Fréttablaðið - 12.03.2020, Side 50
BÍLAR
Forseti New York bíla-sýningarinnar, Mark Scheinberg sagði þó á mánudaginn að sýningin yrði haldin. „Eins og er höldum við okkar striki
þar til einhver segir eitthvað annað,“
sagði Scheinberg og virtist ekki
hafa miklar áhyggjur af útbreiðslu
kóróna veirunnar. Annað virðist þó
ætla að koma á daginn því nú eru
allar líkur á að sýningunni verði
frestað fram í ágúst vegna aðgerða
yfirvalda í New York ríki.
Halda átti New York bílasýn-
inguna dagana 8.-19. apríl og átti
að frumsýna bíla eins og nýjan
Ford Bronco og VW ID.4. Nokkrir
framleiðendur höfðu reyndar sagt
að þeir myndu ekki taka þátt í ár,
en það voru þýsku merkin BMW,
Mercedes-Benz og Audi. Aðrir fram-
leiðendur höfðu flutt frumsýningar
sínar frá Genfar sýningunni, sem
var felld niður á þessu ári vegna
kórónaveirunnar, til New York bíla-
sýningarinnar.
Sýningin er venjulega haldin á
sýningarsvæði Javits Center og til
að bregðast við áhrifum kóróna-
veirunnar höfðu stjórnendur Javits
Center ákveðið að fjölga sótthreins-
unum á salernum, inngöngum,
hurðarhúnum og öðru sem gestir
sýningarinnar gætu verið í beinni
snertingu við. Sjötíu handhreinsi-
stöðvum hafði verið bætt við sýn-
ingarsvæðið, en þessar aðgerðir voru
ekki taldar duga að mati yfirvalda.
New York Auto Show frestað
Þegar hefur verið hætt við tvær stórar bílasýningar á þessu ári vegna kórónaveirunnar,
Auto Shanghai og Palexpo bílasýninguna í Genf. Nýjasta fórnarlamb veirunnar er
alþjóðlega bílasýningin í New York í apríl sem stóð til að halda allt fram á þriðjudag.
Hyundai hefur frumsýnt nýjan rafmagnsbíl sem kallast Prophecy, en eins og
nafnið gefur til kynna er þessi til-
raunabíll spádómur framleiðand-
ans um framtíðina.
Aðalsýningaratriði Hyundai á
bílasýningunni í Genf átti að vera
þessi tilraunabíll, en eins og flestir
þeir sem fylgjast vel með bílaheim-
inum vita var sú sýning slegin af
vegna kórónaveirunnar. Þótt ekkert
hafi verið gefið upp um hvort bíll
sem þessi muni fara í framleiðslu,
er ljóst að hönnunardeild Hyundai
hefur fengið að leika sér dálítið
með mögulega framtíð bílafram-
leiðandans.
Útlitið sjálft er ekki róttækt í
sjálfu sér og sækir greinilega til
annarra framleiðenda, en tæknin
er hins vegar á fullu gasi. Bíllinn
er með Pixel ljósum að framan og
aftan, eins og Concept 45 tilrauna-
bíllinn og að sögn Hyundai munum
við sjá slík ljós í bílum þeirra í fram-
tíðinni. Ekkert stýri er í bílnum sem
mun vera að mestu leyti sjálfkeyr-
andi, en tveir stýripinnar sitthvor-
um megin við ökumannssætið eru
til þess að ökumaður geti stjórnað
bílnum að einhverju leyti. Eins og
aðrir tilraunabílar nútímans er inn-
réttingin með skjái á allar hendur,
og einn skjár í viðbót kemur upp úr
mælaborðinu.
Spádómsbíllinn
frá Hyundai
Þann 20. október 2018 var opnuð sýning á ljósmyndum Pikes Ward í Ljósmynda-
safni Íslands. Myndirnar komu úr
safni þessa áhugaljósmyndara sem
var mikill Íslandsvinur á árunum
upp úr 1900. Hann keypti fisk og
myndaði það sem fyrir augun bar á
ferðum sínum hingað. Meðal þess
sem hann rakst á var annar bíllinn
sem hingað kom, oftast nefndur
Grundarbíllinn. Myndin er tekin
fyrir utan bæinn Grund í Eyjafirði
og sýnir bílinn mun betur en fyrri
mynd sem til var af honum gerði.
Sverrir Ingólfsson á Ystafelli er með
veglegt samgöngusafn eins og flestir
sem hafa áhuga á bílum vita. Hann
langaði að eiga eintak af myndinni
góðu og fékk leyfi til þess frá Devon
Heritage Center sem á myndina og
Þjóðminjasafninu. Hér er myndin
birt með góðfúslegu leyfi Þjóð-
minjasafnsins og áhugasömum
bent á að skoða myndina betur
næst þegar þeir gera sér ferð norður,
að skoða Samgönguminjasafnið á
Ystafelli.
Nýlega uppgötvuð mynd af næstelsta bíl Íslandssögunnar
Fyrsti bíll Norðurlands var Grundarbíllinn, sem nýlega birtist óvænt á mynd frá Pike Ward. MYND/ÞJÓÐMINJASAFNIÐ
Inngangur Javits Center í New York, þar sem bílasýningin er venjulega haldin. Hafði sjötíu handhreinsistöðvum verið bætt við. MYND/GETTY
Meðal þeirra bíla sem frumsýna átti á New York sýningunni var nýr Ford
Bronco sem sést hér á nýjustu myndinni sem birst hefur af honum á netinu.
Allar línur Prophecy eru mjúkar og
felgurnar minna á blöð í forþjöppu.
Pixel ljósin gætu farið að sjást í
bílum Hyundai von bráðar.
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
BMW bíla f ramleiðand inn hefur tilkynnt að framleiðsla i8 muni hætta innan skamms
eftir sex ár í framleiðslu. Sportbíll-
inn hefur haft mikil áhrif á tækni-
þróun BMW á undaförnum árum,
en þarf nú að víkja fyrir 100% raf-
drifnum bílum frá BMW, en líklegur
arftaki er 600 hestaf la sportbíll
byggður á Vision M Next tilrauna-
bílnum. BMW i8 var fyrst sýndur
sem tilraunabíll á Frankfurt bíla-
sýningunni árið 2011. Rúmlega 20
þúsund eintök hafa þegar verið
framleidd af i8 svo að hann verður
ekki safngripur alveg strax.
BMW hættir með
i8 sportbílinn
BMW i8 mun eflaust verða safn-
gripur bílaáhugamanna.
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R30 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð