Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 39

Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2019/105 347 Spítalinn hefur verið látinn halda fullum afköstum í gegnum breytingarnar og því meira af starfsfólki og kostnaði sem hægt er að taka á,“ segir hann og vonar að horft verði til reynslu Dana, Norðmanna og þeirra í Svíþjóð við uppbyggingu Landspítalans. Tækifærið sem nú skapist verði nýtt til að breyta hlutum. „Uppbygging nýja Landspítalans er náttúrulega alltof, alltof sein og gerir kerfið óskilvirkara og dýrara. Við töpum á hverju ári, kannski ekki gæðalega en ör- ugglega kostnaðarlega,“ segir hann en vill að öðru leyti lítið tjá sig um stöðuna hér heima enda lítið sem ekkert starfað heima í rúm þrjú ár. En hvaða reynslu nýtir hann nú úr starfinu sem forstjóri Landspítalans? „Aðallega er að vera með opna stjórn- sýslu og láta upplýsingarnar flæða eins og hægt er. Á Íslandi skrifaði ég alla föstudaga smá pistil sem við köllum bréf hérna. Svo set ég á ytri heimasíðuna blogg um stöðuna og upplýsi hvað við þurfum að gera, hvað er gott og hvað ekki,“ segir hann. Markmiðið sé að vera opinn, hreinn og beinn í þeim ákvörðunum sem hann tekur. Ólík umgjörð milli landanna „Ég hef einnig mikla trú á að færa ákvörðunatökuna og valdið eins nálægt gólfinu og hægt er og það ætlum við að gera án þess að missa tökin,“ segir hann. „Þegar ég kom að Landspítalanum voru allt að fimm til sex lög af stjórnendum. Þegar ég fór voru þau eiginlega bara þrjú,“ segir hann. Aðstæðurnar séu ekki sam- bærilegar. „Við vorum í djúpri krísu á Íslandi þegar ég tók við þar og meirihluta tímans sem ég varði þar. Þá þurfti að telja hverja krónu og fara til ríkisstjórnarinnar til að fá „Uppbygging nýja Landspít- alans er náttúrulega alltof, alltof sein og gerir kerfið óskilvirkara og dýrara. Við töpum á hverju ári, kannski ekki gæðalega en örugglega kostnaðarlega.“ Björn Zoëga, forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð, segir hægt að breyta miklu í rekstri sjúkrahússins. Hann voni að horft verði til Norðurlandanna og tekið til í rekstri Landspítalans samhliða uppbyggingunni. Mynd/Karolinska Spurður um siðferðið vegna starfa fyrir Ajman Eftir að Björn var ráðinn sem forstjóri Karolinska fjallaði Dagens Nyheter, líkt og Stundin greindi frá, um stjórnarsetu hans fyrir sænska heilbrigðisfyrirtækið Global Health Partner. Fyrirtækið rekur öll sjúkrahús í ríkiseigu í Ajman í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum þar sem lög gera ráð fyrir að konur séu teknar höndum fyrir barneignir utan hjónabands. Björn segir við Læknablaðið að samkvæmt lögum landsins hafi heilbrigðis- starfsmönnum borið að afhenda yfirvöldum þær konur sem eignuðust börn utan hjónabands. Áður en sænska fyrirtækið hafi komið að rekstrinum hafi konur verið handjárnaðar við sjúkrarúmin í fæðingu. „Við sem betur fer náðum að breyta þessu svo að þær konur sem svona var ástatt um fengu sömu meðferð og aðrar mæður. Síðan tók lögreglan við þeim þegar með- ferðinni á sjúkrahúsinu lauk,“ segir hann. Töluvert hafi verið rætt um málið í Svíþjóð og hann spurður hvort hann myndi standa aftur eins að málum. „Ég sagði eins og er að við gerðum ótrúlegt gagn þarna, bæði fyrir þessar aumingja mæður sem lentu í þessum hremmingum og fyrir aðra sjúklinga. Við gát- um bjargað mannslífum með breytingum á sjúkrahúsinu,“ segir hann. Hver og einn verði að spyrja sig hvort betra sé að sleppa þátttöku eða að reyna breyta ástandinu til hins betra. Björn segir eðlilegt að málið hafi komið upp í fjölmiðlum ytra þar sem hann sé að taka við opinberu embætti. Margar erfiðar ákvarðanir bíði forstjóra Karolinska. „Hann ber ábyrgðina.“ leyfi til að kaupa eitt og eitt tæki.“ Stemn- ingin sé allt önnur í Svíþjóð. „Meginpartur sænskra pólitíkusa veit hvert hann vill fara og hvernig þeir vilja þróa kerfið til næstu fjögurra ára,“ segir hann. Menn haldi sig við stefnuna, þótt hún sé ekki endilega skýr. En hvað sér hann fyrir sér að gegna starfi forstjóra lengi? „Það er ómögulegt að segja,“ segir hann. Síðustu forstjórar Karolinska áður en Birgir Jakobsson hafi tekið við, hafi að meðaltali gegnt starfinu í níu mánuði. „Ég þarf að sjá hvernig gengur yfir höfuð. Ef ég finn fyrir því að ég hafi ekki traust, hvort sem það er frá eigendunum, pólítíkusunum eða þá helstu samstarfs- aðilum, held ég að ég hangi ekki á þessu eins og hundur á roði heldur reyni að finna mér eitthvað annað að gera.“

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.