Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 40

Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 40
Hæfniskröfur • Háskólamenntun í matvælafræði eða sambærileg menntun. • Þekking á stjórnsýslu opinberra eftirlitsaðila í tengslum við matvælarekstur æskileg. • Afbragðs geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. • Góð almenn tölvufærni. • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2020 og skulu umsóknir berast í tölvupósti á rekstur@hagkaup.is. Aðeins umsóknir sem innihalda ferilskrá verða teknar til greina. Hagkaup skorar jafnt á konur sem karla að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Svanberg Halldórsson – svanberg@hagkaup.is. Gæða- og þjónustustjóri Hlutverk gæða- og þjónustustjóra er að hafa yfirumsjón með mótun gæðastefnu Hagkaups, kynningu hennar og eftirfylgni. Í starfinu felst m.a. aðhald við ferla í tengslum við heilbrigðismál, samskipti við opinbera eftirlitsaðila, gerð áhættumats, eftir- fylgni útbótaáætlunar, ábyrgð á gerð og viðhaldi gæðahandbóka og mótun umhverfisstefnu fyrirtækisins. Gæða- og þjónustustjóri starfar innan rekstrarsviðs verslana og sinnir fjölbreyttum verkefnum er snúa að daglegum verslunarrekstri. Markmið gæða- og þjónustustjóra Hagkaups er að einfalda og bæta skilvirkni í verk- ferlum er snúa að heilbrigðismálum, þjónustugæðum og vinnuöryggi starfsmanna. Hagkaup er leiðandi smásölu- fyrirtæki sem býður breitt úrval af vörum til daglegra þarfa í matvöru, fatnaði, snyrtivöru, húsbúnaði og tómstundavöru. Hagkaup leggur sérstaka áherslu á þjónustu og gott aðgengi að vörum og kappkostað er við að gera verslunarferðina eins ánægjulega og hagkvæma fyrir viðskiptavininn og mögulegt er. tonhun.is Tónlistarkennarar - fjölbreytt tækifæri í Húnavatnssýslu Tónlistarskóli A-Húnavatnssýslu óskar eftir að ráða kennara á tré- og málmblásturshljóðfæri, gítar, bassa og slagverk frá september 2020 Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og góða færni á sín hljóðfæri, vera fær í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af að vinna með börnum. Þá þarf viðkomandi að vera metnaðarfullur, áreiðanlegur og áhugasamur. Til greina kemur að kennari á blásturshljóðfæri stofni lúðrasveit eða samspilssveit en skólinn á stórt og fjölbreytt safn nótna fyrir lúðrasveit sem og gott úrval hljóðfæra. Hægt er að búa til 100% stöðu fyrir einstakling sem treystir sér í kennslu á nokkrum sviðum. Skólinn hefur þrjár starfsstöðvar, á Skagaströnd, Blönduósi og Húnavöllum og eru nemendur skólans rúmlega 100. Kennt er á öll helstu hljóðfæri og er gott samstarf milli grunnskóla og tónlistarskóla. Stór hluti nemenda kemur á skólatíma í kennslustundir. Um er að ræða stöðu fyrir einn eða fleiri einstaklinga, allt eftir bakgrunni og sérsviði hvers og eins. Hæfniskröfur: Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi. Laun: Samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FÍH/FT. Nánari upplýsingar: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir skólastjóri tónlistar skólans í síma 868 4925 eða á netfanginu tonhun@tonhun.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl nk Umsóknir skilist á tonhun@tonhun.is. Söngkennari Tónlistarskóli Kópavogs auglýsir stöðu söngkennara frá og með skólaárinu 2020-21. Við leitum að einstaklingi/einstaklingum með söngmenntun á háskólastigi og reynslu af flutningi og kennslu í klassískum söng. Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á netfangið tonlistarskoli@tonlistarskoli.is eða skili á skrifstofu skólans fyrir 20. mars. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 570-0410. Tónlistarskóli Kópavogs er vel búinn mannafla og býr við fyrirtaks aðstöðu. Í skólanum er boðið upp á nám í hljóðfæraleik, söng, tölvutónlist og tónfræðagreinum í samræmi við aðalnámskrá tónlistarskóla. Í söngdeildinni hefur á liðnum árum verið lögð rækt við að þjálfa nemendur í að taka reglulega þátt í uppsetningum á óperusýningum. Almenn garðyrkjustörf, flokkstjórar og vélamenn Störfin tilheyra garðyrkjudeild Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma og felast í almennri umhirðu útisvæða s.s. slátt, gróðursetningu og illgresishreinsun í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði, Hólavallagarði við Suðurgötu og Kópavogskirkjugarði. Ráðningartími er 10-14 vikur frá miðjum maí. Hæfniskröfur almenn garðyrkjustörf • Umsækjandi sé fæddur árið 2003 eða fyrr • Stundvísi og samviskusemi Hæfniskröfur flokkstjóra • Reynsla af garðyrkjustörfum • Sjálfstæð vinnubrögð • Færni í mannlegum samskiptum • Stundvísi og samviskusemi Menntun og hæfniskröfur vélamanna • Dráttarvélaréttindi • Sjálfstæð vinnubrögð • Stundvísi og samviskusemi Umsókn berist skrifstofu Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma í Fossvogi, Vesturhlíð 8, 105 Reykjavík fyrir 15. mars 2020, merkt "Sumarstörf". Einnig er hægt að fylla út umsókn á www.kirkjugardar.is og senda rafrænt. Sumarstörf

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.