Læknablaðið - okt 2018, Qupperneq 48
476 LÆKNAblaðið 2018/104
Ritstjórnir norrænu læknablaðanna hafa
með sér einskonar bandalag og hittast
einu sinni á ári til að bera saman sín
blöð og bækur. Í ár var finnska lækna-
blaðið, Lääkärilehti, gestgjafinn.
Allir þátttakendur eru á einu máli um
mikilvægi þess að hittast og ná að ræða
við fólk í sömu sporum. Í þessu samhengi
er Ísland auðvitað litla systirin einsog
alltaf, og hin blöðin eru öll eldri en Lækna-
blaðið, stærri, hafa mun meiri mannafla,
prenta fleiri tölublöð á ári og í mun stærra
upplagi.
Þó er ýmislegt sameiginlegt með
blöðunum: Læknafélögin í hverju landi
eru eigendur og útgefendur blaðanna,
áskrifendur eru kröfuharðir læknar, aðrir
lesendur eru á höttunum eftir öðru og
sjúklingavænna efni, þau þurfa að vera á
tánum í peningamálum, netið gefur þeim
litlar sem engar tekjur og öll halda þau
kúrsi með prentuðum blöðum. Auglýs-
ingum fækkar heldur og Svíar hafa farið
þá leið að halda stóra fagfundi með lækn-
um til að ná vopnum sínum. Flest blöðin
vinna meira úr því efni sem liggur fyrir
og er burðarás allra blaðanna, það eru
fræðigreinar. Það er efnið sem fjölmiðlar
og almenningur sækist mest eftir, og úr
þeim efniviði má ná fleiri vinklum og
útbúa fleira sem hægt er nota. Þetta þýðir
að það þarf að trúa meira á þetta ritrýnda
efni, og þá þarf að leggja meiri áherslu á
gæðin fremur en fjölda greinanna.
Nútíminn krefst meiri sýnileika og
hann er í boði á vefsíðum, feisbúkk, twitt-
er, instagram og eftir nýjum hraðbrautum
til lesenda, en bæði norska og danska blað-
ið höfðu nýlega gert könnun sem leiddi í
ljós að þá ánægjulegu staðreynd að 94%
af þeirra læknum lesa sín læknablöð, og
megnið af þeim les prentútgáfuna fyrst
og fremst. Og það eru líka mun fleiri en
bara læknar sem lesa blaðið, lesendur eru
æ fleiri sögðu Danirnir. Rafræna útgáfan
er notuð meira til uppflettinga og til að
renna yfir fyrirsagnir.
Öll blöðin koma mikið við sögu í fjöl-
miðlaumhverfinu í sínu landi, til þeirra er
mikið vitnað og þau hafa tiltrú og traust
annarra, og norska læknablaðið var meira
að segja útnefnt tímarit ársins í Noregi
2018. Í útgáfuheiminum hefur það sýnt
sig að vaxandi áhugi er meðal almenn-
ings á fræðilegu efni, efni sem stutt er af
rannsóknum og heimildum. Sama gildir
um útvarp og sjónvarp þar sem efni af
þessum toga er eftirsótt, og sem lítið dæmi
má nefna að á RIFF, kvikmyndahátíðinni
í Reykjavík sem haldin verður innan
skamms, verða sýndar fleiri heimildar-
myndir en nokkru sinni fyrr.
Eftir stendur að burðarásinn í öllum
blöðunum er ritrýnt efni sem dofnar ekki
og ástæða er til að vinna úr með tiltækum
leiðum nútímans.
Fundur
ritstjórna
norrænu
læknablaðanna
■ ■ ■ Védís Skarphéðinsdóttir
Myndin var tekin á fundi nor-
rænu ritstjórnanna í Helsinki
um daginn.
Mynd/ Heli Mikkola.
Fyrsti fundur haustsins verður miðvikudaginn 3. október. Þá mun
félagi okkar og læknir Ólafur Jónsson flytja erindi sem hann nefnir
,,Uppreisnin á Bounty, vopnuðu skipi hans hátignar Georgs Breta-
konungs, í Kyrrahafi árið 1789.“
Næsti fundur verður miðvikudaginn 7. nóvember. Þá mun Þor-
valdur Gylfason prófessor fjalla um „Skáldið og persónuna Einar
Benediktsson“.
Síðasti fundur fyrir áramót verður miðvikudaginn 5. desember.
Þá mun Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur og prófessor fjalla um „Eld-
gos í Öræfajökli“.
Um fundi öldungadeildar
Allir læknar sem náð hafa sextugsaldri eru velkomnir í okkar hóp
samkvæmt lögum öldungadeildar Læknafélags Íslands. Vonumst við
til að sjá sem flesta á fundum okkar, bæði verðandi félaga og skráða
félaga í deildinni. Fundirnir eru haldnir kl. 16.00 fyrsta miðvikudag
hvers mánaðar að Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Hálftíma fyrir fund er boðið upp á kaffi og vínarbrauð meðan
félagar og gestir ræða saman og rifja upp gömlu góðu dagana.
Kristófer Þorleifsson, formaður öldungadeildar
Dagskrá öldungadeildar haustið 2018