Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - okt 2018, Qupperneq 45

Læknablaðið - okt 2018, Qupperneq 45
LÆKNAblaðið 2018/104 473 Vísinda- og þróunarstyrkir FÍH Úthlutun 2018-2019 Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) úthlutar styrkj- um til vísinda- og þróunarverkefna á sviði heilsugæslu einu sinni á ári. Lögð er áhersla á það að styrkja rannsóknir í heimilis- lækningum, um heimilislækningar og á forsendum heimilislækning- anna sjálfra. Sjóðurinn veitir einnig sérstaka starfsstyrki til slíkrar vinnu. Umsóknir um úthlutun fyrir styrkárið 2018-2019 þurfa að berast sjóðnum fyrir 25. október næstkomandi. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina. Umsóknum ber að skila rafrænt til Margrétar Aðalsteinsdóttur (margret@lis.is), Læknafélagi Íslands, Hlíðasmára 8, 201 Kópa- vogi, ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum eða framgangs- skýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að ræða. Umsóknareyðublað er að finna á innra neti heimasíðu Læknafé- lagsins, www.lis.is, á heimasvæði FÍH. Starfsstyrkir geta verið allt frá einum til 12 mánaða í senn. Upp- hæð starfsstyrks miðast við fasta upphæð sem svarar til dag- vinnulauna styrkþega og er þá tekið mið af menntun og starfs- aldri, þó aldrei hærri en sem svarar dagvinnulaunum yfirlæknis í heilsugæslu. Sé styrkþegi starfandi á heilbrigðisstofnun innan heilsugæslunnar leggur stjórn Vísindasjóðsins til að styrkurinn verði greiddur beint til þeirrar stofnunar. Á móti komi að forsvars- menn stofnunarinnar sjái til þess að styrkþegi haldi áfram starfi sínu, óbreyttum launum og réttindum, en fái jafnframt tíma til að sinna rannsóknarstörfum á dagvinnutíma. Sjóðurinn veitir að jafn- aði starfsstyrki til verkefna sem krefjast minnst tveggja mánaða vinnu eða lengri tíma. Við mat á umsóknum er lögð áhersla á að rannsóknarverkefnið sé á forsendum heilsugæslunnar. Sé um vísindaverkefni að ræða er einnig lögð áhersla á tengsl rannsakenda við heimilislæknisfræði Háskóla Íslands eða aðra akademíska háskólastofnun í heimilis- lækningum. Nánari upplýsingar veitir Emil L. Sigurðsson (emilsig@hi.is) Stjórn Vísindasjóðs FÍH Aðalfundur Læknafélags Íslands 2018 verður haldinn 8. og 9. nóvember í Hlíðasmára í Kópavogi

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.