Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Side 12

Hugur og hönd - 01.06.1987, Side 12
PEYSA MEÐ BARÐAPRJÓNI Barðar eða fleppar voru fyrrum í hvers manns skóm. Þeir voru gerðir með ýmsu móti, saum- aðir úr ullarefnisbútum, prjónaðir slétt á fjóra prjóna og slyngdir eða, eins og mun hafa verið algengast, prjónaðir með garðaprjóni, röndóttir og stundum með margs konar átta- blaðarósum og jurtapottum. Hinir síðast töldu voru nefndir rósaleppar eða rósabarðar. Þeir voru prjónaðir á sérstakan hátt eftir rúðumunstri, oft- ast með mörgum litum og mörgum spottum, þannig að litum var krækt saman þar sem þeir mættust en band- ið ekki látið liggja laust á röngu eins og þegar prjónað er tvíbandað. Þessi að- ferð, að krækja saman bandinu, hefur í seinni tíð verið allmikið notuð með sléttu prjóni til að prjóna myndir og stóra litfleti í prjónaflíkur. En íslenska aðferðin, að prjóna á þennan hátt með garðaprjóni, sem við nefnum hér barðaprjón (einnig nefnt rósaleppa- prjón) hefur lítið verið notuð hér, síðan fleppar voru aflagðir. Hér kemur þó uppskrift að peysu sem Ásdís Birgis- dóttir hefur hannað fyrir Hug og hönd. Stærð: 38—42. Yfírvídd: 114 cm. Sídd: 70 cm. Efni: Eingirni frá Gefjun, undið þrefalt. 300 g af ljósmórauðu nr 22, mosagrænu nr 46 og bláu nr 42, 200 g af mórauðu nr 13 og dökkbláu nr 48. Prjónar: Hringprjónn nr 4 um 70 cm langur og sokkaprjónar nr 3'/2. Prjónfesta: 10x10 cm = 20 lykkjur og 40 umferðir (20 garðar). Gætið þess að prjóna ekki lausar. Barðaprjón er garðaprjón prjónað með mörgum litum, þar sem litum er krækt saman þegar þeir mætast, sjá teikningar A og B. Prjóna verður fram og til baka. Leiðbeiningar: a) Gott er að vinda bandið í þrjá hnykla, síðan er undin jafnóðum úr hverjum lit ein allstór skilhönk, sjá teikningu C. Venjulegast er endinn undinn utan um miðja skilhönkina, en hér er ráðlagt að vinda um lykkjurnar sem verða til við þumalinn, þá þvælist bandið síður og rennur greiðlega út úr hönkinni. b) Það er betra að draga endana aldrei mjög langa út úr skilhönkunum. Ef þeir eru tiltölulega stuttir flækjast skilhank- irnar síður saman. c) Þegar skilhönk þrýtur er gott ráð að þæfa endana þrjá við nýja í lófa sér með volgu vatni (munnvatnið er best) og vinda síðan nýja skilhönk upp úr hnykl- unum. d) Þegar skipt er um lit er bandinu krækt saman með því að taka nýja bandið undir það íyrra og upp. Þetta er gert í öllum umferðum, röngu megin, sjá teikningar A og B. Til að ná samskeytunum sem bestum þarf að herða vel að bæði síðustu og fyrstu lykkju í hverjum lit. e) Ef garðaprjónið nær alveg út í jaðra (ekki prjónuð sérstök jaðarlykkja) er hægt að sauma það snyrtilega saman án saumfars. 12 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.