Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Page 36

Hugur og hönd - 01.06.1987, Page 36
HANDOFNAR VOÐIR Að vefa efni í eigin fatnað getur verið mjög ánægjulegt og gefandi. íslenska bandið, eingirni og tvinnað band, hæfir vel í voðir ætlaðar í yfirhafnir, s.s. kápu- og jakkaefni. Að vísu gerir togið efnið nokkuð snarpt en í staðinn kemur að það hrindir vel frá sér vætu og óhrein- indum og krypplast lítið sem ekkert. Eftir þessum uppskriftum sem hér birtast er hægt að vefa kápu- og jakka- efni. Bindingar eru vaðmál og vað- málsafbrigði á fjögur sköft. Þeim sem ætla að vefa voð í fatnað er ráðlagt að ákveða fyrst sniðið og reikna út eftir því hagkvæmustu breidd í skeið og slöngulengd. Samtímis þarf að huga að munstri við jaðra (1. og 4. voð), svo að vel fari þar sem jaðrar koma saman. Inndráttarmunstrið sem teiknað er með hverri uppskrift er endurtekið vefinn á enda, lesið frá hægri til vinstri. í stigmunstri er einnig teiknuð aðeins ein umferð sem er endurtekin. Mikilvægt er að slá ekki vefinn þéttar en sagt er til um, svo að efnið verði voðfellt. Sigríður Halldórsdóttir I. A myndinni er 1. og 2. voð í efri röð og 3. og 4. voð í neðri, talið frá vinstri til hægri. Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason. 1. voð Binding: Vaðmál 2/2 Uppistaða: Eingirni frá Gefjun, svart nr. 16, rautt nr. 47 og ljósblátt nr. 43 (6000 m/kg). Ivaf: Eingirni spólað tvöfalt, rautt nr. 47 og dökkblátt nr. 42. Skeið: 30/10, 2 þræðir í hafaldi og 4 þræðir í tönn. Varp: 12 þr/cm. Veftur: 11 frd/2 cm, mælt án spans. Rakið er þannig: 8 þræðir svartir, 8 þræðir rauðir, 8 þræðir svartir, 8 þræðir bláir, endurtekið. Ivafinu er raðað þannig: 12 fyrirdrög rauð, 12 fyrirdrög dökkblá, endurtek- ið. 2. voð Binding: Skekkt oddavaðmál. Uppistaða: Tvinnað Gefjunarband, grátt nr. 11 (3000 m/kg). Ivaf: Tvinnað Gefjunarband, grátt nr. 25. Skeið: 30/10, 1 þráður í hafaldi og 2 þræðir í tönn. Varp: 6 þr/cm. Veftur: 5 frd/cm, mælt án spans. 3. voð Binding: Fléttað vaðmál. Uppistaða: Tvinnað Gefjunarband, dökkmórautt nr. 14 (3000 m/kg). Ivaf: Eingirni spólað tvöfalt, Ijósblátt nr. 43 (6000 m/kg). Skeið: 30/10, 1 þráður í hafaldi og 2 þræðir í tönn. Varp: 6 þr/cm. Veftur: 6 frd/cm, mælt án spans. + 3 II ■ • M / 35 X * rautt mórautt svart Ij.blátt d.blátt 1. voð m x 3 x 3 4. voð Binding: Skekkt hringjavaðmál og þráðabrekán, samsett. Uppistaða: Eingirni frá Gefjun, svart nr. 16, dökkblátt nr. 42 og ljósblátt nr. 43 (6000 m/kg). Ivaf: Eingirni spólað tvöfalt, mórautt nr. 13. Skeið: 30/10, 2 þræðir í hafaldi og 4 þræðir í tönn. Varp: 12/cm. Veftur: 11 frd/2 cm, mælt án spans. Rakið er þannig: 16 þræðir svartir, 12 þræðir dökkbláir, 8 þræðir ljósbláir, endurtekið. 4. voð X / • • • • X X / • • • • X / X X / X X / • • • • X / • • % • X X / X / II u II II n u II II 11 ll 11 II í II II JJ m 36 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.