Hugur og hönd - 01.06.1987, Side 14
um er þannig: 25 lykkjur bláar, 28 mó-
rauðar, 2 ljósmórauðar, 28 bláar og 25
mosagrænar. Litirnir færast til eins og
sýnt er á teikningu af bakstykki og með
sömu aðferð og á framstykki. I eftirtöld-
um umferðum bætast litir inn í:
29. umferð (komnir 14garðar); 11 lykkj-
ur bláar, 28 mórauðar, 1 dökkblá, 1 mó-
rauð, 28 ljósmórauðar, 28 bláar og 11
mosagrænar.
85. umferð (komnir 42 garðar): 11
lykkjur mórauðar, 28 dökkbláar, 2
mosagrænar, 28 mórauðar, 28 ljósmó-
rauðar og 11 bláar.
107. umferð (komnir 53 garðar): 28
lykkjur dökkbláar, 24 mosagrænar, 27
mórauðar, 1 dökkblá og 28 ljósmórauð-
ar.
113. umferð (komnir 56 garðar): 25
lykkjur dökkbláar, 28 mosagrænar, 1
blá, 1 mosagræn, 25 mórauðar, 3 dökk-
bláar og 25 ljósmórauðar.
169. umferð (komnir 84 garðar): 25
lykkjur mosagrænar, 28 bláar, 2 ljós-
mórauðar, 28 mosagrænar og 25
dökkbláar.
197. umferð (komnir 98 garðar): 11
lykkjur mosagrænar, 28 bláar, 28 ljósmó-
rauðar, 2 mórauðar, 28 mosagrænar og
11 dökkbláar.
Þegar mórauðu lykkjurnar eru orðnar
28 er prjónað hálsmál eins og á fram-
stykki og felldar jafnmargar lykkjur af á
öxlum.
Ermar. Fitjaðar eru upp 50 lykkjur með
ljósmórauðu og prjónaðar 6 umferðir
sléttar. í 7. umferðinni er aukið út um 10
lykkjur, 60 lykkjur á.
Hægri ermi. 1. umferð í litamunstri
(rétta): 15 lykkjur ljósmórauðar, 28 mó-
rauðar, 2 bláar og 15 ljósmórauðar. Sjá á
teikningu af hægri ermi, hvernig litir
færast til. I 8. hverri umferð (4. hverjum
garði) er aukið út um eina lykkju við
hvorn jaðar. Eftir 14 garða koma í 29.
umferð 1 lykkja dökkblá og 1 ljósmó-
rauð í miðju (milli 28 mórauðra og 28
blárra). 185. umferð koma 2 mosagræn-
ar lykkjur á miðju sem breikka til beggja
handa, þar til komnar eru 56 (28+28)
mosagrænar lykkjur. Þá koma 2 bláar í
miðju sem einnig bæta við sig lykkjum
báðum megin. Nú er prjónað áfram þar
til komnar eru 28 mosagrænar, 48 bláar
og 28 mosagrænar, samtals 104 lykkjur.
Þá er fellt af.
Vinstri ermi. 1. umferð í litamunstri
(rétta): 15 lykkjur ljósmórauðar, 28
mosagrænar, 2 bláar og 15 ljósmórauðar.
Sjá á teikningu af vinstri ermi, hvernig
litir færast til. Aukið er út eins og á hinni
erminni. í 29. umferð kemur 1 lykkja
ljósmórauð og 1 mórauð á miðju (milli
28 mosagrænna og 28 blárra). I 85. um-
ferð koma 2 dökkbláar lykkjur á miðju,
við þann lit bætist til beggja handa, þar
til komnar eru 56 dökkbláar. Þá koma 2
mosagrænar lykkjur á miðju sem einnig
er aukið við, þar til á prjónunum eru 28
dökkbláar, 48 mosagrænar og 28 dökk-
bláar, samtals 104 lykkjur. Þá er fellt af.
Rúllukragi. Fitjaðar eru upp 2 lykkjur
með bláu á prjóna nr 3 Vi og prjónað slétt
tilbaka. í 3. umferð (réttu) er prjónað
tvisvar í báðar lykkjurnar, framan í og
aftan í, 4 lykkjur á. Eftir þetta er einni
lykkju aukið í fyrir innan eina jaðar-
lykkju báðum megin í öllum umferðum
frá réttu. Jaðarlykkjurnar, ein hvorum
megin, eru prjónaðar með garðaprjóni.
Að öðru leyti er kraginn prjónaður með
brugðningum, 1 slétt og 1 brugðin til
skiptis. Aukið er í þar til lykkjurnar eru
orðnar 48. Prjónaðir eru tveir svona þrí-
hyrningar sem síðan eru sameinaðir á
fjóra prjóna (eða lítinn hringprjón) og
prjónaður hinn eiginlegi rúllukragi í
hring, 12 cm hár. Fellt laust af.
Frágangur. Gengið er frá öllum lausum
endum. Ermar og bolur lögð slétt í rétt-
um málum og rakt stykki yfir. Látið
þorna. Síðan er saumað saman, lykkja
við lykkju og þess gætt um leið að litirnir
mætist nákvæmlega rétt. Síðast er krag-
inn festur á, þríhyrningarnir ganga niður
í hálsmálið á bol báðum megin.
Hönnun: Ásdís Birgisdóttir
Uppskrift: SH
Ljósmyndir: Sigurður R. Sigurbjörnsson.
UPPHLUTUR
PEYSUFOT
Við erum með efni og tillegg í peysuföt og upphluti.
Sendum í póstkröfu.
&7ÍÍSW/ Sími 11784
ISLENSKUR HEIMILISIÐNAÐUR
14
HUGUR OG HÖND