Fréttablaðið - 14.03.2020, Qupperneq 22
ÉG OG MAÐURINN MINN
ÞURFTUM AÐ KLJÁST VIÐ
ÓFRJÓSEMI OG ÞAÐ VAR ÉG
SEM VAR VANDAMÁLIÐ.
Tinna Hrafnsdóttir leik-kona, leikstjóri, fram-leiðandi og handrits-höfundur, segist alla tíð hafa verið árang-ursmiðuð, enda meyja.
„Þegar ég tek mér eitthvað fyrir
hendur fylgi ég því eftir og klára
það,“ segir hún.
Tinna, sem er fædd í Reykjavík í
ágúst árið 1975, segist þó ekki vera
hin týpíska meyja. „Ég er allavega
ekki með þrifaæði en er góð í að
skipuleggja og hef ágætis yfirsýn,“
segir hún og hlær.
Tinna hóf nám í lögfræði við
Háskóla Íslands árið 1995, færði
sig svo yfir í bókmenntafræði en
þegar hún átti eina önn eftir komst
hún inn í Leiklistarskólann. Síðan
þá hefur hún skapað mikið af sínum
verkefnum sjálf og unnið við kvik-
myndir, leikhús og sjónvarp.
„Þegar ég útskrifaðist úr Leiklist-
arskólanum buðust mér hlutverk
hjá sjálfstæðum leikhópum en mín
stærstu tækifæri á leiklistarbraut-
inni hafa hingað til verið í kvik-
myndabransanum,“ segir Tinna.
Árið 2006 hlotnaðist Tinnu aðal-
hlutverkið í kvikmynd Guðnýjar
Halldórsdóttur, Veðramótum, og
var tilnefnd til Eddunnar fyrir þá
frammistöðu.
„Mín kynni af leikhúsinu urðu
því fyrst og fremst af starfi sjálf-
stæðu leikhúsanna og því þróaðist
það þannig að ég stofnaði mitt eigið
leikfélag og fór að skapa mín verk-
efni sjálf,“ segir Tinna.
Hún segir það hafa tekið á sálar-
lífið að bjóðast ekki tækifæri innan
stóru leikhúsanna en að sama skapi
hafi hún lært mikið af því. „Lengi vel
fannst mér eina leiðin vera annað-
hvort starf í í Borgarleikhúsinu eða
Þjóðleikhúsinu svo á tímabili var
ég við það að missa móðinn,“ segir
Tinna. „Ég átti erfitt með að finna
sjálfstraustið til að standa á eigin
fótum en tveir þættir ýttu mér úr
vör og gáfu mér kjark til að finna
mína leið,“ segir Tinna.
Árið 2005 skráði Tinna sig í MBA-
nám við Háskólann í Reykjavík.
Í náminu segist hún hafa kynnst
fólki úr öllum kimum þjóðfélagsins
og að sjálfstraust hennar hafi aukist
til muna.
„Mér fannst gott að komast
inn í annað umhverfi og kynnast
nýju fólki. Þarna var fólk úr öllum
áttum tilbúið að deila sinni ólíku
reynslu, engin samkeppni heldur
mikið traust,“ segir hún. „Ég fann
líka hvað listin og mitt listnám var
mikilvægt í viðskiptaumhverfinu,“
bætir Tinna við.
Draumurinn að eignast barn
„Hinn þátturinn var sá að ég og
maðurinn minn þurftum að kljást
við ófrjósemi og það var ég sem var
vandamálið,“ segir Tinna en hún
greindist með óútskýrða ófrjósemi
og við tóku fimm ár þar sem hún og
maðurinn hennar, Sveinn Geirsson
leikari, reyndu að eignast barn.
„Ég sagði eitt sinn við vinkonu
mína að ef það væri eitthvað sem
ég gæti ekki tekist á við þá væri það
að geta ekki eignast barn. Svo þegar
það varð reyndin stóð ég frammi
fyrir því að þurfa að heyja baráttu
við eitthvað sem ég hafði ákveðið
fyrir fram að ég gæti ekki og það var
erfitt,“ útskýrir Tinna.
„Ég reyndi allt til að lækna mig
sjálf. Tók mataræðið í gegn, stund-
aði jóga, heilun og nálastungur, allt
sem mér datt í hug því minn allra
stærsti draumur var að verða móðir.
Það var markmið sem ég ætlaði allt-
af að ná, alveg frá því ég man eftir
mér,“ segir Tinna.
„Við háðum þessa baráttu í fimm
löng ár og oft og tíðum vorum við
við það að gefa upp vonina en sem
betur fer gáfumst við ekki upp,“
segir hún stolt.
Varð ólétt að tvíburum
Tinna og Dói, eins og hún kallar
hann, fóru í allar þær tæknifrjóvg-
unarmeðferðir sem stóðu til boða
og á endanum varð Tinna ólétt að
tvíburum.
„Ég trúði ekki niðurstöðunni
þegar ég pissaði á fyrstu prufuna
og sendi Dóa út í búð til að kaupa
tíu prufur í viðbót. Svo staðfesti
læknirinn okkar þungunina og ég
get ekki lýst þeirri sigurtilfinningu,“
segir Tinna og gleðin skín úr andliti
hennar.
Tvíburarnir fæddust heilbrigðir
eftir erfiða fæðingu en Tinna þurfti
að dvelja í níu daga á spítalanum.
„Ég man að ég hugsaði að allt yrði
í lagi ef þeir væru í lagi, ég myndi
jafna mig. Lífið er svolítið þannig,
ef börnin manns eru í lagi, þá er
allt gott,“ segir Tinna. „Nú eru þeir
orðnir átta ára og ég er stöðugt að
vinna í að sleppa takinu og vera
ekki of mikil ungamamma,“ segir
hún.
