Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Oct 2018, Page 43

Læknablaðið - Oct 2018, Page 43
skammta (Recommended Daily Dose; RDD) á ársgrundvelli helstu bisfosfónata sem hafa verið á markaði á Íslandi síð- astliðna tvo áratugi. Eftir 2009 verður athyglisverð breyting, annars vegar flyst meginnotkunin yfir á alendrónat (bæði frumlyf og samheitalyf), en á sama tíma dregur úr ávísuðum skömmtum. Undir- liggjandi orsakir þessa eru vafalaust fjölmargar. Þar mætti meðal annars nefna stjórnsýslu ákvarðanir um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga, en einnig aukna umræðu um aukaverkanir þessa lyfjaflokks sem tengjast óeðlilegum beinbrotum í lærlegg og beindrepi í kjálka. Ef rýnt er í afgreidda RDD á hvern einstakling kemur fram að 47-62% þessara einstaklinga fá minna en 80% af ráðlagðri ársnotkun á hverju 12 mánaða tímabili. Þannig eru augljós merki þess að meðferðarheldni íslenskra sjúk- linga sé ábótavant eins og einnig hefur verið lýst í nágrannalöndunum. Hvernig er þessu farið á hinum Norð- urlöndunum? Á mynd 2 sést fjöldi karla og kvenna á hverja 1000 íbúa á Íslandi og í Svíþjóð, Noregi og Danmörku sem fá bisfosfónöt samkvæmt upplýsingum úr lyfjagagnagrunnum þessara landa. Þar kemur fram að fjöldi íslenskra karla sem fær bisfosfónöt er tæplega 2/1000 árið 2003 og fer hæst í rúma 4/1000 karla á árunum 2010 til 2013 en fækkar eftir það. Nor- rænum körlum sem fá bisfosfónöt fjölgar hins vegar hægt og bítandi og er mesta fjölgunin í Danmörku þar sem 6/1000 fá meðferð árið 2016. Hvað íslensku konurnar varðar fá rúmlega 12/1000 bisfosfónöt 2003 og fjöldi þeirra nær hámarki eins og hjá körlunum á árunum 2010-2012 þegar um 20/1000 kvenna eru meðhöndlaðar með bisfosfónötum, en fer síðan fækkandi til ársins 2017. Sömu tilhneigingu er að sjá í Noregi og Svíþjóð en í Danmörku fjölgar konum á bisfosfónatmeðferð úr 12/1000 árið 2003 í rúmlega 28/1000 árið 2012 og fækkar ekki eftir það. Hvernig önnur bein- verndandi lyf, eins og denosumab og ter- iparatid eru notuð væri einnig áhugavert að skoða nánar. Ofannefndar tölur gefa sterklega til kynna að hægt sé að bæta beinverndandi meðferð hér á landi svo um munar, bæði með tilliti til fjölda einstaklinga sem fá bisfosfónöt vegna aukinnar áhættu á beinbrotum en einnig þarf að tryggja betri meðferðarheldni meðal þeirra sem hefja meðferð með bisfosfónötum. Frekari rann- sókna er þó þörf áður en unnt er að gefa skýr tilmæli til lækna, en í millitíðinni geta læknar nýtt sér klínísk stuðnings- tæki á borð við FRAX12 og BeinRáð13,14 til að meta þörf á meðferð fyrir einstaklinga með sögu um beinbrot af völdum bein- þynningar. Heimildir 1. Hiligsmann M, Evers SM, Ben Sedrine W, Kanis JA, Ramaekers B, Silverman S, et al. A systematic review of cost-effectiveness analyses of drugs for postmenopausal osteoporosis. Pharmacoeconomics 2015;33:205-24. 2. Kanis JA, McCloskey EV, Johansson H, Strom O, Borgstrom F, Oden A. National Osteoporosis Guideline Group. Case finding for the management of osteoporosis with FRAX-assessment and intervention thresholds for the UK. Osteoporos Int 2008; 19:1395-408. 3. Tosteson AN, Melton LJ, Dawson-Hughes B, Baim S, Khosla S, Lindsay RL, et a. National Osteoporosis Foundation Guide Committee. Cost-effective osteoporosis treatment thresholds: the United States perspective. Osteoporos Int 2008; 19: 437-47. 4. Lippuner K, Johansson H, Borgstrom F, Kanis JA, Rizzoli R. Cost-effective intervention thresholds against osteoporotic fractures based on FRAX (R) in Switzerland. Osteoporosis Int 2012; 23: 2579-89. 5. Kanis JA, Johnell O, De Laet C, Johansson H, Oden A, Delmas P, et al. A meta-analysis of previous fracture and subsequent fracture risk. Bone 2004; 35: 375-82. 6. beinvernd.is/gripum-brotin/ - september 2018. 7. Sigurðsson G, Siggeirsdóttir K, Jónsson BY, Mogensen B, Guðmundsson EF, Aspelund T, et al. Yfirlitsgrein. Úr gögnum Hjartaverndar: Nokkur atriði um faraldsfræði og áhættumat beinbrota á Íslandi. Læknablaðið 2017; 103: 423-8. 8. Magnusson KA, Gunnarsson B, Sigurðsson GH, Mogensen B, Ólafsson Y, Kárason S. Meðferð og afdrif sjúklinga með mjaðmabrot. Læknablaðið 2016; 102: 119-23. 9. iofbonehealth.org/europe-guidelines - september 2018. 10. Keshishian A, Boytsov N, Burge R, Krohn K, Lombard L, Zhang X, et al. Examining the treatment gap and risk of subsequent fractures among females with a fragility fract- ure in the US Medicare population. Osteoporos Int 2017; 28: 2485-94. 11. Caro JJ, Ishak KJ, Huybrechts KF, Raggio G, Naujoks C. The impact of compliance with osteoporosis ther- apy on fracture rates in actual practice. Osteoporos Int 2004;15:1003-8. 12. sheffield.ac.uk/FRAX/tool.aspx?country=56 - september 2018. 13. osteoporosis.expeda.is/OsteoAdvisor/Public - september 2018. 14. expeda.is/access-cdss/ - september 2018. Mynd 2. Myndin sýnir fjölda karla og kvenna á hverja 1000 íbúa á Íslandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku sem fá bis- fosfónöt samkvæmt upplýsingum úr lyfjagagnagrunnum þessara landa á tímabilinu 2013 til 2017. LÆKNAblaðið 2018/104 471

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.