Fréttablaðið - 12.03.2020, Síða 24
Str. 40/42-56/58
Fleiri litir og munstur
Kjóll
kr. 12.900.-
Túnika
kr. 9.800.-
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Nýtt frá
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Agla hefur mikið dálæti á litríkum og einstökum fatnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Agla horfir mikið á kvikmyndir frá níunda og tíunda áratugnum.
Ljósklædd Agla horfir dreymin út um glugga á Prikinu.
Það er nóg um að vera hjá Öglu sem nýtur sín bæði í vinnu sem utan. „Ég er hef ástríðu
fyrir myndlist og var með mína
fyrstu myndlistarsýningu fyrir
tveimur árum sem gekk undir
heitinu „Hversdagsleikur ævin-
týranna“. Ég er mikið að teikna
og lesa þessa dagana. Ég er að
vinna í Monki í Smáralindinni og
elska að vinna í Monki-heiminum
með öllum litríku flíkunum. Við
stelpurnar erum duglegar að dansa
og hlæja í vinnunni og reynum að
fá kúnna til að dansa með okkur.
Þegar ég er ekki að vinna reyni ég
sem mest að fara á viðburði eins og
tónleika og myndlistarsýningar.
Svo finnst mér alltaf gott að kíkja í
kaffi á Prikinu.“
Hefurðu áhuga á tísku?
„Já, ég elska að fylgjast með
tískunni. Fyrir mér gefur tískan frá
sér sköpunargleði, samskipti og
hefur sitt notagildi. Fólk tjáir sig
oft með fatastílnum sínum. Tískan
getur verið í formi myndlistar sem
við fáum að njóta í okkar daglega
lífi. Það eiga ekki að vera neinar
reglur þegar að klæðaburði kemur
og aldur skiptir heldur engu máli.
Tískan er takmarkalaus.“
Hvenær kviknaði þessi áhugi?
„Ég held að áhuginn hafi komið
mjög snemma hjá mér. Mamma
var áskrifandi að nokkrum tísku-
tímaritum þegar ég var unglingur
og ég las hverja einustu grein og
átti til að beygla brot í blaðið
ef mér fannst einhver flík alveg
ótrúlega falleg. Það var samt ekki
margt í boði á þessum tíma og það
voru mun færri búðir. Ég gekk allt-
af um í fötum frá Spútnik sem var
ekki eins vinsæl búð þá og í dag.
Ég vildi helst vera í f lík sem enginn
annar átti. Ég vildi vera einstakt
fiðrildi í samfélaginu. Klæddi mig
bara nákvæmlega eins og ég vildi.
Ég öðlaðist örugglega sterkari per-
sónuleika með því að klæða mig
í „vintage“, bæði var nafnið mitt
ekki algengt og fatasmekkurinn
ekki heldur.“
Hvernig myndirðu lýsa stílnum
þínum?
„Ég myndi segja að stílinn minn
væri frekar rómantískur með smá
„chic“ og „artsy“ yfirbragði. Ég vil
helst vera í lit eða litum. Litir gera
eitthvað fyrir sálina mína og veita
mér gleði og innblástur. Pastel-
litir eru í algjöru uppáhaldi og
þá sérstaklega fjólublái lavender
liturinn. Annars pæli ég ekkert
mikið í trendum eða fatamerkjum.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Ég á enga flík sem flokkast undir
sparispari. Ég er hrifin af því að
vera bara í fínum og skemmti-
legum fötum sem hversdagsfötum
sem ég get klætt upp eða niður eins
og mér hentar. Ég nota mikið: Er ég
ekki bara hversdagslega kúl?“
Hver er uppáhaldsf líkin?
„Ég á gamla fjólubláa, mynstraða
kápu með smá kraga sem ég er
löngu hætt að nota, en ég á svo
margar minningar í kápunni. Ég
fékk hana þegar ég var 15 ára í
Glamúr „vintage“ fatabúð sem systir
mín átti á Skólavörðustíg. Ég var
alltaf í henni. Fór í henni með pabba
á fyrstu stóru tónleikana með
Robert Plant, á fyrsta stefnumótið
mitt og ýmis fleiri falleg ævintýri.
