Fréttablaðið - 12.03.2020, Síða 28
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Elsa segir að sýnendur hafi sýnt þeirri ákvörðun að fresta sýningunni í ljósi aðstæðna mikinn skilning. Það hefði verið erfitt að framfylgja leiðbeiningum almannavarna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það stefnir í að glæsilegt þorp rísi í Laugardalshöllinni í október.
Sýningin spannar svo breitt svið að þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Stórsýningin Verk og vit fer fram dagana 15. til 18. októ-ber næstkomandi í Íþrótta-
og sýningarhöllinni í Laugardal.
„Fagsýning eins og Verk og vit
er mikilvægur vettvangur fyrir
byggingariðnaðinn og felur í sér
tækifæri fyrir fagaðila, innlenda
jafnt sem erlenda, til að kynna
vörur sínar og þjónustu og styrkja
tengsla netið,“ segir Elsa Giljan
Kristjánsdóttir, sýningarstjóri
Verks og vits. „Verk og vit hefur
skipað sér mikilvægan sess hjá
fagaðilum til að hittast og mynda
viðskiptasambönd og einnig
sem uppskeruhátíð bygginga- og
mannvirkjageirans á síðustu
árum.
Meðal sýnenda á Verki og viti
eru byggingaverktakar, verkfræði-
stofur, menntastofnanir, fjármála-
og ráðgjafarfyrirtæki, tækjaleigur,
hugbúnaðarfyrirtæki og sveitar-
félög, svo eitthvað sé nefnt,“ segir
Elsa. Auk þess verður ráðstefna og
fjöldi viðburða haldinn samhliða
sýningunni.“
Nauðsynlegt að fresta
Verki og viti
„Eins og kunnugt er átti upphaflega
að halda sýninguna 12.-15. mars,
en í ljósi aðstæðna vegna COVID -
19 var heilsa og hagur sýnenda,
þjónustuaðila og gesta sýningar-
innar, sett í algeran forgang,“ segir
Elsa. „Að höfðu samráði við Emb-
ætti landlæknis og samstarfsaðila
sýningarinnar var ákveðið að fresta
sýningunni fram í október 2020. Sú
ákvörðun var tekin með hliðsjón af
eðli sýningarinnar og þeim fjölda
fólks sem sækir hana heim, en það
hefði verið erfiðleikum bundið
að framfylgja leiðbeiningum
almannavarna.
Sýnendur hafa sýnt þessari
ákvörðun skilning í ljósi aðstæðna
og erum við sannfærð um að allir
koma til með að leggjast á eitt til að
gera sýninguna sem glæsilegasta í
haust,“ segir Elsa.
„Við erum að horfa til sams konar
sýninga erlendis varðandi þessa
ákvörðun og sýningar sem þessar
eru yfirleitt settar upp annað-
hvort á vorin eða á haustin,“ segir
Elsa. „Sú sýning sem er hvað líkust
Verki og viti og við horfum mest
til er Bygg Reis Deg sem haldin er
í október annað hvert ár í Noregi.
Við búum í svipuðu loftslagi og hér
kemur innspýtingin í þessa mark-
aði yfirleitt á vorin og haustin.“
Innspýting í geirann
„Verk og vit spannar mjög breitt
svið og veitir gott tækifæri til
að kynna sér allar nýjungar á
markaðnum. Sýningin er komin
til að vera og í gegnum árin hefur
það sýnt sig að hún hefur veitt
fyrirtækjum aukinn sýnileika sem
hjálpar þeim að skapa sér við-
skiptatengslin sem þau þurfa á að
halda,“ segir Elsa. „Mörg fyrirtæki
stilla árshátíðum og annars konar
hópefli upp í kringum Verk og vit.
Stjórnendur þessara fyrirtækja
hafa þá boðið starfsfólki sínu á
sýninguna til að kynna sér það
sem er að gerast á markaðnum og
það hefur jákvæð áhrif.
Sýningahald skapar viðskipti og
þekkingu,“ segir Elsa. „Markaðs-
setning sem þessi er öflug og skilar
sér allt öðruvísi og á miklu beinni
hátt en önnur markaðssetning,
sérstaklega í þessum geira. Á
sýningum geta líka allir náð tali
af fagaðilum sýnenda, sem oft er
ekki svo sjálfgefið að ná tali af.
Allt saman veitir þetta geiranum
orkuinnspýtingu.“
Eitthvað fyrir alla
„Allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi á sýningunni þar sem hún
spannar svo breitt svið. Allt frá
litlum skrúfum í stórar steypu-
eða tréeiningar,“ segir Elsa. „Árið
2018, á síðustu sýningu, var sett
aðsóknarmet, en þá sóttu um
25.000 manns sýninguna, þar sem
yfir hundrað sýnendur kynntu
vörur sínar og þjónustu.
Sýningin er fyrst og fremst sett
upp fyrir fagaðila en bygginga- og
mannvirkjagerð og skipulagsmál
eru hlutir sem snerta okkur öll,“
segir Elsa. „Margir eru að sinna
alls kyns framkvæmdum í frítíma
sínum og því er tilvalið að kynna
sér það sem sýnendur Verks og vits
hafa upp á að bjóða.
Miðað við teikningar sem ég hef
séð af því sem var fyrirhugað núna
í mars stefnir í að glæsilegt þorp
rísi í Laugardalshöll í október,“
segir Elsa. „En þar sem sýningin
var færð er reyndar hugsanlegt
að einhverjar áætlanir breytist
því fyrirtæki gætu þurft að nýta
rými öðruvísi. En það verður bara
gaman að sjá hvernig rýmin verða
nýtt. Íslendingar eru ótrúlega hug-
myndaríkir þegar kemur að því
að leysa svona mál í samvinnu við
sýningahaldara og það er of boðs-
lega mikill metnaður í sýnendum
og mikið lagt í sýningarýmin.
Það er líka von á ýmsum
nýjungum á sýningunni, ég veit að
nokkur fyrirtæki ætla að kynna
nýja hluti, en ég má ekki tjá mig
neitt um það eins og er,“ segir Elsa.
AP almannatengsl er fram-
kvæmdaaðili sýningarinnar en
samstarfsaðilar eru atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið, Reykja-
víkurborg, Samtök iðnaðarins,
BYKO og Landsbankinn.
Markaðssetning
sem þessi er öflug
og skilar sér allt öðruvísi
og á miklu beinni hátt en
önnur markaðssetning,
sérstaklega í þessum
geira.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RVERK OG VIT