til tvö smit á ári sé
tilgangi okkar náð. Ég er mjög hlynnt lyfi
í forvarnarskyni gegn HIV,“ segir Bryndís
sem væntir þess að lyfið verði ódýrara
með fleiri útboðum. „Nú þegar hafa tveir
ungir menn sem hugðust fara þessa leið
greinst með HIV-smit. HIV er raunveruleg
ógn við þennan hóp.“
Spurð um andstöðu segist hún ekki
hafa orðið vör við hana opinberlega hér
á landi. En í aðdraganda þess að Banda-
ríkjamenn hófu fyrstir að nota þetta lyf
Bryndís Sigurðardóttir
ræðir við Læknablaðið um
forvarnarlyf gegn HIV á
skrifstofu sinni í turninum
Landspítala í Fossvogi.
Myndir/gag