Kápan var búin að hanga á herðatré
í nokkur ár þegar ég mátti kjósa í
fyrsta skipti. Eftir allt sem ég hafði
upplifað í kápunni varð hún að vera
flíkin sem ég klæddist á mínum
fyrsta kosningadegi. Það eru töfrar
í henni og mér fannst ég geta allt
þegar ég var í henni.“
Hvaðan færðu innblástur?
„Þessa dagana kemur innblást-
urinn frá uppvaxtarárum mínum
og dægurmenningu. Ég á það líka
til að stara óvart á fólk en það er
aðallega af því að mér finnst fallegt
hvernig það setur flíkurnar sínar
saman á mismunandi hátt. Það er
alltaf gaman þegar persónuleik-
inn skín í gegn. Ég er líka að horfa
vandræðalega mikið á gamlar
unglingamyndir frá níunda og
tíunda áratugnum.“
Áttu þeir einhverja/r tískufyrir-
mynd/ir?
„Ekki beint, en fólkið í kringum
mig gefur mér mikinn innblástur
og vinir mínir eru fallegar fyrir-
myndir þegar það kemur að tísku.
Þau hafa sinn eigin stíl sem þau
bera með sjálfsöryggi og er í stíl
við persónuleikann sem ég heillast
af. Jóna Berglind vinkona mín er
textílhönnuður og hefur kennt
mér mikið þegar það kemur að
efniseiginleikum, áferð og lita-
gleði og svo er hún líka alltaf svo
glæsileg til fara.“
Áttu þér uppáhaldshönnuð/i?
„Ég fylgist með nokkrum á
Instagram, til dæmis Ýrúarí, Tönju
Huld Levý, Andra Hrafni og Sögu
Sig ljósmyndara. Ég elska hana,
hún er alltaf í fallegum og litskrúð-
ugum fötum, „elegant“ töffari“.
Hver er þinn helsti veikleiki
þegar kemur að tísku og útliti?
„Ég fíla illa þegar fólk er farið
að vera eins og „copy/paste“. Til
dæmis allir í eins jakka með sama
hárið og blandast einhvern veginn
í sömu sápukúluna. Ég á líka erfitt
þegar ég sé konur á besta aldri
sem eru að versla og þiggja ráð frá
dætrum sínum sem eru kannski á
viðkvæmum aldri og falla svolítið
inn í sápukúlugengið. Sá til dæmis
konu máta smá skrúðugan jakka
sem hún var glæsileg í en 14 ára
dóttir hennar í svörtu hettupeys-
unni fékk að ráða. Jakkinn fékk
ekki að fara með heim, því miður.
Íslenskar konur eru líka fastar í því
að kaupa allt of stór föt á sig og fela
líkamann sinn eða með fast: nei
þetta virkar ekki því ég er svona í
laginu. Ég vil að við berum höfuðið
hátt og séum stoltar af því hvernig
við erum.“
Notar þú fylgihluti og skart?
„Já, ég var alltaf með hálsmenn
sem fyrsta ástin mín gaf mér, með
nafninu mínu, en keðjan er orðin
svo viðkvæm að ég var hrædd
um að týna meninu. Eva Súsanna
gullsmiður og vinkona mín gaf
mér hálsmen sem hún gerði. Lítill
kuðungur. Ég fer ekkert án kuð-
ungsins. Ég er líka krabbi þannig
að kuðungurinn er skelin mín og
verndargripur. Ég er líka að vinna
hart að því að geta notað aftur
eyrnalokka en ég hef ekki verið
með slíka í mörg ár. Ég er búin að
fá fullt af góðum ráðum fyrir auma
eyrnasneplana mína.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Meira sjálfstraust, gleði og
jákvæðni. Ég hef verið að teikna og
mála og dreymir um að halda aðra
myndlistarsýningu á þessu ári á
einhverjum krúttlegum stað. Ég
hef líka endalaust gaman af ævin-
týrum og leiðsögunámið hefur
beðið lengi eftir mér, ég held að
þetta sé árið.“
Þessa dagana
kemur innblástur-
inn frá uppvaxtarárum
mínum og dægurmenn-
ingu.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R