Læknablaðið - Aug 2019, Page 39
LÆKNAblaðið 2019/105 347
Spítalinn hefur verið látinn halda fullum
afköstum í gegnum breytingarnar og
því meira af starfsfólki og kostnaði sem
hægt er að taka á,“ segir hann og vonar að
horft verði til reynslu Dana, Norðmanna
og þeirra í Svíþjóð við uppbyggingu
Landspítalans. Tækifærið sem nú skapist
verði nýtt til að breyta hlutum.
„Uppbygging nýja Landspítalans er
náttúrulega alltof, alltof sein og gerir
kerfið óskilvirkara og dýrara. Við töpum
á hverju ári, kannski ekki gæðalega en ör-
ugglega kostnaðarlega,“ segir hann en vill
að öðru leyti lítið tjá sig um stöðuna hér
heima enda lítið sem ekkert starfað heima
í rúm þrjú ár. En hvaða reynslu nýtir hann
nú úr starfinu sem forstjóri Landspítalans?
„Aðallega er að vera með opna stjórn-
sýslu og láta upplýsingarnar flæða eins
og hægt er. Á Íslandi skrifaði ég alla
föstudaga smá pistil sem við köllum bréf
hérna. Svo set ég á ytri heimasíðuna blogg
um stöðuna og upplýsi hvað við þurfum
að gera, hvað er gott og hvað ekki,“ segir
hann. Markmiðið sé að vera opinn, hreinn
og beinn í þeim ákvörðunum sem hann
tekur.
Ólík umgjörð milli landanna
„Ég hef einnig mikla trú á að færa
ákvörðunatökuna og valdið eins nálægt
gólfinu og hægt er og það ætlum við að
gera án þess að missa tökin,“ segir hann.
„Þegar ég kom að Landspítalanum voru
allt að fimm til sex lög af stjórnendum.
Þegar ég fór voru þau eiginlega bara þrjú,“
segir hann. Aðstæðurnar séu ekki sam-
bærilegar.
„Við vorum í djúpri krísu á Íslandi
þegar ég tók við þar og meirihluta tímans
sem ég varði þar. Þá þurfti að telja hverja
krónu og fara til ríkisstjórnarinnar til að fá
„Uppbygging nýja Landspít-
alans er náttúrulega alltof,
alltof sein og gerir kerfið
óskilvirkara og dýrara. Við
töpum á hverju ári, kannski
ekki gæðalega en örugglega
kostnaðarlega.“
Björn Zoëga, forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð, segir hægt að breyta miklu í rekstri sjúkrahússins. Hann
voni að horft verði til Norðurlandanna og tekið til í rekstri Landspítalans samhliða uppbyggingunni. Mynd/Karolinska
Spurður um siðferðið vegna starfa fyrir Ajman
Eftir að Björn var ráðinn sem forstjóri Karolinska fjallaði Dagens Nyheter, líkt og
Stundin greindi frá, um stjórnarsetu hans fyrir sænska heilbrigðisfyrirtækið Global
Health Partner. Fyrirtækið rekur öll sjúkrahús í ríkiseigu í Ajman í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum þar sem lög gera ráð fyrir að konur séu teknar höndum fyrir
barneignir utan hjónabands.
Björn segir við Læknablaðið að samkvæmt lögum landsins hafi heilbrigðis-
starfsmönnum borið að afhenda yfirvöldum þær konur sem eignuðust börn utan
hjónabands. Áður en sænska fyrirtækið hafi komið að rekstrinum hafi konur verið
handjárnaðar við sjúkrarúmin í fæðingu.
„Við sem betur fer náðum að breyta þessu svo að þær konur sem svona var ástatt
um fengu sömu meðferð og aðrar mæður. Síðan tók lögreglan við þeim þegar með-
ferðinni á sjúkrahúsinu lauk,“ segir hann. Töluvert hafi verið rætt um málið í Svíþjóð
og hann spurður hvort hann myndi standa aftur eins að málum.
„Ég sagði eins og er að við gerðum ótrúlegt gagn þarna, bæði fyrir þessar
aumingja mæður sem lentu í þessum hremmingum og fyrir aðra sjúklinga. Við gát-
um bjargað mannslífum með breytingum á sjúkrahúsinu,“ segir hann. Hver og einn
verði að spyrja sig hvort betra sé að sleppa þátttöku eða að reyna breyta ástandinu til
hins betra.
Björn segir eðlilegt að málið hafi komið upp í fjölmiðlum ytra þar sem hann sé
að taka við opinberu embætti. Margar erfiðar ákvarðanir bíði forstjóra Karolinska.
„Hann ber ábyrgðina.“
leyfi til að kaupa eitt og eitt tæki.“ Stemn-
ingin sé allt önnur í Svíþjóð.
„Meginpartur sænskra pólitíkusa veit
hvert hann vill fara og hvernig þeir vilja
þróa kerfið til næstu fjögurra ára,“ segir
hann. Menn haldi sig við stefnuna, þótt
hún sé ekki endilega skýr.
En hvað sér hann fyrir sér að gegna
starfi forstjóra lengi? „Það er ómögulegt
að segja,“ segir hann. Síðustu forstjórar
Karolinska áður en Birgir Jakobsson hafi
tekið við, hafi að meðaltali gegnt starfinu
í níu mánuði.
„Ég þarf að sjá hvernig gengur yfir
höfuð. Ef ég finn fyrir því að ég hafi ekki
traust, hvort sem það er frá eigendunum,
pólítíkusunum eða þá helstu samstarfs-
aðilum, held ég að ég hangi ekki á þessu
eins og hundur á roði heldur reyni að
finna mér eitthvað annað að gera.“