Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 38
Sími 535 2500 | Netfang terra@terra.is | www.terra.is
Fjölþætt þjónusta
við fyrirtæki
Djúpgámar
Djúpgámarnir rúma mikið sorp en taka lítið
pláss á yfirborðinu. Snjöll og nútímaleg
lausn fyrir fjölbýlishús og fjölfarna staði.
Pressur
Við seljum og leigjum baggapressur sem henta
vel til að pressa pappa, pappír, plast, frauðplast,
sorp og önnur efni. Ýmsar stærðir í boði sem
henta fyrir ólík verkefni.
Smáhýsi
Við seljum og leigjum vinnuskúra og vinnubúðir,
færanleg eldhús, skrifstofurými, ferðasalerni,
hjólageymslur og önnur smáhýsi. Sama hvað
stendur til, þú átt erindi við okkur.
Eyðing efna
Hættuleg efni kalla á sérfræðiþekkingu og
fagmennsku við meðhöndlun. Við sækjum eða
tökum á móti spilliefnum, raftækjaúrgangi, matarolíu
og fleiri efnum og komum þeim í réttan farveg, hvort
sem hann er endurvinnsla eða eyðing.
Gámaleiga
Við leigjum þér krókgáma og önnur ílát undir öll efni
sem falla til. Margar stærðir og útfærslur í boði. Þú
flokkar eða lætur okkur um það, þitt er valið.
Tölfræðiupplýsingar
Á Mínum síðum heldur þú utan um öll þín viðskipti
við okkur. Fylgist með hvernig fyrirtækið er að standa
sig í endurvinnslumarkmiðum sínum, fylgist með
losunum, pantar þjónustu og gengur frá þínum málum.
Hallgrímskirkja er eitt fegursta
mannvirki Íslendinga.
Hallgrímskirkja, með sinn 73 metra háa kirkjuturn er stærsta kirkja Íslands og rís
hæst bygginga yfir höfuðborgina
Reykjavík. Alþingi Íslendinga
hlutaðist til um byggingu kirkj-
unnar.
Í hugmyndasamkeppni árið
1929 var áskilið að kirkjan skyldi
rúma 1200 manns og hafa háan
turn sem gæti nýst fyrir væntan-
legt „víðvarp“ á Íslandi. Enn er
turninn notaður af útvarps- og
símafyrirtækjum til víðvörpunar.
Húsameistari ríkisins, Guðjón
Samúelsson (1887-1950), einn
virtasti arkitekt landsins, hófst
handa við að teikna kirkjuna árið
1937. Þjóðlegur stíll einkenndi
byggingarlist hans og notaði hann
íslenskar fyrirmyndir og íslenskt
efni. Hallgrímskirkja, sem varð
hans síðasta verk, minnir á stuðla-
berg, íslensk fjöll og jökla.
Bygging Hallgrímskirkju hófst
árið 1945 og 1948 var kjallari
kórsins vígður sem kirkjusalur. Þar
var messað þar til nýr kirkjusalur
var tekinn í notkun í suðurálmu
turnsins árið 1974. Kirkjan sjálf
var síðan vígð 26. október 1986,
daginn fyrir 312. ártíð Hallgríms
Péturssonar, sama ár og Reykjavík
hélt upp á 200 ára afmæli sitt.
Ríki og borg studdu verkið
en tveir þriðju hlutar bygg-
ingarkostnaðar kom úr sjóðum
safnaðarins og frá einkaaðilum.
Tignarleg smíð
og mannvirki
Framkvæmdaaðili sýningar-innar Verks og vits hefur að höfðu samráði við Embætti
landlæknis og samstarfsaðila
sýningarinnar ákveðið að fresta
sýningunni sem halda átti í
Laugardalshöll 12.-15. mars næst-
komandi fram til 15.-18. október
2020.
Í tilkynningunni segir: Í ljósi
aðstæðna vegna COVID-19 setur
framkvæmdaaðili sýningarinnar
heilsu og hag sýnenda, þjón-
ustuaðila og gesta sýningarinnar
í forgang og er þessi ákvörðun
tekin nú, áður en uppsetning hefst
á sýningunni. Verk og vit hefur
skipað sér sess sem uppskeruhátíð
bygginga- og mannvirkjageirans
en síðustu Verk og vit sýningu 2018
sóttu um 25.000 manns.
Með hliðsjón af eðli sýningar-
innar og þeim fjölda fólks sem
sækir sýninguna heim, þá væri það
erfiðleikum bundið að framfylgja
að fullu leiðbeiningum almanna-
varna. Til að gæta ýtrasta öryggis
sýnenda og gesta er sýningunni,
eins og áður er nefnt, frestað fram í
október 2020.
Uppselt var á sýningarsvæði
Verks og vits en halda átti sýn-
inguna í fimmta sinn. Yfir 100
fyrirtæki og stofnanir höfðu ætlað
að kynna vörur sínar og þjónustu á
sýningunni.
Verki og viti frestað fram í október
Sýningin Verk og vit hefur verið vel sótt. Hún var síðast haldin árið 2018.
Til að gæta ýtrasta
öryggis sýnenda og
gesta þá er sýningunni
frestað.
Tryggja þarf aðgengi fatlaðra í
öllum byggingum.
Samkvæmt lögum um mann-virki nr. 160/2010 fer Mann-virkjastofnun með aðgengis-
mál og þar með ferlimál fatlaðra í
byggingum.
Stefna stjórnvalda er að tryggja
aðgengi fyrir alla í sem flestum
byggingum. Með aðgengi fyrir alla
er átt við að fólki sé ekki mismun-
að um aðgengi og almenna notkun
mannvirkja á grundvelli fötlunar,
skerðinga eða veikinda og það geti
með öruggum hætti komist inn
og út úr mannvirkjum, jafnvel við
óvenjulegar aðstæður eins og til
dæmis í eldsvoða. Jafnframt séu
sjónarmið algildrar hönnunar
höfð að leiðarljósi við hönnun
bygginga og umhverfis þeirra.
Aðgengi fatlaðra
skal vera tryggt
12 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RVERK OG VIT