Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1987, Qupperneq 5

Hugur og hönd - 01.06.1987, Qupperneq 5
OVENJULEG HYRNA Abyggðasöfnum og Þjóðminja- safni er varðveittur margur merkilegur fatnaður frá gam- alli tíð, einkum ýmis sparifatnaður og sá sem meira hefur verið vandað til. En þó margt hafi góðu heilli verið sett á söfn eru víða til fágætir gamlir munir á heimilum, oft varðveittir i minningu þess sem átti, vann eða gaf. Þannig er um hyrnuna sem fjallað er um í þessari grein. Hyrnan er í eigu dótturdóttur þeirrar sem vann hana og átti, Valgerð- ar Gestsdóttur (1866—1945) frá For- sæti í Flóa. Valgerður mun hafa gert hyrnuna þegar hún var ung stúlka, svo að hún er nú orðin u.þ.b. 100 ára gömul. Hyrnan er að ýmsu leyti sérstök. í fyrsta lagi er hún hekluð, sem vafalítið hefur verið óvenjulegt á þeim tíma sem hún er unnin. Fyrsta fyrirsögn um hekl á íslensku mun hafa verið birt 1886 í bókinni Leiðarvísir til að nema ýmsar kvenn/egar hannyrðir. í öðru lagi er heklaðferðin fátíð hér á landi, þó ekki óþekkt (sjá Millipils í Hugur og hönd 1983). Lýsing á þessari aðferð er ekki í gömlu bókinni, en geta má þess að samkvæmt nýlegri danskri bók, Hækl- ing, Historie og teknik eftir Lis Paludan, er allmargt af elstu heklmun- um, varðveittum í Evrópu, unnir með þessari aðferð, taldir vera frá fyrri hluta 19. aldar. Loks má geta þess að lag hyrnunnar er allfrábrugðið því sem al- mennast hefur verið á prjónuðum hyrnum. Öll er hyrnan lítil. Endarnir eru ekki hnýttir aftur fyrir bak eins og venja var að setja á sig prjónaða hyrnu, heldur er snúra fest i hornið og henni smeygt í lykkjur á endunum, horn og endar hnýttir þannig saman á baki. Efnið í hyrnunni er fremur fínt, tvinnað band í fjórum litum. Rauð- gult, fjólublátt og svart í munstri, aðal- litur brúnn (e.t.v. mórautt litað í gula litnum). Um 36 lykkjur og 38 umferðir eru á hverjum 10 cm2 og stærðin er um 117 + 117 cm að neðan, 80+80 cm að ofan og hæð miðjunnar 34,5 cm. Aðferðin er fastahekl, gert þannig að farið er undir aftari lykkjuhelming og alltaf heklað frá réttu, þ.e.a.s. bandið slitið eftir hverja umferð og byrjað aftur frá sömu hlið. Munsturbekkur- inn er heklaður eftir rúðumunstri með tveimur litum samtimis, heklað yfir annað bandið á röngu. Þegar skipt er um lit er seinna bragð síðustu fasta- lykkju heklað með nýja litnum, sjá skýringarteikningu. Með því móti fást hrein skil milli reita. Til að fá hyrnuna til að sitja betur eru teknar úr nokkrar lykkjur á öxlum. I efri brúnina er svo hekluð ein umferð fastahekl með aðal- lit, en að neðan eru heklaðar smátung- ur, til skiptis svört og fjólublá, og síð- ast ein umferð keðjuhekl með rauðgulu í brúnina á þeim. En hvernig verður svo óvenjuleg hyrna til? Kemur hugmyndin úr Fló- anum eða hefur e.t.v. borist þangað uppskrift erlendis frá? Gaman væri að fá úr því skorið! Síðari tilgátuna styður tvennt. 1 fyrrnefndri danskri bók er birt mynd af hyrnu af dönsku safni sem er frá því um 1875—80. Hún er hekluð með sömu aðferð og hyrna Val- gerðar en með öðru munstri. Lagið er ekki ósvipað, en hún er með kögri. Annað sem gæti stutt tilgátu um birta uppskrift er að á Árbæjarsafni er varð- veitt hyrna með nákvæmlega sama munstri og hyrna Valgerðar, en í öðr- um litum. Lag, frágangur og stærð er svo til eins, og sömuleiðis handbragð- ið. Mjög fátæklegar heimildir eru skráðar um þessa hyrnu og ekkert um hvaðan hún kemur, gæti þess vegna verið unnin á sömu slóðum og hin og jafnvel af sömu höndum. Báðar þessar hyrnur eru afar vel gerðar og fara vel á grönnum herðum. Þær eru sannarlega báðar þess virði að varðveitast áfram í góðum höndum. Sigríður Halldórsdóttir 1. og 2. Hyrna Valgerðar Gestsdóttur. Ljósmyndir: Kristján Pétur Guðnason. 3. Hyrna í Árbæjarsafni, nr. 426. Ljósmynd: Sigríður Halldórsdóttir. HUGUR OG HÖND 5

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.