Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 64
ÉG VONAÐI LÍKA AÐ MEÐ
ÞVÍ AÐ AFLA MÉR HÁ-
SKÓLAMENNTUNAR
SKAPAÐI ÉG GÓÐA FYRIR-
MYND FYRIR DÆTUR
MÍNAR.
Rakel
Æt li v ið séu m ekki allar á því að maður lærir svo lengi sem maður lifir og er ekki tilbúinn
til að staðna í einhverju einu,“ segir
Rakel þegar hún veltir fyrir sér af
hverju hún og dætur hennar séu
allar í meistaranámi.
Telma: „Það er samt alger tilviljun
að við erum í því á sama tíma. Ég
ætlaði ekki í mitt MBA-nám fyrr
en næsta haust þegar strákurinn
minn væri kominn með aðeins
lengri skóladag en nú. En svo fékk ég
námsstyrk hjá fyrirtæki sem ég var
að vinna hjá og þess vegna ákvað ég
að slá til og fara strax. En mamma er
búin að vera í námi alla tíð, finnst
mér. Alltaf að bæta við sig og getur
ekki hætt.“
Rakel: „Ég byrjaði reyndar ekki í
háskóla fyrr en ég var 29 ára en það
var eitthvað sem mig hafði alltaf
langað til að gera.“
Tinna: „Það kom aldrei annað
til greina en að fara í háskólanám.
Bæði hafði mamma skapað for-
dæmið og svo höfum við allar hæfi-
leika til að læra. En það eru líka viss
forréttindi að hafa aðstöðu til þess.“
Telma: „Mér fannst ég þurfa að
f lýta mér svo mikið að ég tók BA-
námið á tveimur árum í staðinn
fyrir þremur. Var í heimspeki,
hagfræði og stjórnmálafræði á Bif-
röst og er bara búin að vinna í við-
skiptum síðan ég útskrifaðist. Þess
vegna fannst mér ég þurfa að fara í
MBA-nám núna til að bæta við mig
þekkingu, þó ég væri með hagnýtu
hlutina á hreinu. Setja svona stimpil
á það. Við erum allar í Háskóla
Íslands. Það er líka tilviljun því ég
var meira að stefna á HR en endaði
hjá HÍ.“
Hvað ert þú að læra, Tinna?
„Ég tók mannfræði til BA-prófs
en er í meistaranámi í nýsköpun og
viðskiptaþróun sem er frekar nýleg
leið í HÍ. Það er tveggja ára nám en
ég skipti því upp í þrjú ár því ég er að
vinna með. Er að ljúka öðru árinu í
vor og á þá eitt eftir og ætla að nota
það í meistararitgerðina og líka
skiptinám við skóla erlendis.“
Þarftu að fá hundrað hugmyndir
á dag?
„Nei, það er einn kúrs sem sér-
staklega gerir ráð fyrir að vinna
úr eigin hugmynd. Annars snýst
námið um að hlusta á fyrirlesara
sem hafa reynslu af nýsköpun og
fræðast um hvernig þeim hefur
gengið. Mig langar að setja fókus á
samfélagslega nýsköpun. Hún geng-
ur út á hugmyndir sem snúa að því
að uppfylla þarfir sem leiða til betra
samfélags. Ekki bara til fyrirtækis
í formi hlutafjár og bónusa. Þetta
fag er kennt á hinum Norðurlönd-
unum og ég ætla að reyna að koma
mér þangað í skiptinám þegar að
því kemur.
Ég startaði sjálf verkefni sem
getur fallið í þann flokk. Það heitir
Reykjavík Feminist Walking Tour
og þar er ég að kynna íslenska
kvennasögu, aðallega fyrir erlend-
um gestum og ferðamönnum,
og halda þeirri sögu á lofti. Við
göngum hring um miðborgina
og stoppum á stöðum sem koma
íslenskri kvennasögu við. Þessi saga
er auðvitað í stöðugri þróun enda er
ég ekki bara að rifja upp fortíðina í
mínum göngutúrum heldur tala ég
líka um það sem er að gerast í dag.“
Viðbótardiplóma í vefmiðlun
En Rakel, hver er þín saga?
„Ég hef verið einhleyp frá upp-
hafi. Ég var enn í menntaskóla þegar
Telma fæddist en var komin með
stúdentspróf þegar dæturnar voru
orðnar tvær. Þegar ég ákvað að fara
í Háskólann var það meðal annars
vegna möguleikans á hærri tekjum
en ég vonaði líka að með því að afla
mér háskólamenntunar skapaði ég
góða fyrirmynd fyrir dætur mínar.
Ég fór í íslensku og fjölmiðlafræði og
tók það saman til BA-prófs og bætti
síðan við mig diplómu í hagnýtri
fjölmiðlun og kennsluréttindanámi
í íslensku.
Lengstan starfsaldur á ég sem
íslenskukennari við Verkmennta-
skólann á Akureyri. Dæturnar
f luttu aftur suður um tvítugt og ég
elti þær hingað þegar það var komið
ömmubarn. Ég byrjaði aftur í námi
enda finnst mér gaman að læra.
Núna er ég í upplýsingafræði og
þekkingarmiðlun og ákvað strax að
taka tveggja ára nám á fjórum árum
og vera í vinnu á móti. Ég er verktaki
hjá Mími og kenni fólki alls staðar
að úr heiminum íslensku sem annað
mál – á ýmsum stigum.
Ég hef alltaf haft rosalegan áhuga
á öllu sem heitir vefmiðlun svo ég
tók kúrsa í þeirri grein meðfram.
Þegar kom að meistararitgerðinni
setti ég mér svo metnaðarfull mark-
mið að það hefur verið haft á orði
að þau hæfi frekar doktorsritgerð.
Niðurstaðan varð sú að skipta
verkefninu þannig að námið fram-
lengdist um eitt ár og ég útskrifast
með viðbótardiplómu í vefmiðlun
ásamt MIS-gráðunni í upplýsinga-
fræði. Vonandi næ ég að ljúka báðu
núna í vor.“
Allar þrjár i eigin rekstri
Þið eruð í ólíkum greinum en getið
þið eitthvað hjálpast að í náminu?
Telma: „MBA-námið er í raun
alveg sér, þó við getum auðvitað
spjallað saman um ýmis fög. Þær
hafa verið í breytingastjórnun og
ég er það líka, þó við séum ekki að
vinna verkefni saman.“
Tinna: „Við mamma vorum
saman í þremur kúrsum.“
Rakel: „Það var svolítið skemmti-
legt. Þar höfum við meira að segja
verið saman í verkefnahópum.“
Tinna: „Það skrítnasta var nú
þegar kona sem var með okkur í
hóp sagði við mig: „Getur þú kallað
hana eitthvað annað en mömmu?“
Henni fannst það einhverra hluta
vegna óþægilegt.
Rakel: „En við erum búnar að
vera í tveimur kúrsum saman síðan
og þar fannst fólki það bara frekar
krúttlegt.“
Þið sjáið væntanlega fyrir ykkur
að meistaranámið opni nýja mögu-
leika?
Rakel: „Já, það er ekki spurning.
Ég fór í námið vegna þess að eftir
að ég flutti suður hef ég ekki fengið
fasta vinnu. Hér á höfuðborgar-
svæðinu er eiginlega offramboð á
íslenskukennurum þannig að starfs-
reynsla skiptir engu máli ef maður
er ekki með MA-próf. Svo opnar
námið fleiri möguleika eins og þá
að stofna eigið fyrirtæki. Ég hef verið
að þróa og gefa út efni fyrir nám og
kennslu í íslensku sem öðru máli.“
Telma: „Já, það er kannski líka
pínu sérstakt að við erum allar í
eigin rekstri. Tinna með Reykjavík
Feminist Walking Tour, mamma
með Íslenskunámuna og ég og mað-
urinn minn erum í veitingarekstri,
eigum Public House á Laugavegi 24
og hlut í BrewDog á horni Klappar-
stígs og Hverfisgötu.“
Þrjár mæðgur í meistaranámi
Mæðgurnar Rakel Sigurgeirsdóttir og dætur hennar Telma Eir Aðalsteinsdóttir og Tinna Eik Rakelardóttir
stunda allar meistaranám í vetur og allar í Háskóla Íslands. Auk þess er hver og ein með sjálfstæðan rekstur.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Telma, Rakel og Tinna hafa allar stúderað breytingastjórnun í Háskóla Íslands. Þær geta borið saman reynslu sína af sumum kennurum skólans og áherslum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð