Fréttablaðið - 01.05.2020, Blaðsíða 6
Við viljum bara fá
staðfestingu á að
það sé óhætt fyrir börnin
okkar að vera
þarna.
Karl Óskar
Þráinsson,
formaður
Foreldrafélags
Fossvogsskóla
Lögreglan á Suðurlandi
gerði ásamt tæknideild
lögreglunnar í síðasta
mánuði ítarlega leit á heimili
Seans. Að sögn lögreglunnar
var íbúðin grandskoðuð en
engin ummerki voru um að
neitt saknæmt hefði átt sér
stað þar.
450
milljónir króna fá íþrótta-
hreyfingarnar í styrk vegna
áhrifa faraldursins.
REYKJAVÍK Foreldrafélag Fossvogs-
skóla hefur leitað til lögmanns þar
sem ekki berast svör frá Reykjavík-
urborg um stöðu húsnæðis skólans.
Borgin segir að svar muni berast á
næstu dögum.
Húsnæði Fossvogsskóla var lokað
að hluta í mars í fyrra vegna myglu.
Framkvæmdir við skólann kostuðu
hátt í hálfan milljarð króna. Upp
um mygluna komst í úttekt sem
ráðist var í eftir að foreldrar kvört-
uðu vegna veikinda barna. Ekki
eru allir foreldrar sannfærðir um
að búið sé að uppræta mygluna og
sendi foreldrafélagið erindi á skóla-
og frístundasvið þann 21. febrúar
síðastliðinn þar sem óskað var eftir
svörum um stöðu framkvæmda
í skólanum, en þá var þeim ekki
lokið. Ekkert svar hefur borist þrátt
fyrir ítrekanir.
Um miðjan mánuðinn sendi lög-
maður foreldrafélagsins áskorun á
borgarstjóra um að svara erindinu.
Þar sem engin viðbrögð hafa borist
við því hyggst foreldrafélagið leggja
fram kæru til úrskurðarnefndar um
upplýsingamál til að freista þess að
fá svör.
„Öll svið borgarinnar hundsa
okkur og meirihluti kjörinna full-
trúa þegir þunnu hljóði. Þá neyð-
umst við til að leita til ytri eftir-
litsaðila til að knýja fram svör. Þessi
kæra er bara hluti af þeirri vegferð
að fá samtal við borgina um hvort
húsnæðið sem við sendum börnin
okkar í sé öruggt eða ekki,“ segir
Karl Óskar Þráinsson, formaður
foreldrafélags Fossvogsskóla.
„Við erum ekki að biðja um að
öðrum hálfum milljarði sé eytt
eða sprengja húsið til grunna. Við
viljum bara fá staðfestingu á að
börnin okkar séu óhult í höndum
borgarinnar.“
Í svari Reykjavíkurborgar við
fyrirspurn Fréttablaðsins segir að
upplýsingarnar sem beðið var um
séu byggingatæknilegs eðlis og því
hafi fyrirspurninni verið vísað til
umhverfis- og skipulagssviðs.
„Svar þaðan hefur borist og for-
eldrafélagið mun því fá svar á allra
næstu dögum. Skóla- og frístunda-
svið biðst velvirðingar á töfum sem
hafa orðið á afgreiðslu svars en
það hefur m.a. tafist vegna ýmissa
aðstæðna í samfélaginu.“ – ab
Foreldrar í Fossvogsskóla leita til lögmanns vegna svaraleysis
LÖGREGLUMÁL Fiðluleikarinn Sean
Bradley hvarf sumarið 2018. Hann
hafði spilað með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands í áratugi ásamt því
að kenna við Tónlistarskólann í
Hafnarfirði um árabil. Margrét Þor-
steinsdóttir, fiðluleikari hjá Sinfóní-
unni, kenndi og spilaði með Sean á
sínum tíma. „Hann var svakalega
hæfileikaríkur fiðluleikari,“ segir
hún í samtali við Fréttablaðið. Helgi
Bragason, fyrrverandi aðstoðar-
skólastjóri tónlistarskólans, tekur í
sama streng: „Hann var frábær lista-
maður og er vonandi.“
Hvarf Seans bar til með vægast
sagt dularfullum hætti. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
hafði hann mælt sér mót við vin-
konu sína í júní 2018. Þau ætluðu
að keyra saman til Reykjavíkur
og fara í kirkju. Hann mætti hins
vegar ekki og þrátt fyrir ítrekuð
símtöl náði hún ekki í hann. Ekkert
spurðist til hans um tíma og kom
sonur hans meðal annars til Íslands
til að heimsækja föður sinn. Hann
fann hins vegar föður sinn hvergi.
Sean sagði síðan við vini sína á sam-
félagsmiðlum að hann væri kominn
til Spánar.
Önnur vinkona Seans á Suður-
landi, sem vill ekki koma fram
undir nafni, segir að hans sé sakn-
að af þeim sem hann þekktu. „Við
höfum saknað hans í nokkur ár,“
segir hún.
