Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2019/105 343
L Ö G F R Æ Ð I 3 3 . P I S T I L L
Læknar eru hvattir til að koma ábendingum
um efni á framfæri við ritstjórn eða pistlahöfund.
Dögg
Pálsdóttir
lögfræðingur
Læknafélags Íslands
Dogg@lis.is
Þungunarrof og réttur
heilbrigðisstarfsmanna
til að skorast undan störfum
Nýlega samþykkti Alþingi lög um þung-
unarrof nr. 43/2019. Markmið laganna er
að tryggja sjálfsforræði kvenna sem óska
eftir þungunarrofi. Helstu nýmæli frá
eldri lögum um sama efni, sem gilt hafa
frá árinu 1975 eru þau að konu er nú veitt
fullt ákvörðunarvald um það hvort hún
elur barn fram að lokum 22. viku þungun-
ar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki
þeim vilja hennar. Áfram er áhersla lögð
á að þungunarrof skuli framkvæmt eins
snemma og mögulegt er, helst fyrir lok 12.
viku þungunar. Eftir lok 22. viku þungun-
ar er einungis heimilt að framkvæma
þungunarrof ef lífi konunnar er stefnt í
hættu við áframhaldandi þungun eða ef
fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar.
Þó frumvarpið um þungunarrof hafi
verið samþykkt af meirihluta Alþingis eru
enn skiptar skoðanir í samfélaginu um
að lögfesta skilyrðislausan rétt konu til
að rjúfa þungun fram að lokum 22. viku.
Ýmsum þykir að þær breytingar sem í hin-
um nýju lögum felast hefðu þurft meiri al-
menna umræðu, ekki síst um það hvenær
líta eigi svo á að fóstrið eigi sjálfstæðan
rétt til lífs. Siðfræðistofnun Háskóla Ís-
lands vék sérstaklega að mikilvægi þessa
í umsögn sinni og telur Siðfræðistofnun
varasamt að heimila þungunarrof allt til 22.
viku því þá getur fóstur verið orðið lífvænlegt
utan líkama móður.1 Fyrir liggur að hvergi á
Norðurlöndunum er svo rúmur frestur til
þungunarrofs.
Í nefndaráliti meiri hluta velferðar-
nefndar segir að við umfjöllun nefndar-
innar hafi komið fram sú spurning hver
staða heilbrigðisstarfsmanns væri þegar
kona óskar eftir þungunarrofi þrátt fyrir
ráðleggingar læknis um annað eða þegar
framkvæmd þungunarrofs stangast á við
trúarleg eða siðferðileg viðhorf hans.2
Frá gildistöku læknalaga nr. 53/1988
hafa verið ákvæði í lögum sem heimila
læknum að skorast undan störfum sem
stangast á við trúarleg eða siðferðisleg
viðhorf hans séu störfin ekki framkvæmd
í lækningaskyni. Í athugasemdum með
frumvarpi því sem varð að læknalögunum
frá 1988 segir að mikilvægt sé að velta
fyrir sér spurningunni um það hvort og í
hvaða tilvikum lækni sé heimilt að skorast
undan að framkvæma aðgerð. Fara beri
mjög varlega í skýringar en almennt sé
viðurkennt, þó það styðjist ekki við ótví-
ræðan lagabókstaf, að læknar geti aldrei
skorast undan að framkvæma aðgerð sé
um að ræða aðgerð í lækningaskyni. Það
sé hins vegar viðurkennt að læknar geti
skorast undan að framkvæma aðgerð af
trúarlegum eða siðferðislegum ástæðum
sé markmið aðgerðarinnar ekki lækning
í þröngri merkingu þess orðs, t.d. ófrjó-
semisaðgerð eða fóstureyðing af félags-
legum ástæðum.3 Frá því að þessi heimild
var lögfest í læknalögunum frá 1988 hefur
hún verið talin gilda um allar löggiltar
heilbrigðisstéttir.
Sambærilegt ákvæði er því að finna
í 14. gr. laga um heilbrigðisstarfmenn
nr. 34/2012 þar sem segir að heilbrigðis-
starfsmanni sé heimilt að skorast undan
störfum sem stangast á við trúarleg eða
siðferðileg viðhorf hans, enda sé tryggt
að sjúklingur fái nauðsynlega heilbrigðis-
þjónustu.
Í áðurnefndu meirihluta nefndaráliti
er bent á 14. gr. laga um heilbrigðisstarfs-
menn. Þar er til viðbótar skýrt frá því að í
umræðunni um þetta í nefndinni hafi ver-
ið bent á að fæðing barns væri í öllum tilvik-
um hættulegri en þungunarrof og því væru rök
heilbrigðisstarfsmanns fyrir því að víkjast und-
an því að framkvæma þungunarrof með vísan
til þess að lífi konu væri stefnt í hættu afar tak-
mörkuð.4 Meirihluti velferðarnefndar tekur
undir þetta sjónarmið í nefndarálitinu
án þess þó að vísa til neinna rannsókna
fullyrðingunni til stuðnings. Meirihlutinn
bendir um leið á að erfitt geti verið að skikka
heilbrigðisstarfsmann til þess að veita þjónustu
sem stangast á við trúarleg eða siðferðileg við-
horf hans.5 Vegna þessa ákvað meirihluti
velferðarnefndar að bæta nýrri málsgrein
við 4. gr. laganna um það að skorist heil-
brigðisstarfsmaður undan framkvæmd
þungunarrofs á grundvelli 14. gr. laga um
heilbrigðisstarfsmenn skuli tryggt að kona
njóti réttinda skv. 1. mgr. sömu greinar.
Ekki er nánar skýrt hvorki í nefndaráliti
né framsöguræðu framsögumanns vel-
ferðarnefndar með hvaða hætti það skuli
gert. Líklega er því treyst að á hverjum
tíma séu starfandi heilbrigðisstarfsmenn
sem fyrirvaralaust eru tilbúnir til að fram-
kvæma þungunarrof án tillits til ástæðna
fyrir þungunarrofi og jafnvel þó komið sé
að lokum 22. viku meðgöngu.
Í Codex Ethicus Læknafélags Íslands
segir í 1. mgr. 4. gr. Það er meginregla, að
lækni er frjálst að hlýða samvisku sinni og
sannfæringu. Hann getur, ef lög og úrskurð-
ir bjóða ekki annað, synjað að framkvæma
læknisverk, sem hann treystir sér ekki til að
gera eða bera ábyrgð á eða hann telur ástæðu-
laust eða óþarft. Nefndarálit meirihluta
velferðarnefndar um að fæðing sé í öllum
tilfellum hættumeiri en þungunarrof
breytir þar engum um. Lög um þungunar-
rof öðlast gildi 1. september nk. Það er því
mikilvægt að læknar og aðrir heilbrigðis-
starfsmenn þekki vel rétt sinn gagnvart
framkvæmd þungunarrofs til að fylgja
samvisku sinni og sannfæringu.
1. Umsögn Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, bls. 5.
Um sögn in er aðgengileg á: https://www.althingi.is/altext/
erindi/149/149-4359.pdf
2. Nefndarálit frá meiri hluta velferðarnefndar um frum-
varp til laga um þungunarrof, 393. mál, þskj. 1402.
Nefndarálitið er aðgengilegt á: https://www.althingi.is/
altext/149/s/1402.html.
3. Frumvarp til læknalaga, 116. mál, þskj. 120, bls. 11.
Vefútgáfa Alþingistíðinda: https://www.althingi.is/altext/
110/s/pdf/0120.pdf.
4. Sjá nefndarálitið.
5. Sjá nefndarálitið.
Heimildir
Lög um þungunarrof nr. 43/2019.
Frumvarp til laga um þungunarrof, 393. mál, þskj. 521. Vef-
útgáfa Alþingistíðinda sjá: https://www.althingi.is/altext/149/
s/0521.html.
Siðareglur lækna. Aðgengilegar á https://www.lis.is/is/sid-
fraedi/codex-ethicus/codex.