Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 3

Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 3
Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1850 Prentun, bókband og pökkun á Íslandi Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 16.900,- m. vsk. Lausasala 1690,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSe- arch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2019/105 311 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is „Ef maður hefur þetta í sér er vert að láta vaða,“ segir Ari Jóhannesson, lyflæknir og rithöfundur. Þriðja bókin hans og önnur skáldsagan, Urðar- máni, er komin út. Sögusviðið er Ísland á tímum spönsku veikinnar. Hann hefur náð að fylgja menntaskóladraumum sínum um að gerast rit- höfundur vel úr hlaði. „Ég held ég hafi farið að hugsa: Bíddu, ætlarðu að drepast án þess að gera nokkuð í þessu?“ svar- ar Ari spurður af hverju hann hafi ekki gripið í pennann fyrr en á sextugsaldri. Fyrsta bók hans, ljóðabókin Öskudagar, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2007. Skáldsagan Lífsmörk, sem fjallar um tilfinningaflækjur unga svæfingalæknisins Sölva Oddssonar, kom svo út 2014 og nú Urðarmáni. Ari segir fyrstu drögin að bókinni hafa verið gerð fyrir fjórum árum. „Ég hafði lesið Mánastein eftir Sjón og þyrsti að vita meira um þessa skelfi- legu drepsótt. Þá kviknaði löngun til að veita því áfram í skáldverki.“ Hann lýsir sögunni skemmtilega. Viðbrögð við drepsótt, fíknir, reiði og stéttakipting séu sum af stefjum sögunnar. Átök séu milli hefðbundinnar læknisfræði og alþýðulækninga og sérgæska og samhyggja takist á í viðbrögðunum við drep- sóttinni. Sagan sé í meginatriðum skáldsaga, en byggð á raunverulegum atburðum og persónum í kringum spönsku veikina. „Það þarf ekki mikla söguþekkingu til að sjá að önnur aðalpersónan Arngrímur Sigurðsson, dregur vissulega dám af þáverandi landlækni, Guðmundi Björnssyni, en ég breyti honum það mikið og skálda það mikið að ég taldi ekki verj- andi annað en að hann kæmi fram undir öðru nafni.“ Aðrir læknar haldi sínu nafni, eins og Þórður Thorodd- sen og nafni hans Sveinsson. Þá sé Jón Rósen kranz gerður að sögu manninum. En það eru þó ekki aðeins karlmenn í aðalhlutverki því hin aðalpersónan sé Katla, ung kona sem sækir um leyfi til ljósmóðurstarfa og truflar líf landlæknis meira en lítið. Ari segir að fyrir sögu Sjóns hafi verið merki- lega hljótt um spönsku veikina í skáldverkum. „Að vísu skrifaði Gunnar Gunnarsson skáldsögu um hana 1922 sem hét Sælir eru einfaldir, en hún er allt öðruvísi og minna um spönsku veikina en allt annað.“ Þögnin sé reyndar alþjóðlegt fyrir- bæri. „Þegar ég var að kynna mér hvað hefði verið skrifað um spönsku veikina í Evrópu og Banda- ríkjunum kom í ljós að það er þögn um hana mjög lengi og þótt þetta sé efni í ótal skáldsögur eru ekki margar sem gerast í þessari farsótt.“ Ari sér fyrir sér að skrifa meira eftir þessa þriðju bók sína en þó vart aðra skáldsögu. „Ég held ég taki til við ljóðið aftur. Maður sér fyrir endann á ljóði, en það er erfitt að sjá fyrir end- ann á skáldsögu þegar maður byrjar.“ Bera megi skáldsöguskrif og fjallgöngu saman. „Maður kemur upp á hæð og heldur að toppn- um sé náð, en þá birtist manni alltaf ný hæð þangað til maður loksins kemst á toppinn.“ Ari er ánægður með Urðarmána. „Ég er nú á því að þessi saga sé heildstæðari en sú fyrri, Lífsmörk,“ segir hann. „Ég hef reynt að læra af mistökum sem ég gerði í henni. Reynslan skilar sér.“ Vert að láta vaða svo draumarnir rætist ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Ari Jóhannesson hefur nú lokið við að skrifa sína þriðju bók. Tvær skáldsög- ur og ljóðabók eru að baki og vonast hann til þess að bæta fleirum í sarpinn í framtíðinni. Mynd/gag „Ég held ég taki til við ljóðið aftur. Maður sér fyrir endann á ljóði, en það er erfitt að sjá fyrir endann á skáldsögu þegar maður byrjar.“

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.