Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 44
Skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga
Stjórn Tónlistarskóla Rangæinga bs. auglýsir lausa stöðu
skólastjóra við Tónlistarskóla Rangæinga frá og með
1. ágúst 2020. Aðalskrifstofa skólans er á Hvolsvelli,
en kennsla fer fram á Hvolsvelli, Hellu og Laugalandi.
Skólinn býður upp á grunn-, mið- og framhaldsnám í
hljóðfæraleik. Alls stunda 352 nemendur nám við skólann
og þar af eru 182 grunnskólanemendur í forskólanámi við
skólann.
Helstu verkefni og ábyrðarsvið
• Stjórnun og ábyrgð á rekstri skólans og daglegri
starfsemi
• Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
Menntunar og hæfniskröfur
• Framhaldsmenntun á sviði tónlistar
• Reynsla af tónlistarkennslu og tónlistarflutningi
• Reynsla í stjórnun og rekstri er áskilin
• Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg ferilsskrá ásamt
greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi til
starfans.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2020.
Upplýsingar um starfið veita Sigurgeir Guðmundsson
skólastjóri sigurgeir@tonrang.is og Ágúst Sigurðsson
stjórnarformaður agust@ry.is. Umsóknum skal skila með
rafrænum hætti til agust@ry.is
Fylltu út umsókn á kronan.is/atvinna
Umsóknarfrestur er til 22. mars
Er
um
v
ið
að
passa saman?
Óskum eftir
vaktstjórum
í Krónunni!
-Villt þú koma í skemmtilegan hóp?
Verkstjórnandi - Klettagörðum Bókari - Álhellu
Umsóknir sendist á velras@velras.is
Frekari upplýsingar í síma 552-6270
Sérnámsstöður í heilsugæsluhjúkrun
Lausar eru til umsóknar 12 sérnámsstöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæsluhjúkrun. Stöðurnar eru
sex við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), tvær við Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN),
ein við Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU), ein við Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), ein
við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) og ein við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVEST). Hver
sérnámsstaða er 80% og veitist frá 1. ágúst 2020 til eins árs.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2020
Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Námið samanstendur af fræðilegu námi við
Háskólann á Akureyri og klínískri þjálfun á heilsugæslustöð hjá HH, HSN, HSU, HSA, HSS eða HVEST undir handleiðslu
lærimeistara. Námið er skipulagt til eins árs og lýkur með viðbótardiplóma gráðu.
Nánari upplýsingar á www.starfatorg.is
Markmið sérnáms
• Efla hæfni hjúkrunarfræðinga,
meðal annars í þverfaglegu
samstarfi á heilsugæslustöð
• Móta viðhorf og sýn til þjónustu
heilsugæslunnar í komandi
framtíð
• Veita nemendum tækifæri til að
rýna í og innleiða gagnreynda
starfshætti í daglegu starfi
undir handleiðslu lærimeistara á
heilsugæslustöð
Menntunar- og hæfniskröfur
• Almennt hjúkrunarleyfi, BS
gráða (lágmarkseinkunn 7,00)
• Viðkomandi sé starfandi
á heilsugæslustöð og hafi
a.m.k. eins árs starfsreynslu í
heilsugæslu
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í
starfi
• Hæfni í mannlegum
samskiptum er skilyrði
Nánari upplýsingar veita
• Sesselja Guðmundsdóttir, Þróunarmiðstöð
íslenskrar heilsugæslu, s. 513-5046 eða sesselja.
gudmundsdottir@heilsugaeslan.is
• Guðný Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
HSN, s. 860-7750 eða gudnyf@hsn.is
• Anna María Snorradóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar HSU, s. 432-2007 eða annamaria@hsu.is
• Nína H. Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar
HSA, s. 470-3054 eða ninahronn@hsa.is
• Alma María Rögnvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar HSS s. 422-0625 eða alma@hss.is
• Hildur Elísabet Pétursdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar HVEST s. 450-4500 eða hildurep@hvest.is
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 4 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R