Hugur og hönd - 01.06.1987, Qupperneq 35
BOKAFRETTIR
íslenskar bækur
FÖT Á BÖRN 0—6 ÁRA. Höf. Sigrún Guð-
mundsdóttir. Mál og menning, Reykjavík, 1986.
154 blaðsíður. Verð kr. 1690. Eins og nafnið gef-
ur til kynna er bókin leiðbeiningarrit um fata-
saum. Henni fylgir sniðörk.
SAUMAHANDBÓKIN. Saumabók frá þýska
tímaritinu Neue Mode í þýðingu Fríðar Ólafs-
dóttur. Bókaútgáfan Óðinn hf. Reykjavík, 1986.
154 blaðsíður. Verð kr. 1490. í bókinni eru leið-
beiningar um hvers konar fatasaum með skýr-
ingarteikningum.
Erlendar bækur
Heimilisiðnaðarfélaginu hafa áskotnast eftirfar-
andi bækur að undanförnu:
FATABUREN. Nordiska museets och Skansens
ársbok. Alls 5 rit, Uddevalla, 1982—1986.
JEANS, Höf. Inga Wintzell. Nordiska museet,
Uddevalla, 1985. 133 blaðsíður. Bók um galla-
buxur og gallabuxnahefð.
TVÁÁNDSSTICKAT. Höf. Birgitta Dandanell
og Ulla Danielsson. LTs förlag, Stokkhólmi,
1984. 120 blaðsíður. Bók um sérstæða gamla
prjónaðferð með tveimur þráðum einkum á
vettlingum og sokkum. Verð 130 sænskar kr.
FÖROYSK BINDINGARMYNSTUR. Föroyskt
Heimavirki, Þórshöfn, 1983. 85 blaðsíður. Bók
um prjón á færeyskum hymum.
SKINN OCH LÁDER. Höf. Ingrid Granberg.
LTs förlag, Stokkhólmi, 1984. 96 blaðsíður.
Bók um hefðir við skinnavinnslu og aðferðir við
að sníða og sauma úr loðskinni og leðri.
WÁLSTEDTS-MÁSTARE I ULL. Höf. Anne
MarieRádström. LTs förlag, Stokkhólmi, 1986.
112 blaðsíður. Bók um ^árrækt og fjölbreytilega
ullarvinnslu þriggja kynslóða í sænskri fjöl-
skyldu.
FELTING. Höf. Annelise Stockflet Jörgensen.
Ljósritaður bæklingur á ensku, en höf. er
danskur og gefur ritið út sjálfur, Danmörk 1985.
19 blaðsíður. Rit um flókagerð og flókasokka.
FRÁN ENRIS TILL FLOSSA. Höf. Pia Eldin.
LTs förlag, Stokkhólmi, 1986. 79 blaðsíður. Bók
um handofin gólfteppi í Svíþjóð, uppskriftir og
leiðbeiningar.
RIPSVÁVAR. Höf. Laila Lundell. ICA bokför-
lag, Vásterás, 1986. 111 blaðsíður. Bók með upp-
skriftum og leiðbeiningum um gólf- og borð-
dregla ofna með þráðabrekánsbindingu. Verð
135 sænskar kr.
VÁV EN VÁV. Höf. Malin Selander. LTs förlag,
Stokkhólmi, 1986. 124 blaðsíður í stóru broti.
Bók með litmyndum og uppskriftum fyrir
margs konar vefnað á 2—12 sköft. Verð 220
sænskar kr.
DEKORATIV VÁVNING. Höf. Ulla Stálberg.
LTs förlag. Stokkhólmi, 1986. 71 blaðsíða. Bók
sem ijallar um mismunandi leiðir við uppbygg-
ingu og samhæfingu lita, forms, tækni og efnis
í myndvefnaði og ýmsum útvefnaði.
SEINÁPELIT. Centralförbundet för hemslöjd,
1987. 80 blaðsíður. Bók með 35 uppskriftum að
jafnmörgum ofnum veggteppum. Litmynd af
öllum. Lesmál er á finnsku. Verð 56 finnsk
mörk.
: pfaff i í Krínglunni
Fyrir þá sem sauma
I hinni nýju verslun PFAFF í Kringlunni er lögð
sérstök áhersla á þjónustu við þá sem sauma.
Seljum margs konar tvinna og minni hluti
tengda saumaskap.
Gefið ykkur tíma til að skoða PFAFF saumavél-
arnar og HORN saumavélaborðin, sem henta
fyrir allar helstu saumavélategundir.
Framvegis verður sýnikennslaá PFAFFsaumavélar allaföstudagaog laugardaga milli kl.
i 14.00 og18.00 á
föstudögumog
14.00-16.OOá
y laugardögum.
Vi HEkcS
PFAFF
Kringlan S: 68 91 50 / Borgartún 20 S: 2 67 88
}$0ld
ÁSKRIFENDAKLÚBBUR
veitir meðlimum sínum rétt til
8% dfsláttdr í nokkrum helstu gdrnverslunum landsins
ÁSKRIFTARSÍMI 91-29393
HUGUR OG HÖND
35