Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 18
Fyrir nokkrum árum dvöldum við hjónin í borg á vestur-strönd Mexíkó og nutum
gestrisni Íslendinga sem þar áttu
heima. Þau sýndu okkur borgina
og kærkomið að gera það með
hagvönu heimafólki. Mikil upp-
bygging hafði átt sér stað síðustu
ár og mörg glæsileg hótel risið með
fram ströndinni. Það vakti athygli
okkar, að þau stóðu þarna fullbúin
hvert af öðru, en voru nánast tóm,
engir gestir og á háferðamanna-
tíma. Vinir okkar sögðu, að þetta
væri byggt fyrir gróðann í eitur-
lyfjaiðnaðinum, betra að geyma
peningana í steypu heldur en að
hlaða dollarabúntunum upp á
bretti í vörugeymslum.
Þessi reynsla frá Mexíkó rifjast
upp fyrir mér í umræðum um
peningaþvætti og f járfestingar
með erlendu fé á Íslandi. Komið
hefur ítrekað í ljós að varnir gegn
peningaþvætti í landinu haf i
verið nánast engar á sama tíma og
útlenskt fjármagn streymir inn í
landið í alls konar fjárfestingar og
nemur tugum milljarða – og enginn
spyr um uppruna og eiganda fjár-
ins. Það kennir reynslan að þangað
leitar féð þar sem það er velkomið.
Ísland er á heimsmarkaði. Gilda
önnur lögmál hér um fjárfestingar
fyrir illa fengið fé en t.d. í Mexíkó?
Svo vill ríkisstjórnin sefa þjóðar-
sálina með því að setja hömlur á
fjárfestingar útlendinga í íslensk-
um jörðum sem hafa þó verið
rannsakaðar meira en f lest annað
af fjölmiðlum. Engar grunsemdir
um peningaþvætti eiga þar við.
Við blasir að vandinn er ekki þjóð-
erni kaupandans, heldur hrakvirði
jarðanna. Jarðakaup James Ratc-
liffe kosta t.d. samtals aðeins brot
af einni hótelfjárfestingu í Reykja-
vík. Þá mættu margir Íslendingar
taka Ratcliffe sér til fyrirmyndar
varðandi umgengni á jörðunum,
t.d. Landsbankinn í eigu ríkisins
sem lætur jarðir sínar frekar fara í
eyði en að gera nýja leigusamninga.
Sá breski leggur sig þó fram um að
verja búsetuna á jörðum sínum og
jafnvel án endurgjalds og hefur
varið umtalsverðum fjármunum
í framkvæmdir til að að styrkja
villta laxastofna.
En það er þægilegt, jafnvel til
vinsælda fallið í pólitíkinni, að
horfa fram hjá vandanum með
sýndartilraunum og þykjast verja
þjóðina og sérstaklega bændur
gegn útlenskri ásælni, sem bera
svo tjónið í enn lægra jarðaverði.
Áfram f læða svo peningar inn
í landið í alls konar aðrar f jár-
festingar en jarðakaup og f lestum
sama um eigendur og uppruna
fjárins á meðan von er um skjót-
fenginn gróða fyrir íslenskt efna-
hagslíf. Sama viðhorf gilti einmitt
um fjármálaviðskiptin í borginni
á vesturströnd Mexíkó.
Við blasir að vandinn er
ekki þjóðerni kaupandans,
heldur hrakvirði jarðanna.
Svartir
peningar
Um þessar mundir eru sex mánuðir síðan Sorgarmið-stöð hóf starfsemi sína. Á
þessum stutta tíma hefur komið í
ljós að það er full þörf fyrir úrræði
sem býður upp á sorgarúrvinnslu
því fjölmargir hafa nýtt sér þjón-
ustuna, hvort sem um er að ræða
fræðslu, beinan stuðning eða ráð-
gjöf. Það vekur athygli að mikil
aðsókn er í fræðslu fyrir þau sem
hafa „nýlega misst“, en sú þjónusta
er í samvinnu við Landspítalann og
í boði á þriggja mánaða fresti í Lífs-
gæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði. Það
fylgir „góður andi“ þessu fallega
gamla húsi sem Hafnarfjarðarbær
er að gera upp af myndarbrag og
það er gott að bjóða fólki í „Hjart-
að“ í húsinu þar sem er heimilisleg
aðstaða og notalegt að setjast niður,
spjalla og nærast.
Sorgarmiðstöð hefur mætt ein-
stökum velvilja margra aðila í
Hafnarfirði, svo sem veitingastaða
og verslana sem af örlæti hafa gefið
veitingar og stutt þannig við starf-
semina, en Sorgarmiðstöð fellur
undir „þriðja geirann“ sem framtak
til almannaheilla og á allt sitt undir
styrkjum einka- eða opinberra
aðila til verkefna sinna. Það, að vera
almannaheillasamtök, felur í sér að
starfsemin er ekki hagnaðardrifin
Sex mánaða starf Sorgarmiðstöðvar
Sökum villandi fréttaflutnings sem oddviti Sjálfstæðisflokks-ins í Árborg hratt af stað í við-
tali við Fréttablaðið þann 27. febrú-
ar sl. af framkvæmdum í Ráðhúsi
Árborgar, tel ég mig knúinn til að
leiðrétta þær staðreyndavillur sem
komu þar fram, til varnar starfs-
mönnum sveitarfélagsins.
Falsfréttin
Oddviti minnihluta Sjálfstæðis-
f lokksins í Árborg gerði blaða-
manni Fréttablaðsins grikk með því
að greina honum ekki rétt frá þeim
framkvæmdum sem nú eiga sér stað
innanhúss í Ráðhúsi Árborgar og
urðu tilefni forsíðufréttar blaðsins
þann 27. febrúar sl. undir fyrir-
sögninni „Kostnaður fór langt fram
úr áætlunum“. Oddvitinn fór þar
frjálslega með staðreyndir og kynti
undir sitt sjálfsprottna ófriðarbál
með því að ýja að því við blaða-
manninn að hér væri um að ræða
sömu óráðsíuna og í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Í kjölfarið fór fréttin á ljóshraða
um alnetið og úr urðu hinar frum-
legustu falsfréttir á velf lestum
vefmiðlum landsins. Frumlegasta
útgáfan af falsfréttinni þann dag-
inn kom þó frá RÚV, „Fimm millj-
óna viðgerð endar í 100 milljóna
framkvæmdum“.
Síðar sama dag ákvað svo óreynd
fréttakona Ríkissjónvarpsins að
renna austur fyrir fjall með mynda-
tökumann. Viðtali hennar við Gísla
Halldór Halldórsson, bæjarstjóra
Árborgar, var í kjölfarið snúið á
hvolf og klippt út öll hans orð til
leiðréttingar á kolrangri fyrirsögn
á vef RÚV. Af undarlegum ástæðum
var viðtalið þannig klippt og snúið
að það sem eftir stóð var ný furðu-
fyrirsögn á forsíðu RÚV, „Telur
eðlilegt að framkvæmdin hafi farið
fram úr áætlun“. Það væri gaman að
sjá viðtalið í heild sinni, því fram-
kvæmdin, sem tengdist í sjálfu sér
ekki umræddri viðgerð, hefur alls
ekki farið fram úr áætlun.
Réttfréttin
Breytingarnar í Ráðhúsinu snúa
ekki að því að skipta um gólfdúk á
bókasafninu, fyrir fimm milljónir,
heldur um að færa afgreiðslu Ráð-
hússins niður á jarðhæð með inn-
gang á framhlið hússins og að bæta
starfsaðstöðu starfsmanna á efri
hæðum. Dúkurinn var allt önnur
ákvörðun um viðhaldsaðgerðir í
sama rými. Samþykkt fjárheimild
breytinganna er 74 m.kr. og stendur
verkið nú í um 60 m.kr., ekki í 100
m.kr.
Það hefur áður komið fram að
á k vörðu n u m uppha f f ram-
kvæmdanna, sem var flýtt frá þeim
áformum sem áður höfðu verið
kynnt í bæjarstjórn, fór ekki sína
réttu leið í stjórnkerfinu, það þrætir
enginn fyrir það.
Með falsfréttum er iðulega
reynt að villa um fyrir fólki og
afvegaleiða. Í þetta sinn varð til
falsfrétt hjá fréttamönnum RÚV
sem gleyptu við og stílfærðu sögu
sem oddviti Sjálfstæðisf lokksins
í Árborg spann við blaðamann
Fréttablaðsins.
Falsfréttin um Ráðhús Árborgar
Hulda
Guðmunds-
dóttir
formaður
stjórnar
Sorgarmið-
stöðvar
Gunnlaugur
Stefánsson
sóknarprestur
í Heydölum
Tómas Ellert
Tómasson
bæjarfulltrúi
Miðflokksins
í Árborg og
varaformaður
bæjarráðs
heldur rennur allt það fé sem aflast
í starfsemina sjálfa.
Að bjóða upp á úrræði í sorg er
á margan hátt afar viðkvæm starf-
semi og því er mikilvægt að gegnsæi
ríki um alla starfsemi Sorgarmið-
stöðvar. Miðstöðin er ekki með-
ferðarúrræði. Það er skýrt tekið
fram, en hún hefur á að skipa fólki
með margháttaða reynslu, bæði í
gegnum eigin missi og með mennt-
un sem reynist vel í þeim mannlegu
samskiptum sem eru aðal- og lykil-
atriði í því að mæta fólki í sorg.
Viðhorf til sorgarúrvinnslu hafa
sem betur fer breyst á síðustu árum.
Einu sinni þótti það dyggð að „bera
harm sinn í hljóði“ sem þýddi í raun
að margir grófu sorgir sínar djúpt í
eigin hugskoti og leyfðu sér aldrei
að syrgja. Í þættinum Minningar-
greinar á Rás 1 í Ríkisútvarpinu
þann 1. mars sl. var komist svona
að orði: „En einu sinni er ekki til
lengur. Í dag má gráta og syrgja
opinberlega og í dag má biðja um
hjálp.“
Það er þó ýmislegt sem við búum
enn við frá því í „gamla daga“ sem
kominn er tími til að breyta. Þannig
f lokkast úrræði Sorgarmiðstöðvar
t.d. ekki undir úrræði í starfsendur-
hæfingu, vegna þess að í lögum nr.
60/2012 er ekki minnst á sorg, eða
hún skilgreind meðal þess sem
kann að koma í veg fyrir að ein-
staklingur geti stundað vinnu. Í
þögn sinni um sorg, birta lögin því
gamlan misskilning um eðli sorgar
og afleiðingar hennar, nokkuð sem
við í Sorgarmiðstöð viljum hjálpa
samfélaginu að skilja betur.
Vissulega er sorg ekki „heilsu-
brestur“ í þeim skilningi. Sorg
felur í sér eðlileg viðbrögð við
andláti ástvinar. Staðreyndin er
hins vegar sú að það getur orðið
margþættur og jafnvel varanlegur
heilsubrestur vegna djúprar sorgar,
fái einstaklingur í þeirri stöðu ekki
stuðning með fræðslu og/eða beinni
aðhlynningu. Í því liggur mikilvægi
þess að bjóða upp á úrræði, þar sem
fólki í sorg er mætt þegar það þarf á
stuðningi að halda. Þjónusta Sorg-
armiðstöðvar er viðbótarkostur
við þjónustu trúfélaga og annarra
á sviði sorgarúrvinnslu, þar sem
samvinna fagaðila um úrræði, getur
skipt sköpum. Í því sambandi er t.d.
mikilvægt að hugað verði að því
hvernig samfélagið geti náð fram
markmiðum laga nr. 50/2019 um
réttindi barna, ef foreldri/forráða-
maður deyr.
Það er mikilvægt að sorgarúr-
vinnsla verði skilgreind sem úrræði í
starfsendurhæfingu, þ.e. úrræði sem
syrgjandi getur nýtt sér til uppbygg-
ingar eftir sáran missi ástvinar. Það
mætti mögulega skilyrða við dauða
maka eða barns, þar sem viðurkennt
er að slík áföll eru í eðli sínu þung-
bærust. Með þeirri tengingu er líka
augljóst samhengi við boðuð lög um
sorgarorlof vegna barnsmissis eða
andláts maka frá ungum börnum,
sem félagsmálaráðherra hefur
kynnt og Sorgarmiðstöð talar fyrir.
Frumvarp um sorgarorlof kemur
vonandi fram á næstu mánuðum og
þá gefst tækifæri til að ræða nánar
um mikilvægi sorgarúrvinnslu.
Heill og sæll vert þú.Ég vona að ég sé ekki að rífa þig burt frá bakstri eða
lífsgæðaaukningunni sem þú segir
okkur almúganum að sé umtalsverð.
Maður í þinni stöðu, hefur kannski
ekki mikinn tíma til að lesa eitt
svona lettersbréf og það er skiljan-
legt, en þú hlýtur að geta fengið
aðstoðarmann þinn eða aðstoðar-
konu til að segja þér undan og ofan
af því sem fólk hugsar utan veggja
Alþingis og Stjórnarráðs, þannig
að ég örvænti ekki og verð alls ekki
hissa þegar þú svarar ekki þessu til-
skrifi.
Þannig er mál með vexti að ég er
óskaplega fattlaus þegar kemur að
yfirlýsingum valdhafa. Nú hefur þú
farið mikinn um það hvað lífskjör
hafa batnað, kaupmáttur aukist
og að ellilífeyrisþegar og öryrkja-
druslur eins og ég, hafi það margfalt
betra en áður. Og fyrst að þú heldur
þessu fram, þá hlýtur það að vera
rétt. Ekki færi strangheiðarlegur
pólitíkus (sem reyndar eru vand-
fundnir) að ljúga upp í opið geðið á
landsmönnum þessarar fámennu
þjóðar. Þannig að trúandi orðum
þínum, þá spyr ég eins og fávís
karldurgur: Hvar í mínu lítilsverða
lífi finn ég alla þessa velmegun og öll
þessi frábæru lífskjör og hvar í budd-
unni minni finn ég fyrir allri þessari
hækkun örorkubóta.
Reyndar veit ég sosum að öryrkjar
eru lítið annað en baggi á samfélag-
inu og þess vegna skammast ég
mín alltaf fyrir að vera ekki bara
jakkafataklædd fyrirvinna með
almennileg laun hjá einhverju risa-
fyrirtæki eins og Samherja og er inn
undir hjá stjórnvöldum. Og til að
vera almennileg manneskja ætti ég
að eiga helling af peningum sem ég
kemst aldrei yfir að njóta í einhverri
skattaparadísinni.
En ég er auðvitað ekki að segja að
þú gerir slíkt, þú ert í svo góðri vinnu
að þú getur almennilega haldið
heimili á Íslandi. Svoleiðis ríkidæmi
á ég ekki og hef enga völ á því en bý
við annars konar ríkidæmi sem til
dæmis felst í því að hafa tíma með
uppkomnum strákunum mínum
og minnar fyrrverandi konu og nýt
þess. En þó að tíminn sé til staðar, get
ég lítið boðið upp á annað en sjálfan
mig og það er auðvitað leiðigjarnt
fyrir þá til lengdar. Og þá er loksins
komið að aðalatriðinu, hvernig fer ég
að því að finna fyrir öllum þessum
bættu lífskjörum og hvar finn ég
hækkunina á bótunum mínum?
Ég er búinn að fá um skeið 145.000
krónur útborgaðar frá Trygginga-
stofnun á mánuði og kann greinilega
ekki að þefa uppi alla hækkunina
sem þú segir að ég hafi fengið. Með
von um útskýringar,
bestu kveðjur,
Sigurður Ingólfsson.
Opið bréf til Bjarna Benediktssonar
Sigurður
Ingólfsson
öryrki, doktor í
frönskum bók-
menntum og
guðfræðinemi
Hvar í mínu lítilsverða lífi
finn ég alla þessa velmegun
og öll þessi frábæru lífskjör
og hvar í buddunni minni
finn ég fyrir allri þessari
hækkun örorkubóta.
Það er mikilvægt að sorgar
úrvinnsla verði skilgreind
sem úrræði í starfsendur
hæfingu, þ.e. úrræði sem
syrgjandi getur nýtt sér til
uppbyggingar eftir sáran
missi ástvinar.
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð