Læknablaðið - ágú. 2019, Blaðsíða 3
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Magnús Gottfreðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Elsa B. Valsdóttir
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Magnús Haraldsson
Sigurbergur Kárason
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Esther Ingólfsdóttir
esther@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1850
Prentun, bókband
og pökkun á Íslandi
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
16.900,- m. vsk.
Lausasala
1690,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og
geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo
sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki að hluta né í
heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar
(höfundar, greinarheiti og útdrættir) í
eftirtalda gagnagrunna: Medline (National
Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og
Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index (SciSe-
arch), Journal Citation Reports/Science
Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2019/105 311
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
„Ef maður hefur þetta í sér er vert að láta vaða,“
segir Ari Jóhannesson, lyflæknir og rithöfundur.
Þriðja bókin hans og önnur skáldsagan, Urðar-
máni, er komin út. Sögusviðið er Ísland á tímum
spönsku veikinnar. Hann hefur náð að fylgja
menntaskóladraumum sínum um að gerast rit-
höfundur vel úr hlaði.
„Ég held ég hafi farið að hugsa: Bíddu, ætlarðu
að drepast án þess að gera nokkuð í þessu?“ svar-
ar Ari spurður af hverju hann hafi ekki gripið í
pennann fyrr en á sextugsaldri. Fyrsta bók hans,
ljóðabókin Öskudagar, hlaut Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar árið 2007. Skáldsagan
Lífsmörk, sem fjallar um tilfinningaflækjur unga
svæfingalæknisins Sölva Oddssonar, kom svo út
2014 og nú Urðarmáni.
Ari segir fyrstu drögin að bókinni hafa verið
gerð fyrir fjórum árum. „Ég hafði lesið Mánastein
eftir Sjón og þyrsti að vita meira um þessa skelfi-
legu drepsótt. Þá kviknaði löngun til að veita því
áfram í skáldverki.“
Hann lýsir sögunni skemmtilega. Viðbrögð við
drepsótt, fíknir, reiði og stéttakipting séu sum af
stefjum sögunnar. Átök séu milli hefðbundinnar
læknisfræði og alþýðulækninga og sérgæska og
samhyggja takist á í viðbrögðunum við drep-
sóttinni. Sagan sé í meginatriðum skáldsaga, en
byggð á raunverulegum atburðum og persónum í
kringum spönsku veikina.
„Það þarf ekki mikla söguþekkingu til að sjá
að önnur aðalpersónan Arngrímur Sigurðsson,
dregur vissulega dám af þáverandi landlækni,
Guðmundi Björnssyni, en ég breyti honum það
mikið og skálda það mikið að ég taldi ekki verj-
andi annað en að hann kæmi fram undir öðru
nafni.“ Aðrir læknar haldi sínu nafni, eins og
Þórður Thorodd-
sen og nafni hans
Sveinsson. Þá sé Jón
Rósen kranz gerður
að sögu manninum.
En það eru þó ekki
aðeins karlmenn í aðalhlutverki því hin
aðalpersónan sé Katla, ung kona sem sækir um
leyfi til ljósmóðurstarfa og truflar líf landlæknis
meira en lítið.
Ari segir að fyrir sögu Sjóns hafi verið merki-
lega hljótt um spönsku veikina í skáldverkum.
„Að vísu skrifaði Gunnar Gunnarsson skáldsögu
um hana 1922 sem hét Sælir eru einfaldir, en hún
er allt öðruvísi og minna um spönsku veikina en
allt annað.“ Þögnin sé reyndar alþjóðlegt fyrir-
bæri.
„Þegar ég var að kynna mér hvað hefði verið
skrifað um spönsku veikina í Evrópu og Banda-
ríkjunum kom í ljós að það er þögn um hana
mjög lengi og þótt þetta sé efni í ótal skáldsögur
eru ekki margar sem gerast í þessari farsótt.“
Ari sér fyrir sér að skrifa meira eftir þessa
þriðju bók sína en þó vart aðra skáldsögu. „Ég
held ég taki til við ljóðið aftur. Maður sér fyrir
endann á ljóði, en það er erfitt að sjá fyrir end-
ann á skáldsögu þegar maður byrjar.“ Bera megi
skáldsöguskrif og fjallgöngu saman.
„Maður kemur upp á hæð og heldur að toppn-
um sé náð, en þá birtist manni alltaf ný hæð
þangað til maður loksins kemst á toppinn.“
Ari er ánægður með Urðarmána. „Ég er nú
á því að þessi saga sé heildstæðari en sú fyrri,
Lífsmörk,“ segir hann. „Ég hef reynt að læra af
mistökum sem ég gerði í henni. Reynslan skilar
sér.“
Vert að láta vaða
svo draumarnir rætist
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Ari Jóhannesson hefur nú lokið við að
skrifa sína þriðju bók. Tvær skáldsög-
ur og ljóðabók eru að baki og vonast
hann til þess að bæta fleirum í sarpinn
í framtíðinni. Mynd/gag
„Ég held ég taki til við ljóðið aftur.
Maður sér fyrir endann á ljóði, en það
er erfitt að sjá fyrir endann á skáldsögu
þegar maður byrjar.“