„Það síðasta sem við heyrðum af
honum, þá var hann á Spáni. Hann
sagðist vera kominn í búdda-klaust-
ur að stunda íhugun, hann hefði
það gott og við ættum að láta hann
í friði,“ segir hún og bætir við að
þetta hafi komið þeim sem þekktu
hann í opna skjöldu.
„Það fannst okkur öllum mjög
skrýtið því hann var ekki fyrir að
f ljúga. Hann vildi helst ekki fara
upp í f lugvél,“ segir hún. Sean er
að sögn vina það f lughræddur að
það hafi haldið honum frá því að
heimsækja fjölskyldu sína á Bret-
landseyjum. Sean er með gigt og
hreyfiskertur sökum þess. Hann gat
einungis gengið stuttar vegalengdir
án stuðnings. „Svo hvarf hann bara
af Facebook og við höfum ekki
heyrt neitt,“ segir hún.
Íslenska konan sem fór með Sean
til Spánar bjó með honum á heimili
hans um tíma en þau áttu ekki í
rómantísku sambandi að því er
Fréttablaðið kemst næst. Lögreglan
ræddi við hana á heimili sínu á Sel-
fossi en að sögn lögreglunnar liggur
hún ekki undir grun. Lögreglan á
Suðurlandi gerði ásamt tæknideild
lögreglu ítarlega leit á heimili Seans
í síðasta mánuði. Að sögn lögreglu
var íbúðin grandskoðuð en engin
ummerki voru um að neitt saknæmt
hefði átt sér stað á heimili hans.
„Við erum með allar rannsóknar-
kenningar opnar í rauninni. Það eru
sex kenningar sem geta komið upp
þegar maður hverfur. Maður getur
hafa veikst og lent einhver staðar
inni á sjúkrahúsi, hann getur hafa
ákveðið að láta sig hverfa, hann
getur hafa verið drepinn, og svo
framvegis. Það er í raun allt opið,“
segir Oddur Árnason, yfirlögreglu-
þjónn á Suðurlandi og stjórnandi
rannsóknarinnar.
Rannsókn málsins stendur enn
yfir en Oddur segir málið vera
f lókið og erfitt til rannsóknar, sér-
staklega þegar tilkynning berst
lögreglunni meira en einu og hálfu
ári seinna. „Það gerir allt erfiðara,“
segir Oddur. mhj@frettabladid.is
Sean verið týndur í nær tvö ár
„Hann var frábær listamaður og er vonandi,“ segir Helgi Bragason, fyrrverandi aðstoðarskólastjóri við
Tónlistarskólann í Hafnarfirði sem Sean kenndi við um árabil. Þeir sem þekktu hann sakna hans sárt.
Schwarzkopf
Apollonia
1
E I T R I BY R L A Ð
Á B E SSA ST Ö Ð U M
Guðbrandur Jónsson
SÖNN OG ÓHUGNANLEG ÍSLENSKT SAKAMÁL
łł
DAUÐASYNDIR
Ókeypis um tíma
§ §
Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar var Sean skráður til heimilis að Austurvegi 34 á Selfossi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMFÉLAG Íþrótta- og Ólympíu-
sambandi Íslands verður falið að
úthluta 450 milljóna króna stuðn-
ingi ríkisins til íþróttahreyfingar-
innar til þess að mæta áhrifum
COVID-19. Tilkynnt var um undir-
ritun samnings þessa efnis á vef
stjórnarráðsins í gær. Auk þess verð-
ur 50 milljónum úthlutað til æsku-
lýðsfélaga á grundvelli umsókna
þeirra. Stuðningurinn byggir á sam-
þykkt Alþingis um fjárfestingarátak
stjórnvalda til að vinna gegn sam-
drætti í hagkerfinu í kjölfar heims-
faraldursins.
Hluti úthlutunarinnar kemur
strax til framkvæmda á grund-
velli reiknireglu en einnig verður
úthlutað á grundvelli umsókna
vegna sérstakra viðburða, móta
og keppnishalds sem fellur niður
vegna COVID-19.
Auk þessa stuðnings við Íþrótta-
og æskulýðshreyfinguna verður
lögð fyrir Alþingi tillaga um 600
milljóna aukaf jár veiting u til
sveitarfélaga vegna tímabundins
stuðnings við fjölskyldur í erfiðri
stöðu, svo tryggja megi jöfn tæki-
færi barna og ungmenna til íþrótta-
og tómstundastarfs í sumar.
„Þá verður sérstaklega hugað að
brottfalli úr íþróttum og verkefn-
um sem hvetja viðkvæma hópa til
íþróttaiðkunar,“ segir Lilja Alfreðs-
dóttir mennta- og menningar-
málaráðherra í tilkynningu á vef
stjórnarráðsins. – aá
ÍSÍ úthlutar
styrkjunum
Stúlkur leika sér á sparkvellinum
við Laugarnesskóla í Reykjavík.
Ljósmynd af Sean þegar hann spil-
aði með Sinfóníuhljómsveitinni.
1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð