Hugur og hönd - 01.06.1987, Qupperneq 22
hneigð (aggressjón) sem stundum sé
þörf fyrir. Katta-myndir sínar óf hún
að loknum lestri bókar eftir Bulga-
koff, en sú segir frá rnanni í kattarlíki
sem dvaldi með mönnum og setti allt
úr skorðum þar sem hann fór.
Collage-myndir
Allt síðastliðið ár og fram á þetta
hefur Ása unnið markvisst að gerð
collage-mynda, þar sem hún setur
saman efni eins og mjög grófan pappír
með trefjum, silki í fínlegum litum og
gamaldags tjull og saumar í með
saumavél. Þessar myndir eru litlar og
í svipaðri stærð er hún nú farin að
mála myndir, vinnur með akrýllitum á
textílkenndan trefjapappírinn. Henni
þykir mjög áhugavert að vinna á þenn-
an hátt og kallar það tilraunir. Hún
kveðst vinna þær í ákveðnum tilgangi,
sem hún vill ekki hafa um fleiri orð að
svo stöddu. En á henni skilst, að um sé
að ræða undirbúning að öðru meira.
Gallerí Langbrók
Auk vinnustofunnar rekur Ása,
ásamt 6 listiðnaðarkonum öðrum,
listgallerí þar sem þær sýna og selja
verk sín. Gaman er að koma til þeirra
í Gallerí Langbrók við Laufásveg í
Reykjavík. Þær skipta með sér vökt-
um þar og reka auk þess á sama stað
lítinn sýningarsal sem þær nefna Gall-
erí Hallgerði.
6.
Dug Ásu má að öðru leyti marka af
sýningum hennar, en hún hefur haldið
7 einkasýningar á síðustu 6 árum, 5
hérlendis, eina í Svíþjóð og eina í Fær-
eyjum. Auk þess hefur hún tekið þátt
í mörgum samsýningum bæði hér
heima og erlendis allt frá árinu 1973.
Og verk hennar í opinberri eigu eru
orðin allnokkur, bæði hérlendis og í
Svíþjóð.
Ása hefur skipað sér í fremstu röð
myndvefara hér á landi. Myndefni
hennar er þaulhugsað, vel úr því unnið
og höfðar eflaust til margra. Hún er
5.
7.
mjög vandvirk, notar aðeins úrvals-
efni og þar sem hún er einkar fylgin sér
og með ýmislegt í deiglunni verður
fróðlegt að fylgjast með henni á næst-
Unn'É Rúna Gísladóttir
5. Torfbœr, 1980. Stærð 65x120 cm.
6. Sancho Panza, 1982. Stærð 100x125 cm.
7. Einn þriggja hluta verksins Leið, 1985,
ofið fyrir Menntaskólann á fsafirði. Stærð
160x120 cm.
Ljósmyndir: Ása Ólafsdóttir.
22
HUGUROG HÖND