Fékk aukinn kraft
„En við það að sigra í þessari löngu
ófrjósemisbaráttu leystist úr læð-
ingi einhver fítonskraftur sem ég
bý enn að,“ segir Tinna. „Ég hugsaði,
fyrst ég gat þetta, þá hlýt ég að geta
allt. Aðrir ósigrar verða að minnsta
kosti mun auðveldari héðan í frá því
sá stærsti er unninn. Ég fann fyrir
auknu æðruleysi og hugsaði, þó að
verkefni mín nái ekki því takmarki
sem ég óska mér þá er það enginn
heimsendir í stóra samhenginu.
Miklu frekar lexía sem mun fleyta
mér reynslunni ríkari yfir í næsta
verkefni,“ bætir hún við.
„Ég lærði líka að skilja að það eru
ekki tækifærin sem bjóðast eða
staða manns í lífinu sem skilgreinir
mann, heldur miklu frekar hvernig
maður vinnur úr henni og því hlut-
skipti sem lífið veitir manni. Það er
nefnilega svo margt undir manni
sjálfum komið. Ef maður á sér
draum er í raun og veru ekkert sem
getur stöðvað mann í að vinna að
honum nema maður sjálfur. Mestu
máli skiptir bara að halda í trúna og
gefast ekki upp,“ segir hún.
„Í dag er ég gríðarlega þakklát
fyrir að hafa þurft að hafa svolítið
fyrir hlutunum. Það gerði mér á
endanum virkilega gott að þurfa
að standa á eigin fótum og komast
að því hvað ég gæti. Mótlæti getur
nefnilega líka styrkt mann ef manni
tekst að sjá það í öðru ljósi. Ég fann
líka svo sterka þörf fyrir að segja
sögur að ég hreinlega varð að fara
að leikstýra og skrifa sjálf,“ bætir
hún við.
Ekki hefðbundið uppeldi
Tinna er alin upp í Vesturbænum
þar sem hún gekk í Mela- og Haga-
skóla. Hún á þrjú alsystkin og tvö
hálfsystkin og segir hún fjölskyldu-
lífið ekki hafa verið hefðbundið.
„Ég ólst upp með þremur syst-
kinum mínum og við höfum alla tíð
verið mjög náin,“ segir hún.
„Foreldrar mínir skildu á tíma-
bili, tóku svo aftur saman og skildu
nokkrum sinnum, svo á köflum var
heimilislífið mjög tvístrað,“ heldur
hún áfram. „Ég á einstaklega góða
móður sem hefur verið mér og
systkinum mínum mikil stoð og
stytta í gegnum ævina. Hún er allt-
af boðin og búin að hjálpa mér með
tvíburana og það sem ég tek mér
fyrir hendur,“ segir Tinna.
„Margir úr mínum innsta fjöl-
skyldukjarna eru þekktir ein-
staklingar og hafa verið mikið á
milli tannanna á fólki svo það að
vera „frægur“ hefur aldrei verið
heillandi fyrir mér. Mér fannst oft
óþægilegt þegar ég var lítil að allir
vissu hver hinn og þessi í minni fjöl-
skyldu væri því þess konar athygli
getur búið til ákveðna meðvitund
hjá barni sem skekkir veruleikann,
þó það sért ekki þú sem ert þekktur
heldur bara einhver sem tengist
þér,“ segir Tinna. „Ég óttaðist því oft
álit annarra og gat miklað hlutina
fyrir mér,“ segir hún.
„Samskipti við föður minn hafa
síðustu ár fjarað út af mörgum
ástæðum. Á ákveðnu tímabili fór
ég í mikla sjálfsskoðun og komst
að því hversu mikilvægt það er að
setja mörk,“ segir hún. „Því ef þú
setur ekki mörk og virðir þau sjálf,
geturðu ekki ætlast til að aðrir geri
það,“ segir Tinna. „Það getur þó
verið erfitt að gera greinarmun á
meðvirkni og því sem manni ber
að gera, en þegar það lærist skapast
ákveðið frelsi sem hjálpar manni að
standa með sjálfum sér og því sem
skiptir mann máli,“ útskýrir hún.
Tinna fór til sálgreinis og fékk
hjálp við að vinna úr ýmsum spurn-
ingum um sig og sitt líf sem hún átti
erfitt með að svara sjálf. „Ég held að
allir hefðu gott af einhvers konar
sjálfsskoðun því f lest búum við að
einhverri reynslu sem við kunnum
ekki að vinna úr sjálf,“ segir hún.
„Það þarf ekki endilega að vera sár
eða erfið reynsla. Bara það að vera
manneskja getur stundum verið
alveg óskaplega flókið,“ segir Tinna
og hlær.
Mótlætið
hefur gert
mér gott
Tinnu Hrafnsdóttur dreymdi alltaf um að
verða móðir. Hún reyndi að eignast barn
í fimm ár. Draumurinn rættist þegar hún
varð ólétt að tvíburum og hún fylltist krafti
sem hún nýtir í starfi sínu sem leikstjóri.
Tinna er þessa dagana við tökur á danskri stórmynd um ævi Margrétar fyrstu drottningar. Þar fer Tinna með hlut-
verk aðstoðarkonu drottningar og leikur á móti fjölda þekktra leikara frá Norðurlöndunum. FRÉTTABALAÐIÐ/ERNIR
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn@frettabladid.is
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð