Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 22
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Samkvæmt skýrslu KPMG
frá 2018 fær KSÍ 30 milljónir króna
í tekjur þegar uppselt er á Laugar-
dalsvöll. Þá var reyndar miðað við
miðaverð upp á sjö þúsund krónur,
fimm þúsund krónur og þrjú þús-
und krónur. Á leiknum gegn Rúm-
eníu var miðaverð fimm hundruð
krónum meira í öll hólfin. Sé notuð
reikniaðferð KPMG hækkar talan
upp í 33 milljónir. Samkvæmt
skýrslu frá KPMG fá styrktaraðilar,
samstarfsaðilar og gestalið 3.500
miða sem eru ekki inni í heildar-
tölunni.
Líkurnar á tómum Laugardals-
velli í umspilsleiknum gegn Rúm-
eníu aukast dag frá degi. Sífellt f leiri
leikir víða um Evrópu fara nú fram
fyrir luktum dyrum. Tveir aðrir
umspilsleikir fara fram fyrir luktum
dyrum. Slóvakía hafði ákveðið að
viðureign Slóvaka og Íra færi fram
fyrir luktum dyrum og norska
knattspyrnusambandið tók þá
ákvörðun að umspilsleikur þeirra
gegn Serbíu á Ullevål verði spilaður
fyrir luktum dyrum. Uppselt var á
leikinn og ætlar norska sambandið
að endurgreiða þeim sem höfðu
keypt miða.
Fundað var um komandi leik í
Laugardalnum í gær og segir Klara
Bjartmars, framkvæmdastjóri KSÍ,
að allur undirbúningur miði við að
áhorfendur verði á leiknum. „Við
höldum áfram að undirbúa leikinn
eins og það verði áhorfendur og við
verðum með allt tilbúið þegar að
honum kemur. Ef stjórnvöld setja á
samkomubann þá breytum við um
taktík.“
Þá bíður KSÍ svara frá UEFA
um hvað verði gert með milliriðil
hjá U19 ára landsliði karla sem á
að fara fram á Norður-Ítalíu í lok
mars. Þar spila auk Íslands, heima-
menn, Noregur og Slóvenía um
laust sæti í lokakeppninni í sumar.
UEFA fundaði í gær en miðað við
að öllum íþróttaviðburðum hafi
verið slegið á frest til apríl verður
að teljast líklegt að riðlinum verði
slegið á frest. – bb
Sjá fram á tugmilljóna tap af tómum Laugardalsvelli
Átta leikir eru á dagskrá í undankeppni EM þann 26. mars og er búið að til-
kynna að nokkrir þeirra fari fram fyrir luktum dyrum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBOLTI „Eins og við vitum er
rekstur íþróttafélaga almennt mjög
erfiður, hvort sem það er hand-eða
fótbolti, blak eða hvað sem er,“ segir
Klara Bjartmars, framkvæmda-
stjóri KSÍ, en á síðasta stjórnarfundi
KSÍ sem haldinn var í tengslum við
ársþing sambandsins og fór fram á
Ólafsvík, komu fulltrúar landshluta
fyrir stjórnina og lýstu meðal ann-
ars erfiðleikum í rekstri félaganna
á landsbyggðinni. Þar var einnig
rætt um ferðakostnað og mikil-
vægi aðkomu sveitarfélaga sem og
erfitt tíðarfar en Björn Friðþjófsson
fulltrúi Norðurlands fór sérstaklega
yfir þann hluta.
„Þetta er gert reglulega. Þessir
menn eru fulltrúar sinna landshluta
og þeir skila okkur skýrslu um hvað
er að gerast í þeirra fjórðungi,“ bætir
Klara við.
Góðærið er búið í fótboltanum en
stutt er síðan KSÍ upplýsti um ríf-
lega 50 milljón króna tap á rekstri
sambandsins, Skagamenn töpuðu
61 milljón og stór fyrirtæki halda
að sér höndum þegar kemur að
styrkjum til íþróttafélaga. Þó f lest
lið séu ekki búin að skila sínum árs-
reikningi fyrir árið 2019 má sjá að
rekstur knattspyrnudeilda stendur
oft tæpt þar sem hagnaður og tap
skiptast á milli ára. Í ársskýrslu
Sindra frá Hornafirði fyrir árið
2019 kemur fram að strax í upphafi
árs var ljóst að rekstur yngri f lokka
yrði mjög þungur og að ekki yrði
ráðið við háan launakostnað og
hagræðingar yrði þörf.
Öll félögin sem undirgangast
leyfiskerfi KSÍ fyrir keppnistíma-
bilið í ár, félögin í Pepsi Max deild
karla og 1. deild karla, hafa skilað
inn leyfisgögnum. Leyfisstjórn KSÍ
hefur þegar farið yfir gögnin og gert
athugasemdir þar sem við á. Klara
segir að trúnaður gildi um þau gögn.
Um leyfiskerfið segir meðal ann-
ars á heimasíðu KSÍ að það eigi að
gera félögum kleift að bæta skipu-
lag sitt samkvæmt viðurkenndum
lágmarksviðmiðum, gera fjármál
íþróttarinnar sýnilegri sem ætti að
leiða til aukinnar tiltrúar fjárfesta
og meiri fjárfestinga utanaðkom-
andi aðila í íþróttinni.
Á stjórnarfundinum var einnig
samþykkt að KSÍ myndi hætta að
taka við reiðufé til að auka rekjan-
leika og gegnsæi í bókhaldi/fjár-
málum. Stjórnin var einnig sam-
mála um að nefndir myndu styðja
betur við fjárhagsáætlunargerð og
stefnan væri sett á sjálf bærni sam-
bandsins. Um tillögu starfshóps um
eigið fé samþykkti stjórn svohljóð-
andi tillögu. „Miðað við afkomu KSÍ
á árinu 2019 og áætlaða niðurstöðu
fjárhagsáætlunar árið 2020 er ekki
skynsamlegt að lækka eigið fé með
ofangreindum hætti. Því er ráðlegt
að ákvörðun um ofangreint verði
ekki tekin fyrr en jafnvægi er komið
á rekstrarafkomu KSÍ og að hún sé
þá jákvæð.“
benediktboas@frettabladid.is
Góðærinu lokið í fótboltanum
Rekstur íþróttafélaga er erfiður og er góðæri fótboltans lokið. Fulltrúar liða á landsbyggðinni komu fyrir
stjórn KSÍ á síðasta stjórnarfundi og ræddu um téða erfiðleika. KSÍ tapaði um 50 milljónum á síðasta ári.
Aðalfundur aðalstjórnar FH verður haldinn 19. mars en fjármál FH hafa mikið verið rædd í allan vetur. Félagið virðist þó vera á réttri leið og búið að rétta af
skútuna eftir að félagið keypti einn efnilegasta leikmann landsins og fékk annan efnilegan úr atvinnumennsku eftir erfiða tíð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þetta er gert reglu-
lega. Þessir menn
eru fulltrúar sinna lands-
hluta og þeir skila okkur
skýrslu um hvað er að gerast
í þeirra fjórðungi.
Klara Bjartmarz,
framkvæmdar-
stjóri KSÍ
FÓTBOLTI FIFPRO, alþjóðlegu leik-
mannasamtökin, gáfu út yfirlýsingu
um kórónaveiruna í gær. Spilað
verður á tómum völlum í frönsku,
spænsku og portúgölsku deildinni
og á einhverjum völlum í Þýska-
landi. Þá hafa verið spilaðir leikir í
Evrópukeppnunum, bæði Meistara-
deildinni og Evrópudeildinni fyrir
luktum dyrum og sums staðar hafa
leikir hreinlega ekki verið spilaðir.
Sviss og Austurríki hafa sett hlé á
sínar deildir og feta í fótspor Ítala.
Í yfirlýsingu FIFPRO kemur fram
að leikmenn eigi áfram á hættu að
smitast þótt það sé leikið fyrir lukt-
um dyrum. „Leikmenn gætu smitast
eins og aðrir í sinni daglegu rútínu,
hvort sem það er á æfingasvæðinu,
á ferðalagi í leiki eða á leikdag.
Það þurfa allir að vinna saman að
lausnum og hafa leikmenn með í
ráðum.“ – bb
Lok lok og læs
hefur áhrif
JAÐARÍÞRÓTTIR Umræður um hús-
næðismál jaðaríþróttagreina eins
og klifurs, hjólabretta, hjólreiða,
bogfimi og frisbígolfs fóru fram
þegar menningar-, íþrótta- og tóm-
stundaráð kom saman á mánudag.
Á fundinum var lögð fram að
nýju beiðni Klifurfélags Reykja-
víkur til borgarinnar um aðstoð
við að komast í nýtt og betra hús-
næði. Leigusamningur í núverandi
húsnæði við Ármúla rennur út í júní
árið 2023 og því er ljóst að finna
þarf annað og hentugra húsnæði
undir starfsemina. Eigendur hús-
næðisins hafa önnur áform um
nýtingu. Það er mat stjórnar Klifur-
félags Reykjavíkur að stærð hús-
næðisins komi jafnframt í veg fyrir
alla frekari uppbyggingu félagsins
og í leiðinni framgang íþróttarinnar
á Íslandi.
Klifurfélag Reykjavíkur óskar
því eftir aðstoð frá ÍTR og ÍBR við
að koma starfseminni í stærra og
hentugra húsnæði.
Í bréfinu kemur fram að 1.207 æfi
klifur reglulega og árið 2019 komu
um 600 manns á mánuði í heim-
sókn til að prófa. Iðkendafjöldi
hefur aukist jafnt og þétt á síðustu
árum. Þarfir félagsins eru töluverð-
ar. Flatarmál æfingasalar þyrfti að
vera einhvers staðar á bilinu 2.000
til 3.000 fermetrar. Hæstu klifur-
veggir þyrftu að ná tólf til fimmtán
metra hæð. Gera þarf sérstakt svæði
fyrir yngstu börnin, upphitunar- og
líkamsræktarsvæði, litla skrifstofu
og verslun ásamt möguleika á kaffi-
húsi og ekki síst búningsklefa og
sturtuaðstöðu. – bb
Rætt um
jaðaríþróttir