Fréttablaðið - 12.03.2020, Side 40

Fréttablaðið - 12.03.2020, Side 40
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Þegar ég máta eitthvað hugsa ég ekki um hvort það sé of kvenlegt eða karlmann- legt, ég nota bara það sem mér líkar og líður vel í. Lil Nas X skaust upp á stjörnu-himininn í Bandaríkjunum á síðasta ári með laginu „Old Town Road“, sem hann gerði með kántrípopparanum Billy Ray Cyrus. Síðan þá hefur hann orðið nokkurs konar tískutákn Z-kyn- slóðarinnar og táknmynd aukins umburðarlyndis í rappheiminum, en hann kom út úr skápnum í júní síðastliðnum. The Cut ræddi nýlega við hann um stílinn. Lil Nas X segist hafa haft mjög gaman af að leika sér með kúreka- stíl síðastliðið ár. „Ef ekki hefði verið fyrir „Old Town Road“ hefði mér líklega ekki einu sinni dottið í hug að prófa þennan stíl, en hluti af ástæðunni fyrir því að ég elska hann, er að ég get notað hann á svo marga mis- munandi vegu,“ segir rapparinn. „Ég hef klætt mig í allt svart með kögri og í neonbleikt með gyllingu í smáatriðum. Með því að skipta um liti og efni er hægt að gera þetta nýtt og spennandi í hvert skipti. En ég byrja örugglega að leika mér með nýjar hugmyndir mjög bráðlega. Ég fæ innblástur frá nokkurn veginn öllu sem ég sé í kringum mig, fólki, litum, sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, öllu þessu,“ segir Lil Nas X. „Ég vinn mjög náið með stílistanum mínum Hodo Musa til að finna nýjar og öðruvísi hugmyndir. Ég elska bjarta liti, en það er enn þá svo margt sem mig langar til að prófa og gera tilraunir með.“ Lil Nas X er meðal annars þekktur fyrir að vera alltaf með einn dinglandi eyrnalokk og mjótt yfirvaraskegg. „Ég hef verið með dinglandi kross í eyranu síðan í mennta- skóla og það hefur bara alltaf verið mitt sérkenni, eitthvað lítið til að vera mótvægi við demantseyrna- lokkana sem ég var oft með,“ segir hann. „Og mér finnst yfirvara- skeggið mitt bara flott svona, satt að segja.“ Lil Nas X hefur verið hampað fyrir að feta ótroðnar slóðir í karlatísku og endurskilgreina karlmannlega tjáningu, sem hann segir að sé mikið hrós. „Ég klæði mig bara í það sem mér finnst töff, en ef fólk lítur svo á að það sé að hafa áhrif á iðnaðinn er það bara enn betra,“ segir hann. „Línurnar eru svo óskýrar þessa dagana. Þegar ég máta eitthvað hugsa ég ekki um hvort það sé of kvenlegt eða karlmannlegt, ég nota bara það sem mér líkar og líður vel í. Mér er sama hvaða kyn það var ætlað fyrir.“ Lil Nas X segir að það sé klikkuð tilhugsun að hann sé álitinn tísku- tákn. „En ég meina, dressin mín eru geggjuð, svo það gleður mig að fólk hafi verið jafnhrifið af þeim og ég,“ segir hann. „Ég held að maður þurfi bara að víkka út mörk þess sem fólki finnst töff eða venju- legt, maður þarf að vera einstakur og prófa hluti sem enginn annar hefur prófað.“ Tvítugt tískutákn Rapparinn Lil Nas X hefur vakið mikla athygli með óhefðbundnum stíl. Hann hefur verið kallaður tískutákn nýrrar kynslóðar og fengið hrós fyrir að brjóta upp staðlaðar kynjaímyndir. Lil Nas X í neonbleikum kúrekagalla á Grammy-verðlaunahátíðinni. Lil Nas X elskar bjarta liti og er sama fyrir hvaða kyn flíkur eru ætlaðar. Hér leikur rapparinn ungi sér með töluvert öðruvísi út- lit. Hann segir að hann langi að prófa alls konar útlit.Lil Nas X leikur fyrir dansi í silfurlitum glansgalla með kögri á tónleikum BuzzFeed í júlí síðastliðnum. MYNDIR/GETTY Sótt? Hví? Fáðu sent! ...öruggasta matvöru- búðin er á netinu 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.