Fréttablaðið - 12.03.2020, Side 12
Óvissan hefði orðið
of mikil ef Seðla-
bankinn hefði beðið í eina
viku í viðbót.
Birgir Haraldsson,
sérfræðingur hjá
Akta sjóðum
2,5%
var hækkun á úrvalsvísitölu
Kauphallarinnar í við-
skiptum gærdagsins.
Stjórnvöld þurfa að gæta þess að aðgerðir til að sporna við sam-drætti vegna kórónafaraldurs-
ins skapi ekki óheilbrigt umhverfi
þar sem rekstrarhæf fyrirtæki
keppa við órekstrarhæf fyrirtæki
sem haldið er uppi af fjármálakerf-
inu. Þetta segir Styrmir Þór Braga-
son, forstjóri Arctic Adventures sem
er eitt stærsta ferðaþjónustufyrir-
tæki landsins.
„Aðgerðirnar eru mjög óljósar en
það er fagnaðarefni að stjórnvöld
séu vöknuð til lífsins og telji nauð-
synlegt að hér verði áfram lífvæn-
leg ferðaþjónusta,“ segir Styrmir
Þór en ríkisstjórnin kynnti í fyrra-
dag aðgerðaáætlun sem ætluð er
til að bregðast við efnahagslegum
áhrifum kórónafaraldursins.
Á blaðamannafundinum kom
fram að ríkisstjórnin myndi beita
sér fyrir virku samráði milli stjórn-
valda og Samtaka fjármálafyrir-
tækja um viðbrögð þeirra við erfið-
leikum fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Þá greindi Markaðurinn í gær frá
tillögum sem fulltrúar bankanna
hafa k y nnt f y r ir Seðlabanka
Íslands. Meðal annars er lagt til
að ríkið muni bera hluta af þeirri
útlánaáhættu sem fylgir því ef
bankarnir koma til móts við fyrir-
tæki, einkum í ferðaþjónustu, með
aukinni lausafjárfyrirgreiðslu.
„Stjórnvöld mega ekki skapa
freistnivanda með því að styðja við
fyrirtæki, sem voru ekki rekstrar-
hæf áður en faraldurinn hófst, í
gegnum bankakerfið. Það hefur
lengi verið ljóst að mörg fyrirtæki
eru raunverulega gjaldþrota og þau
eru rekin með fjármagni frá fjár-
málafyrirtækjum í samkeppni við
heilbrigð fyrirtæki,“ segir Styrmir
Þór.
„Það þarf að tryggja að hér verði
l íf vænleg ferðaþjónust a með
rekstrarhæfum fyrirtækjum þegar
veiran hefur gengið yfir. Það bætir
aðeins gráu ofan á svart að halda
órekstrarhæfum fyrirtækjum á
lífi í gegnum erfiðleikana,“ bætir
hann við.
Styrmir segir að langtímahorfur
fyrir ferðaþjónustu á Íslandi séu
góðar þrátt fyrir að ytri aðstæður
hafi skyndilega breyst vegna far-
aldursins. Ísland verði eftir sem
áður áhugaverður áfangastaður
sem ferðamenn vilji heimsækja
og tryggja þurfi framboð á f lugi,
gistingu og af þreyingu.
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og ef nahagsráðher ra, sagði á
blaðamannafundinum í fyrradag
að aðgerðir stjórnvalda væru ekki
ætlaðar fyrirtækjum sem hafa
verið í viðvarandi greiðsluvanda
og í vanskilum.
„Við erum meira að horfa til
fyrirtækja sem eru lífvænleg og
hafa burði til þess að standast
samkeppni við eðlilegar aðstæður
en eru augljóslega að verða fyrir
áfalli,“ sagði Bjarni. – þfh
Varar við því að órekstrarhæfum fyrirtækjum verði haldið á lífi
Stjórnvöld mega
ekki skapa freistni-
vanda með því að styðja við
fyrirtæki, sem voru ekki
rekstrarhæf áður en farald-
urinn hófst, í gegnum
bankakerfið.
Styrmir Þór
Bragason,
forstjóri Arctic
Adventures
Ásgeir Jónsson seðla-bankastjór i seg ir það geta komið til greina að sveif lu-j ö f n u n a r a u k i n n , sem leggst ofan á
eiginfjárkröfur bankanna, verði
lækkaður verulega. Nýskipuð fjár-
málastöðugleikanefnd muni taka
það til skoðunar þegar hún komi
saman síðar í mánuðinum.
Í viðtali við Markaðinn bendir
Ásgeir á að sveiflujöfnunaraukinn
– sem nemur nú tveimur prósentum
eftir að hafa verið hækkaður um
0,25 prósentustig í byrjun síðasta
mánaðar – sé hugsaður þannig að
bankarnir hafi borð fyrir báru til
þess að bregðast við afskriftum á
útlánasafni sínu í niðursveiflu.
„Hann er því ætlaður til þess að
mæta svona aðstæðum,“ segir hann.
Peningastefnunefnd Seðlabanka
Íslands flýtti vaxtaákvörðun sinni
um eina viku og ákvað í gær að
lækka vexti bankans um hálft pró-
sentustig. Meginvextir bankans
verða því 2,25 prósent en þeir hafa
lækkað um 2,25 prósentustig frá því
í maí í fyrra. Um leið var meðaltals-
bindiskylda bankanna lækkuð úr
einu prósenti í núll prósent.
„Með þessum aðgerðum er slakað
nokkuð á taumhaldi peningastefn-
unnar í ljósi versnandi efnahags-
horfa í kjölfar aukinnar útbreiðslu
COVID-19,“ sagði í yf irlýsingu
nefndarinnar.
Birgir Haraldsson, sérfræðingur
hjá Akta sjóðum, segir Seðla-
bankann hafa tekið góð skref með
aðgerðum sínum og skilaboðum í
gær. Fastlega megi búast við frekari
vaxtalækkunum.
„Það var góð ákvörðun hjá bank-
anum að bíða ekki með fundinn þar
til í næstu viku og er það í samræmi
við það sem helstu seðlabankar
heims hafa verið að gera að undan-
förnu. Óvissan hefði orðið of mikil
ef bankinn hefði beðið í eina viku
í viðbót,“ segir hann í samtali við
Markaðinn.
Fjárfestar tóku vel í aðgerðir
Seðlabankans en til marks um það
hækkaði úrvalsvísitala Kauphallar-
innar um 2,5 prósent í viðskiptum
gærdagsins á hlutabréfamarkaði og
ávöxtunarkrafa á óverðtryggðum
ríkisskuldabréfum hríðféll, um allt
að tuttugu punkta.
Birgir segir aðgerðirnar góðar
og tóninn á kynningarfundi seðla-
bankastjóra hafa verið betri en á
síðustu fundum.
„Bankinn er raunsær og viður-
kennir að óvissan er mikil og að
fyrri spár eru úreltar. Það þýðir ekk-
ert annað en að tala opinskátt um
óvissuna á meðan hún er eins mikil
og raun ber vitni,“ nefnir hann.
Aðspurður um hvort til greina
komi að Seðlabankinn beiti efna-
hagsreikningi sínum með því að
kaupa sértryggð skuldabréf fyrir-
tækja á markaði í því augnamiði
að lækka langtímavexti og auka
lausafé í umferð segist Ásgeir ekki
útiloka neitt.
„Þetta er eitthvað sem við munum
skoða. Seðlabankar úti í heimi fóru
hins vegar í slíkar magnbundnar
aðgerðir þegar vextir þeirra voru
komnir niður í núll og þeir þurfa að
beita öðrum tækjum en vöxtunum
til að örva hagkerfið. Við erum enn
með okkar vexti yfir tvö prósent,“
nefnir hann.
Þá bendir Ásgeir á að ef bank-
ana skorti lausafé séu einnig aðrir
möguleikar fyrir hendi, eins og end-
urhverf viðskipti við Seðlabankann,
en reglur um þau voru rýmkaðar í
fyrra þegar sértryggð skuldabréf
bankanna voru samþykkt sem hæf
til tryggingar í slíkum viðskiptum
við bankann.
Vill ekki að forðinn verði minni
Ásgeir nefndi á fundinum að Seðla-
bankinn væri vel í stakk búinn til
þess að mæta ýktum sveif lum á
gengi krónunnar, meðal annars
vegna mikils viðskiptaafgangs og
um 800 milljarða króna gjaldeyris-
forða.
Aðspurður segir Ásgeir forðann
vissulega nokkuð dýran, enda þótt
kostnaðurinn hafi farið minnk-
andi með lækkandi vaxtamun.
„Ég myndi ekki vilja sjá gjaldeyris-
forðann minni,“ nefnir hann þó og
bendir á að hann gefi fjármálakerf-
inu ákveðinn trúverðugleika.
Birgir segir að svo virðist sem
Seðlabankinn horfi mikið til þess
hve slæmur annar ársfjórðungur
verði á meðan einhverjar vonir séu
bundnar við að ástandið skáni á
þriðja ársfjórðungi.
„Hættan er hins vegar sú,“ útskýr-
ir hann, „að þriðji ársfjórðungur
verði einnig mjög erfiður. Það er
ekki endilega gefið að þótt veiran
myndi gangi hraðar yfir en búist er
við að hagkerfið taki undir eins við
sér. Sem dæmi er erfitt að sjá fyrir
sér að áhugi á ferðalögum til Íslands
aukist endilega til muna strax í
sumar. Það væri óskandi en ég er
smá hræddur um að Seðlabankinn
sé mögulega að vanmeta áhættuna
fyrir síðsumarið.“
Aðspurður telur Birgir miklar
líkur á því að frekari aðgerða, svo
sem meiri vaxtalækkana, sé að
vænta. Jafnframt sé ljóst að bank-
inn sé ekki bundinn af áður útgefnu
dagatali yfir vaxtaákvörðunardaga.
Hann muni boða til funda og taka
ákvarðanir þegar hann telur þess
þörf.
„ Seðlabank i Bandaríkjanna
lækkaði til dæmis vexti um fimm-
tíu punkta á neyðarfundi í síðustu
viku og búist er við 75 punkta
lækkun í viðbót á markaðinum þar
í næstu viku. Það er mikil pressa á
seðlabönkum að bregðast hratt við
stöðu mála. Það er allt opið,“ segir
Birgir.
hordur@frettabladid.is
kristinningi@frettabladid.is
Veruleg lækkun gæti komið til greina
Seðlabankastjóri segir verulega lækkun á sveiflujöfnunaraukanum geta komið til greina. Hann útilokar ekki kaup Seðlabankans
á sértryggðum skuldabréfum fyrirtækja. Sérfræðingur hjá Akta sjóðum telur miklar líkur á frekari aðgerðum af hálfu bankans.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundi vegna vaxtalækkunar bankans í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Danske Bank segir íslensku viðskiptabankana geta orðið fyrir höggi
Ef ferðaþjónustan hér á landi
verður fyrir áfalli til lengri tíma
vegna útbreiðslu kórónaveirunn-
ar gæti það reynst hagkerfinu
og stóru viðskiptabönkunum
þremur þungt í skauti. Þetta er
mat greinenda Danske Bank sem
mæla ekki lengur með yfirvigt í
skuldabréfum bankanna þriggja,
Arion banka, Íslandsbanka og
Landsbankans.
Í greiningu Danske Bank, sem
gefin var út í gær, er bent á að
samdráttur í ferðaþjónustu geti
haft veruleg áhrif á íslenska hag-
kerfið og þar á meðal á stöðu
bankanna.
„Við leggjum áherslu á að allir
þrír bankarnir hafa sterka eigin-
fjárauka, sem geta mætt mögu-
legu tapi, og grunnsviðsmynd
okkar er sú að hægagangurinn
verði tímabundinn,“ segir í
greiningu danska bankans.
Að mati greinenda Danske
Bank munu áhrif kórónaveir-
unnar á íslenskt hagkerfi ráðast
af tveimur þáttum. Annars vegar
hvert umfang ferðatakmarkana
og afbókana í flug verður og hins
vegar hvenær eftirspurn eftir
ferðalögum í heiminum taki við
sér á nýjan leik.
Sérfræðingar Danske Bank
benda á að í samanburði við
evrópska seðlabanka hafi Seðla-
banki Íslands meira svigrúm til
að styðja við hagkerfið, enda
séu stýrivextir hér hærri en
annars staðar. Þá sé skuldastaða
íslenska ríkisins heilbrigð og
veiti stjórnvöldum rými til að
bregðast við ef þess gerist þörf.
Hins vegar geti slík hagstjórn-
arviðbrögð aðeins haft takmörk-
uð áhrif, sér í lagi til skemmri
tíma, til þess að bregðast við
minni ytri eftirspurn eftir vörum
og þjónustu hér á landi.
MARKAÐURINN
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð