Fréttablaðið - 25.04.2020, Page 24
áherslu á að eldavélin væri á eyj-
unni svo ég gæti hrært í pottum
og stússast á meðan ég væri að tala
við mitt fólk. Mér finnst líka óskap-
lega notalegt að sitja á móti Inga
og ræða málin þegar hann stendur
yfir pottunum. Við stofnuðum líka
Röggu&Ingabar í eldhúsinu en
þangað geta vinir kíkt í vínglas og
spjall eftir þörfum.
Töfrarnir við borðstofuborðið
Borðstofuborðið tengir saman eld-
húsið og stofuna og þar gerast töfr-
arnir. Það er óskrifuð regla að það
sitja aldrei allir við matarborðið á
matmálstíma. Tvíburarnir eru mjög
fjörugir og ósjaldan er einn lagstur
í sófann, annar kominn undir
borð eða jafnvel einhverjir búnir
að skipta um sæti. Þetta er borð-
hald að mínu skapi – það er svo til-
breytingarlaust ef allt er samkvæmt
bókinni. Í stofunni er stór sófi, mikil
birta og gott rými til að kúra og tala
saman. Mér finnst ótrúlega dýr-
mætt að börnin vilja enn þá skríða
í mömmufang og það eru þessi litlu
móment sem gera allt.
Ragnhildur segir þau hjón hafa
reynt að sýna hagsýni í fram-
kvæmdunum. „Það krefst þolin-
mæði og þrautseigju. Við erum
orðin rosalega góð í að láta okkur
dreyma um hina og þessa hluti og
það býr til skemmtileg sameiginleg
markmið.
Það sem okkur finnst skemmtileg
viðbót við þetta allt er lærdómur-
inn sem börnin hafa dregið af þessu
ferli. Hlutirnir gerast ekki á einni
nóttu, það kostar að útbúa heimili
og það er ekkert sjálfgefið að hafa
rennandi vatn,“ segir hún að lokum.
Stofan og eld-
húsið liggja
í kringum
hlaðinn vegg
og arin. Borð-
stofuborðið
tengir síðan
saman eldhús-
ið og stofuna.
Hér finnst fjöl-
skyldunni gott
að vera.
Ragnhildur segir eiginmanninn ekki hafa verið vissan um gyllta kranann en
hann sé farinn að læra að hugmyndir hennar komi yfirleitt vel út .
VIÐ ERUM ORÐIN ROSA-
LEGA GÓÐ Í AÐ LÁTA
OKKUR DREYMA UM HINA
OG ÞESSA HLUTI OG ÞAÐ
BÝR TIL SAMEIGINLEG
MARKMIÐ.
Framhald af síðu 23
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð