Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 6
COVID-19 Samkomubann verður sett
á í fyrsta skiptið í lýðveldissögunni.
Greint var frá þessu á blaðamanna-
fundi heilbrigðisráðherra í gær.
Þar sátu forsætisráðherra, mennta-
málaráðherra og sóttvarnalæknir
einnig fyrir svörum. Tekur bannið
gildi aðfaranótt mánudags og gildir í
fjórar vikur fyrir samkomur fyrir 100
manns eða fleiri. Þar sem færri koma
saman er gert ráð fyrir tveggja metra
fjarlægðarmörkum milli fólks.
Á fundinum kom fram að fram-
haldsskólum og háskólum verður
lokað og kennsla fer fram með
fjarkennslu. Leikskóla- og grunn-
skólastarf heldur áfram, með við-
eigandi ráðstöfunum þó, sem á
eftir að útfæra nánar. Gildir bannið
um verslanir, íþróttaviðburði, ráð-
stefnur, dansleiki, kvikmyndasýn-
ingar, messur, sundlaugar og f leiri
staði. Hafnir og alþjóðaf lugvellir
eru undanskilin. Á fundinum sagði
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
að treyst væri á að fólk framfylgdi
þessum ákvæðum. Lögregla myndi
ekki vakta stórmarkaði eða sund-
laugar. Stórir vinnustaðir þurfa að
grípa til viðeigandi ráðstafana.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að farið hafi verið eftir
tillögum Þórólfs Guðnasonar sótt-
varnalæknis í nánast öllum atriðum
þegar ákvörðun um samkomubann
var sett á. Aðeins hafi verið gerðar
tvær smávægilegar breytingar. „Þór-
ólfur lagði til 15 barna stofuhámark í
grunnskóla en í auglýsingunni segir
20 og það snerist um framkvæmd. Sú
breyting var gerð í samráði við hann,“
segir Svandís. „Hin breytingin varðar
tímamörk. Í minnisblaði Þórólfs er
talað um ótímabundna aðgerð en eðli
málsins samkvæmt þarf hún að vera
tímabundin.“ Í viðaukaminnisblaði
sóttvarnalæknis frá því í gær kemur
fram að hann telji það rétta niður-
stöðu að miða við fjórar vikur.
Komi til þess að samkomubann-
inu yrði breytt á einhverja vegu, til
dæmis framlengt eða hert, yrði það
að vera gert að beiðni sóttvarna-
læknis. Vísar Svandís til 12. greinar
sóttvarnalaga í því samhengi.
„Þetta er mjög stórt skref sem við
erum að taka í dag,“ segir Svandís.
Hún nefnir ekki frekari aðgerðir til
heftingar útbreiðslu að svo stöddu
en brýnir fyrir almenningi að huga
vel að hreinlæti og handþvotti, sér-
staklega þegar komið er inn á nýja
staði. Einnig að fólk spritti farsíma og
forðist að snerta andlit sitt. „Með því
að draga úr smiti á milli manna erum
við að verja okkar viðkvæmasta fólk
og tryggja að heilbrigðiskerfið okkar
ráði við veiruna.“
Aðspurð hver kostnaður heilbrigð-
iskerfisins vegna COVID-19 sé, segir
Svandís ekki hægt að greina það. Ekki
heldur hvort hann hlaupi á tugmillj-
ónum, hundruðum eða milljörðum
króna. Hann sé margþættur, varði
Landlækni, sóttvarnalækni, lögreglu,
heilbrigðisráðuneyti og fleiri.
„Það eru of margir óvissuþættir
sem liggja fyrir. Um miðjan febrúar
voru fjármagnaðar þær breytingar
sem nauðsynlegar voru til að undir-
búa Landspítalann betur, svo sem
gáminn og að tryggja einangrun.
Það fékkst fjármagn til þess en að
öðru leyti höldum við þeim kostnaði
til haga sem fellur til og hann verður
bættur,“ segir Svandís.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Setning samkomubanns sé
stór og fordæmalaus ráðstöfun
Ríkisstjórn Íslands hefur sett á fjögurra vikna bann við samkomum sem miðast við 100 manns og tekur
gildi aðfaranótt mánudags. Heilbrigðisráðherra segir stjórnina hafa fylgt tilmælum sóttvarnalæknis í
nær öllum atriðum. Einnig að ógerlegt sé að meta kostnað vegna faraldursins fyrir heilbrigðiskerfið.
Svandís segir að tillögum sóttvarnalæknis hafi verið fylgt í flestum atriðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
VELDU GÆÐI!
Tilboð í mars.
2 fyrir 1 af
kleinuhringjum
allar helgar,
föstudaga til
sunnudaga.
COVID-19 Starfsdagur verður hald-
inn í grunn- og leikskólum á höfuð-
borgarsvæðinu á mánudag þar sem
stjórnendur og starfsfólk munu
vinna að útfærslu á starfi næstu
fjórar vikurnar. Samkvæmt sam-
komu banninu mega grunnskólar
aðeins hafa 20 nemendur í stofu
og á báðum stigum skal tryggja að
nemendum sé haldið eins aðskild-
um og kostur er.
Í undirbúningi eru sameigin-
legar leiðbeiningar sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu um
íþróttastar f, frístundaheimili,
skólahljómsveitir og aðrar tóm-
stundir barna.
Framhalds- og háskólum verður
lokað og kennsla fer fram í fjar-
kennslu og þá verður heimavistum
einnig lokað.
Fleiri opinberar stofnanir og
fyrirtæki bíða nú fyrirmæla vegna
samkomubannsins. Til að mynda
starfsfólk Landsbókasafnsins, sem
bjóst þó við því að safninu yrði
lokað en beið fyrirmæla frá ráðu-
neytinu.
Samkvæmt Steinþóri Einars-
syni, skrifstofustjóra ÍTR, er nú
fundað stíft um útfærslu, bæði
innan Reykjavíkurborgar og með
öðrum sveitarfélögum. Innan ÍTR
eru meðal annars sundlaugarnar,
skíðasvæðin, Hitt húsið, Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðurinn og
Nauthólsvík. „Við erum að fara yfir
þá möguleika sem eru í stöðunni
og höfum helgina,“ segir Stein-
þór og jafnframt að áskorunin sé
margslungin. „Grunnskólunum er
ekki lokað en þar eru nemendur
sem koma til okkar í skólasund.
Stundum eru þetta nemendur
sem þurfa mikla aðstoð en samt
þurfum við að huga að tveggja
metra fjarlægð.“
Bæði stóru leikhúsin, Þjóðleik-
húsið og Borgarleikhúsið, hafa
ákveðið að fresta sýningum vegna
bannsins. Í Þjóðkirkjunni verður
sálgæsluhlutverki haldið áfram en
allar messur falla niður og ferming-
um verður frestað. Siðmennt hefur
einnig ákveðið að fresta raun-
heimamessum, en hægt verður að
fermast rafrænt.
Í Kringlunni og Smáralind verða
ekki f jöldatakmarkanir á sam-
eiginlega rýminu en hver búð þarf
að fylgja 100 manna reglunni. – khg
Áhrif samkomubannsins eru óljós
COVID -19 Sú óvissa sem uppi er
varðandi COVID-19 og þau efna-
hagslegu áhrif sem faraldurinn hefur
snertir íbúa Reykjanesbæjar meira
en flest aðra landsmenn samkvæmt
Kjartani Má Kjartanssyni bæjar-
stjóra. Vegur þar ferðabann Donalds
Trump á Ísland og önnur Schengen-
lönd þungt.
„Maður finnur að sumir eru ótta-
slegnir á meðan aðrir eru pollró-
legir,“ segir Kjartan. „Þetta er nær
okkur út af nándinni við Keflavíkur-
flugvöll, þar sem margir bæjarbúar
starfa. Svo kom þetta ferðabann
ofan í allt, sem kemur sér mjög illa
fyrir okkur sem atvinnusvæði.“ En
Suðurnesin voru viðkvæm fyrir
vegna kólnunar í hagkerfinu og
atvinnuleysi um níu prósent. „Þetta
er óvissa og við bíðum eftir nánari
upplýsingum frá Icelandair. Vinnu-
málastofnun, verkalýðsfélögin, það
eru allir á tánum að bíða og sjá hvað
verður.“ Þá greindu Víkurfréttir frá
því að hundruð hótelherbergja og
bílaleigubíla hefðu verið af bókuð
vegna frestunar varnaræfingar, sem
var viðbragð utanríkisráðherra við
ferðabanni Trumps.
Líkt og í mörgum öðrum sveitar-
félögum hefur verið sett upp neyðar-
stjórn í stjórnkerfi sveitarfélags-
ins og fundar hún nú daglega um
aðgerðir, upplýsingaöflun og -veitu
fyrir 50 starfsstöðvar sveitarfélags-
ins. „Þetta hefur gengið vel og þær
aðgerðir sem við höfum farið í hafa
notið skilnings,“ segir Kjartan.
Stjórnin hefur meðal annars tekið
ákvörðun um að loka ýmsum sam-
komustöðum, einkum fyrir þá eldri,
sem eru mesti áhættuhópurinn. Þá
voru tónleikar á vegum tónlistar-
skólans blásnir af og einnig árs-
hátíðir grunnskólanna sem áttu að
fara fram í næstu viku, um óákveð-
inn tíma. – khg
Íbúar Reykjanesbæjar í óvissu vegna ástandsins í fluginu
Skólasund í Vesturbæjarlaug.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Í gær höfðu 134 tilfelli af
COVID-19 verið staðfest
hérlendis. Þá eru 1.109
manns í sóttkví.
Svo kom þetta
ferðabann ofan í
allt, sem kemur sér mjög illa
fyrir okkur sem atvinnu-
svæði.
Kjartan Már
Kjartansson,
bæjarstjóri
RÍKISFJÁRMÁL Frumvarp fjármála-
ráðherra um að gjalddaga helmings
opinberra gjalda verði frestað um
mánuð, var samþykkt á Alþingi í
gær með 47 samhljóða atkvæðum.
Sextán þingmenn voru fjarverandi.
Aðeins þetta eina mál var á dag-
skrá þingfundarins í gær og lá fyrir
samþykki þingsins um að taka það
á dagskrá með af brigðum, þar sem
stutt er síðan frumvarpið var lagt
fram.
Lögin gera það að verkum að
gjalddagi helmings staðgreiðslu- og
tryggingagjalds frestast til 15. apríl,
en hefði annars komið til greiðslu á
mánudaginn.
Samtals geta því fyrirtæki lands-
ins frestað greiðslu upp á allt að 22
milljarða. Í framsöguræðu sinni
hvatti fjármálaráðherra þau fyrir-
tæki sem ekki þurfa frestinn til að
standa skil á greiðslunum að fullu á
mánudag. – jþ
Fresta gjalddaga
opinberra gjalda
KJARAMÁL Sólveig Anna Jónsdótt-
ir, formaður Ef lingar, gagnrýnir
vinnubrögð Sambands íslenskra
sveitarfélaga í kjaraviðræðum við
félagið. Búið sé að semja við ríkið
og borgina fyrir sambærilega hópa
á sama atvinnusvæði.
„Það liggur alveg fyrir á hvaða for-
sendum er hægt að loka samningi
við sveitarfélögin,“ segir í yfirlýs-
ingu frá Sólveigu Önnu.
Verkfall um 300 félagsmanna Efl-
ingar sem starfa hjá Kópavogsbæ,
Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Sveit-
arfélaginu Ölfusi og Hveragerðisbæ
hefur staðið frá því á mánudag.
Mest hafa áhrifin verið í Kópa-
vogi þar sem grunnskólum hefur
verið lokað. „Í stað þess að bretta
upp ermar þá draga þau svör og
krefjast þess að láta óratíma líða
milli funda, sem er ábyrgðarleysi
og vanvirða,“ segir enn fremur í yfir-
lýsingu Sólveigar Önnu. – sar
Ábyrgðarleysi
og vanvirða
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð