Fréttablaðið - 14.03.2020, Qupperneq 12
Flest þeirra sem látið
hafa lífið í óveðrinu eru
íbúar fátækrahverfanna.
NISSAN LEAF
Nú í boði með 62 kWh rafhlöðu
og 385 km drægi.*
*U
p
p
g
ef
na
r
tö
lu
r
um
d
ræ
g
i t
ak
a
m
ið
a
f
ný
ju
m
W
LT
P
p
ró
fu
nu
m
.
A
ks
tu
rs
la
g
,
hi
ta
st
ig
o
g
á
st
an
d
v
eg
a
he
fu
r
af
g
er
an
d
i á
hr
if
á
d
ræ
g
i r
af
b
íla
.
Don't enlarge the this template.
The size of this template can be reduced.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
100% rafdrifinn Nissan Leaf er vinsælasti rafbíll landsins og einn mest seldi í
heiminum. Nýr Nissan Leaf er nú fáanlegur með 62 kWh rafhlöðu sem dregur
allt að 385 km*. Nissan Leaf er hlaðinn tækninýjungum á borð við e-Pedal sem
auðveldar hemlun og endurnýtir orku.
www.nissan.is
NÝR NISSAN LEAF 42 kWh
VERÐ FRÁ: 4.590.000 KR.
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
BL hefur gengið til samstarfs við samfélagssjóðinn Kolvið til að kolefnisbinda
notkun allra nýrra bíla sem seldir eru til einstaklina. www.bl.is/kolefnisjofnun
BL kolefnisbindur notkun nýrra bíla
ÁBYRGÐ5
120.000 KM
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
0
2
5
6
N
is
s
a
n
L
e
a
f
a
lm
e
n
n
5
x
2
0
m
a
rs
EGYPTALAND Yfir tuttugu manns
hafa látið lífið og enn f leiri slasast
í miklu óveðri sem hefur geisað í
Egyptalandi síðastliðna daga. Mik-
ill stormur, rigningar og þrumu-
veður hefur gengið yfir landið frá
því á miðvikudag og samgöngur
hafa raskast. Mostafa Madbouly,
forsætisráðherra Eg y ptalands,
segir veðrið það versta sem gengið
hafi yfir landið í áratugi.
Fimmtudagurinn var gerður að
almennum frídegi í landinu með
það að markmiði að fækka fólki á
götum úti. Skólum og opinberum
stofnunum var lokað og fólk var
hvatt til að halda sig heima. Þá
hefur fólki verið ráðlagt að leggja
bílum sínum ekki nærri trjám eða
vötnum, en mikið hefur verið um
f lóð í landinu vegna veðursins.
Þrettán manns slösuðust þegar
tvær farþegalestir skullu saman í
höfuðborginni Kaíró vegna veðurs-
ins, þá hefur verið mikið um raf-
magnstruf lanir og byggingar hafa
hrunið. Í það minnsta sex börn
hafa látist vegna raf losts og þegar
heimili þeirra hafa hrunið. Þá lést
ökumaður bifreiðar eftir að vind-
hviða feykti bíl hans ofan í skurð í
Sohag-héraði.
Í borginni Ismali í vesturhluta
Eg y pt alands r ig ndi 25 milli-
metrum á einum sólarhring og á
sumarfrísstaðnum Mersa Matruh
mældust á sama tíma 20 milli-
metrar. Stór hluti Kaíró er undir
vatni vegna f lóða.
Flest þeirra sem látið hafa lífið í
óveðrinu eru íbúar fátækrahverfa
landsins og hafa yfirvöld verið
gagnrýnd harðlega bæði fyrir lítil
sem engin viðbrögð vegna veð-
ursins og lélega innviði í landinu,
svo sem langvarandi rafmagns- og
vatnsbrest og ófullnægjandi frá-
rennsli.
Stuðningsmenn egypsku ríkis-
stjórnarinnar segja gagnrýnina
ekki á rökum reista og að núver-
andi ríkisstjórn hafi erft mistök
fyrri stjórna marga áratugi aftur
í tímann. Þá segir Madbouly að
ríkisstjórn hans hafi bæði unnið
að því að bæta innviði og auka
þjónustu í landinu. Í Egyptalandi
er frárennsliskerfið lélegt og treyst
er á yfir aldargamalt kerfi þegar
kemur að frárennsli regnvants.
birnadrofn@frettabladid.is
Yfir tuttugu látnir í óveðrinu
Óveður hefur geisað í Egyptalandi síðan á miðvikudaginn. Yfir tuttugu manns hafa látið lífið og enn
fleiri eru slasaðir. Ríkisstjórn Egyptalands hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir lélega innviði í landinu.
Götur í úthverfi Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, eru að miklu leyti undir vatni eftir rigningar í landinu. MYND/AFP
COVID -19 Dönsk stjórnvöld hafa
ákveðið að loka landamærum
sínum á hádegi í dag vegna
útbreiðslu kórónaveirunnar. Þetta
tilkynnti Mette Frederiksen, for-
sætisráðherra Danmerkur, í gær-
kvöldi.
Til stendur einnig að stöðva
flug, bíla- og lestaumferð í landinu
til 13. apríl. Sagði Mette að búast
mætti við því að herinn yrði nýttur
til landamæraeftirlits. Ekki stæði til
að hefta fraktflutninga.
Pólsk yfirvöld hafa einnig ákveð-
ið að loka sínum landamærum og
ætla að meina öllum erlendum far-
þegum aðgang að landinu næstu
tíu daga. Þetta tilkynnti Mateusz
Morawiecki, forsætisráðherra
landsins, í gærkvöldi.
Þá verður öllum veitingastöðum,
börum og spilavítum í Póllandi
lokað og samkomubanni þar sem
f leiri en fimmtíu koma saman
komið á.
Donald Trump Bandaríkjafor-
seti hefur lýst yfir neyðarástandi í
Bandaríkjunum vegna útbreiðslu
kórónaveirunnar. Þetta tilkynnti
forsetinn á blaðamannafundi í gær.
Á fundinum hét hann því meðal
annars að ríkið myndi veita fimm-
tíu milljörðum dollara í að hefta
útbreiðslu veirunnar. – oæg
Þjóðir bregðast
við COVID-19
Mette
Frederiksen.
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð