Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 40
348 LÆKNAblaðið 2019/105
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Níu af hverjum tíu barna-, röntgen- og
heimilislæknum í Noregi telja að oflækn-
ingar séu stundaðar í landinu. Átta af tíu
telja þær vandamál í Noregi og tveir af
hverjum þremur segjast taka þátt í oflækn-
ingum. Þetta eru niðurstöður könnunnar
norska læknafélagsins, Legeforeningen,
sem það réðst í að gera í aðdraganda þess
að ákveðið var að taka þátt í herferð á
alþjóðavísu um snjallt, skynsamlegt val í
lækningum. Alls voru 1.500 læknar spurð-
ir.
„Meira er ekki alltaf betra,“ segir Stefán
Hjörleifsson, læknir á háskólasjúkrahús-
inu í Björgvin í Noregi, og vísar þar til
slagorðs norska læknafélagsins sem ýtti
herferðinni úr vör í september. Stefán er
formaður nefndar norska læknafélagsins
sem heldur utan um átakið þar í landi.
Íslenskir læknar í herferð
Læknafélag Íslands íhugar nú að feta í
fótspor norska læknafélagsins og þar með
læknafélaga og skyldra fagfélaga í tuttugu
ríkjum og fara í herferð gegn oflækning-
um. Markmiðið er að vernda heilsu fólks
og forða því frá skaða og óþarfa óþægind-
um.
Stefán telur ólíklegt annað en að of-
lækningar séu veruleiki hér á landi rétt
eins og í Noregi. „Norsku læknarnir telja
helstu ástæðu oflækninga þrýsting og
óþarfa tilvísanir heimilislækna til sér-
fræðinga,“ segir Stefán. „Þá telja læknar
að þeir geri þetta til að forðast óvissu og
af því að kollegarnir ætlist til þess.“ Hann
bendir á að meðferðarleiðbeiningar leggi
einnig meiri áherslu á hvað eigi að gera
en hvað eigi ekki að gera.
„Þær eru sjaldnast skrifaðar með það
í huga að útskýra fyrir mönnum hvenær
rétt sé að sleppa því að gera hlutina.
Tímaskortur og fjárhagslegar ástæð-
ur voru einnig nefndar meðal helstu
ástæðna oflækninga norskra lækna,“ segir
Stefán. Áhugavert sé að læknarnir telji
þrýstinginn vega þyngra en fjármögnun
heilbrigðisþjónustunnar.
Óþarfi að gera of mikið
Stefán segir ólíka nálgun milli héraða hafa
gefið sterka vísbendingu um oflækningar í
Noregi því í sumum þeirra hafi verið gert
tíu til tuttugufalt meira fyrir sjúklinga en
í öðrum.
„Þegar þetta var gert opinbert fóru
læknafélögin að sýna þessari herferð
áhuga,“ segir Stefán. Hann var á lokametr-
um maímánaðar gestur stjórnar Læknafé-
lagsins. Á fundinum kom fram að margir
heimilislæknar finni að þrýstingurinn á
oflækningar sé að aukast hér á landi. Það
hafi gerst með tilkomu samfélagsmiðla og
ýmissa lífsstílshópa.
„Já, það er rétt að óraunhæfar
væntingar magnast stundum upp í af-
mörkuðum hópum. Stundum eru það
gróðaöfl sem hvetja til oflækninga en svo
verðum við læknar einnig að líta í eigin
barm,“ segir Stefán. „Við getum gert meira
og meira, en það er ekki alltaf til bóta.
Stundum er einfaldlega of mikið af því
góða.“ Fólk geti orðið fyrir skaða við of-
lækningar.
„Stundum valda rannsóknir óþarfa ótta
hjá fólki. Stundum finnst eitthvað sem
þurfti ekki að finna, stundum er fólk sett
í meðferð sem það þurfti ekki. Fólk hefur
fengið lyf sem það þurfti ekki eða farið í
aðgerðir að óþörfu.“
Stefán nefnir sem gott dæmi hvernig
viðhorf fólks til sýklalyfja hafi kollvarpast
á örfáum árum. Hér áður hafi börn fengið
sýklalyf við kvefi en nú hafi óttinn við
sýklaónæmi gert það að verkum að for-
eldrar forðist þau sem heitan eldinn. „Nú
vonar fólk að barnið þurfi ekki pensilín,“
segir hann. Þessi viðsnúningur sýni að
hægt er að koma í veg fyrir oflækningar.
„Við getum nefnt PPI, prótondælu-
hamla fyrir ungabörn þegar þau gubba
upp móðurmjólkinni, sem dæmi. Sum fá
aukaverkanir af þessum lyfjum. Ef hins
vegar börnin braggast og vaxa er óþarfi að
„Meira er ekki alltaf betra“
Snjallt val í heilbrigðiskerfinu
Læknafélög í tuttugu ríkjum hafa ráðist í verkefnið Choosing Wisely til að hvetja
sjúklinga og aðstandendur þeirra, og ekki síst lækna, til að hverfa frá oflækningum
og óþarfa meðferðum á sjúklingum. Stefán Hjörleifsson, heimilislæknir í Haukeland
í Noregi, er í framvarðasveit verkefnisins þar; Gjör kloke valg. Læknafélag Íslands
íhugar að slást í hópinn. Oflækningar séu vandamál hér sem þar.