Fréttablaðið - 14.03.2020, Síða 56
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
www.fridaskart.is
Talið er að sjö daga viku megi rekja 4.000 ár aftur í tímann til Babýlóníu. Þá
var talið að í sólkerfinu væru
sjö reikistjörnur og sjö var því
heilög tala sem stjórnaði tímatali
Babýlóníumanna. Hugmyndin
um sjö daga viku dreifðist síðan
um Mið-Austurlönd og þaðan til
Evrópu. En þessi sjö daga vika
skiptist ekki niður í helgar og virka
daga á þessum tíma. Helgar urðu
til miklu seinna og voru afleiðing
iðnbyltingarinnar, trúarbragða og
réttindabaráttu verkafólks.
Sunnudagur voru helgidagar á
19. öld í Bretlandi. Þá átti enginn
að þurfa að vinna heldur voru
sunnudagar hugsaðir til þess að
fólk gæti sinnt andlegum mál-
efnum. Þó var fólk sem notaði
tækifærið og nýtti fríið til að sletta
ærlega úr klaufunum. Þetta sama
fólk átti því oft erfitt með að mæta
hresst og tilbúið til vinnu á mánu-
dagsmorgnum.
Það varð hálfgerð hefð að mæta
ekki til vinnu á mánudögum hjá
sumu verkafólki og hugtakið Heil-
agur mánudagur varð til. Fram-
leiðni á mánudögum varð minni
sem varð til þess að verksmiðjueig-
endur ákváðu að gera laugardaga
að hálfum vinnudegi. Það átti að
tryggja að verkafólk mætti hresst
til vinnu á mánudögum með
aukinn metnað til vinnu. Þessi
aðferð virtist skila árangri og eins
og hálfs dags helgi varð til.
Frí á laugardögum til að
koma til móts við gyðinga
Sunnudagar eru helgidagar hjá
kristnu fólki en að hafa frí á sunnu-
dögum hentaði ekki þeim mörgu
gyðingum sem unnu í verksmiðj-
unum og vildu halda sinn hvíldar-
dag, sabbat, á laugardegi. Sabbat
byrjar á sólsetri á föstudagskvöldi
og stendur yfir til sólseturs á
laugardegi. Hjá gyðingum er þetta
heilagasti tími vikunnar.
Bandaríkin voru fyrst til að
Hvernig helgar urðu til
Af hverju er vikan sjö dagar og vinnuvikan almennt fimm dagar hjá vinnandi fólki? Lengi vel var
sunnudagur eini frídagur verkafólks á Vesturlöndum en rúm öld er síðan það tók að breytast.
Eftir að tveggja daga helgi var fyrst prófuð mætti starfsfólk endurnært til vinnu eftir að hafa varið tíma sínum í samveru með fjölskyldunni. MYNDIR/GETTY
gera breytingar á vinnudögum
um helgar til að mæta þörfum
gyðinga. Það var gert árið 1908 á
Nýja-Englandi, svæði sem saman-
stendur af sex ríkjum á norð-
austurhorni Bandaríkjanna. Verk-
smiðja á svæðinu leyfði starfsfólki
sínu að hafa tveggja daga helgi
til þess að þeir gyðingar sem þar
störfuðu gæti haldið sinn hvíldar-
dag heilagan. Þessi fimm daga
vinnuvika lagðist vel í starfsfólkið
og varð til þess að önnur fyrirtæki
í nágrenninu fylgdu í kjölfarið.
Fimm daga vinnuvika tók þó
ekki formlega gildi í Bandaríkj-
unum fyrr en árið 1932 en það var
gert til að reyna að stemma stigu
við atvinnuleysi í kjölfar krepp-
unnar miklu. Hinum megin við
Atlantshafið var svipað uppi á
teningnum.
Styttu vinnuvikuna til að
minnka atvinnuleysi
Í Boots-samsteypunni á Englandi
árið 1933 var mikið um uppsagnir
starfsfólks. Forstjóri samsteyp-
unnar, John Boot, vildi binda enda
á það. Á sama ári var opnuð verk-
smiðja í Nottingham sem ætlað
var að auka framleiðni. Það rættist
á þann hátt að framleiðslan varð of
mikil sem setti störf fólks í hættu.
Þá var fundin sú lausn á þeim
vanda að loka verksmiðjunni á
laugardögum og sunnudögum, en
á þessum tíma vann fólk yfirleitt
hálfan daginn á laugardögum.
Sami fjöldi starfsfólks vann þó
áfram í verksmiðjunni á sömu
launum og áður. Færri vinnu-
stundir gerðu það að verkum
að minni líkur voru á umfram-
framleiðslu auk þess sem starfs-
fólkið mætti endurnært til vinnu
á mánudögum eftir að hafa varið
tíma í afþreyingu og samveru með
fjölskyldunni.
Frekari rannsóknir sýndu að
tveggja daga helgar urðu til þess að
fólk var sjaldnar frá vinnu og þær
höfðu jákvæð áhrif á vinnuafköst.
Árið 1934 varð því formleg stefna
fyrirtækisins að hafa tveggja daga
helgar.
Eykur ánægju í
starfi og afköst
Undanfarið hefur stytting
vinnuvikunnar verið mikið í
umræðunni og er ákvæði um það
nú þegar komið inn í suma kjara-
samninga. Í síðustu kjarasamn-
ingum félagsmanna VR var samið
um að stytta vinnuvikuna um 9
mínútur á dag fyrir starfsmann í
fullu starfi. Það gerir 45 mínútur á
viku. BSRB hefur barist fyrir því að
lögfesta styttingu vinnuvikunnar
niður í 35 stundir í dagvinnu og að
vinnuvika vaktavinnufólks verið
80% af vinnutíma dagvinnufólks
án þess að laun fólks skerðist.
Rannsóknir hafa sýnt að styttri
vinnuvika leiðir til aukinnar
ánægju í starfi og afköst verða
meiri en það er þó óljóst hversu
mikið má stytta hana án þess að
hafa áhrif á afköst. Tilraunir hafa
verið gerðar í einstökum fyrir-
tækjum í nokkrum löndum með
að hafa fjögurra daga vinnuviku.
Þær tilraunir hafa skilað misjöfn-
um árangri. Fyrirtæki í Svíþjóð
sem gerði slíka tilraun þurfti að fá
inn auka starfsfólk til að bæta upp
fyrir styttri vinnutíma hjá starfs-
fólkinu sem var fyrir. Þar var því
aftur tekin upp fimm daga vinnu-
vika. Svipaða sögu er að segja um
bandarískt fyrirtæki sem gerði
álíka tilraun. Fyrirtæki á Nýja-Sjá-
landi sem fækkaði vinnudögum
niður í fjóra daga í viku fann aftur
á móti ekki fyrir neinum breyt-
ingum á vinnuframlagi auk þess
sem stór hluti starfsfólks kvaðst
finna meira jafnvægi á milli vinnu
og einkalífs eftir breytingarnar.
Hvort fjögurra daga vinnuvika
sé eitthvað sem koma skal er enn
óljóst og ekki í umræðunni hér á
landi enn sem komið er, en fjórir
og hálfur dagur er kannski ekki
svo fjarlægur draumur.
Heimild: bbc.co.uk
Sjö daga viku má rekja 4.000 ár aftur í tímann til Babylóníumanna.
Fimm daga vinnu-
vika tók þó ekki
formlega gildi í Banda-
ríkjunum fyrr en árið
1932.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R