Fréttablaðið - 01.05.2020, Síða 24
Tæpt ár er síðan Steinn flutti búferlum með konu sinni Guðrúnu Árnýju
Guðmundsdóttur og tveimur
yngstu dætrum sínum frá Íslandi
til Odense í Danmörku. „Það var
kominn tími til þess að stækka
þægindarammann og hægja á.
Við vildum tengja fjöldskylduna
sterkari böndum og eyða meiri
tíma saman. Stressið var orðið
ansi mikið og erum við sammála
um að ætlunarverkið hafi tekist
og gott betur. Stuttu síðar fluttu
elsta dóttir okkar og tengdasonur
út og eignuðust sína fyrstu dóttur
í október. Fjölskyldan stækkar og
dafnar hér í Danaveldi.
Guðrún, konan mín, tók vinn
una með sér og bætti við sig söng
tækninámi hjá Complete Vocal
Technique í Kaupmanna höfn.
Sjálfur fékk ég leyfi frá Sýn hf. þar
sem ég starfa sem yfirkokkur á
veitingastað fyrirtækisins, Besta
Bistró. Nú er ég kokkur á litl um
veitingastað sem heitir Mølle
Kroen, en staðurinn er einn virt
asti veisluþjónustustaðurinn á
Fjóni. Það má segja að staðurinn
sé nánast í bakgarðinum en það
tekur mig innan við mínútu að
vippa mér í kokkagallann og labba
í vinnuna,“ segir Steinn.
Steinn ætlaði sér ekki að verða
kokk ur fyrr en upp úr tvítugu. „Ég
ætlaði aldrei að verða kokkur því
ég ætlaði að verða atvinnumaður í
fótbolta. Eftir grunnskólann fann
ég mig ekki í menntaskóla og vann
á dekkjaverkstæði í þrjú ár áður en
köllunin kom. Eftir það var ekki
aft ur snúið og ég er ekki frá því að
ég verði meiri „matarnörd“ með
árunum.“
Steinn byrjaði að læra kokkinn
í Kaupmannahöfn 1995 og kláraði
í Hótel og veitingaskólanum.
„Eftir námið vann ég með frá
bær um kokkum á mörgum af
betri veitingastöðum lands ins,
en var lengst af á Sjávar kjall ar
anum sáluga. 2006 sigraði ég
Matreiðslumann ársins og ári
síðar hafnaði ég í 3. sæti í Mat
reiðslu manni Norðurlanda. Þá var
ég í íslenska Kokkalandsliðinu í
nokk ur ár og fékk svo að standa
á hliðarlínunni og miðla minni
reynslu. Það eru forréttindi að vera
orðinn þessi „gamli“ og fylgjast
með öllum þessu flottu kokkum,
læra meira og halda áfram að þróa
sig sem matreiðslumaður,“ segir
Steinn.
Nú eru Danir farnir að dusta
rykið af grillgræjunum. „Það vill
svo skemmtilega til að grillið
hef ur lítið farið inn hjá okkur því
vet urinn hefur verið með mildara
móti. Við fengum smá rigningu
í byrjun árs en þetta hvíta sem
angr að hefur marga heima hefur
ekki látið sjá sig.
Það má segja að grillið og garð
urinn hafi bjargað fjöl skyldunni
og kannski geð heils unni á þessu
skrítnu tímum, en við höfum öll
verið heima síðan í byrjun mars.
Þá notum við tímann saman við
grillið í tilraunastarfsemi. Ég
er svo sem enginn ofurgrillari
en finnst gaman að grilla. Nú er
mark miðið að skipta út gasgrillinu
fyr ir alvöru gott kolagrill og
gefa sér meiri tíma í að mastera
grillmatseldina.“
Þrjár ferskar, einfaldar og
sumarlegar grillsósur
Kasjúhnetusósa
2 dl kasjúhnetur
1 hvítlauksgeiri
Rifinn börkur og safi úr ½ sítrónu
½ tsk. gott sjávarsalt
1½ -2 dl möndlumjólk (hægt að
nota vatn líka)
1 msk. Dijon-sinnep m. hunangi
2 fínsaxaðir vorlaukar
Malaður, svartur pipar (best að
mala svartan pipar úr kvörn)
Kasjúhnetur lagðar í vatn yfir
nótt eða minnst 4 klst. Þá er
vatn inu hellt af og þær settar í
mat vinnsluvél með hvítlauk, sítr
ónu, sjávarsalti, möndlumjólk og
hunangssinnepi. Þegar sósan er
orðin silkimjúk er vorlauknum
bætt saman við hana. Smakkað til
með pipar og salti.
Þessi er algjör snilld með grill
uðu grænmeti eins og sætum kart
öflum, blómkáli, á salatið eða með
grænmetisbuffinu. Geymist í allt
að eina viku í lokuðu íláti í kæli.
Kóríander-jógúrtsósa
200 g þykk, grísk jógúrt
1 tsk. malað cumin
1 tsk. reykt paprika
1 hvítlauksgeiri
1 tsk. þurrkað, malað kóríander
½ búnt ferskt kóríander
1 msk. hunang
Rifinn börkur og safi úr ½ límónu
Kóríanderolía
½ búnt kóríander
1 búnt steinselja
2 dl góð, bragðlítil matarolía
Jógúrtin er hrærð saman við krydd,
hunang, fínsaxaðan hvít lauk og
grófsaxað kóríander og sós an
smökk uð til með límónu, salti og
kóríanderolíu.
Kóríanderolía
Olía og kryddjurtir sett saman
í blandara í um 12 mín. eða uns
hún hefur náð heiðgrænum lit.
Þá er olían sigtuð í gegnum hreint
viskastykki og er klár til að bragð
bæta jógúrtsósuna. Rest ina af
olíunni má nota ofan á sósuna eða
á brakandi ferskt salat.
Sósan er fersk og bragðmikil og
smellpassar á kryddaðan grill aðan
lax, skelfiskspjót eða hvaða grill
aða fisk sem er. Eins er sósan góð
með bragðmiklum mexíkóskum
réttum.
Sumarleg Chimichurri
2 msk. söxuð, fersk steinselja
2 msk. saxað, ferskt oreganó
2 msk. saxað, ferskt kóríander
2 msk. söxuð skessujurt (má
sleppa)
1 fínsaxaður hvítlauksgeiri
1 vorlaukur í sneiðum
½ fínskorið rautt chili
½ tsk. þurrkuð, sæt paprika
½ tsk. mulið, þurrkað cumin
½ tsk. mulið, þurrkað kóríander
50 ml góð ólífuolía
Rifinn börkur og safi úr ½ sítrónu
1 msk. gott eplaedik
Sjávarsalt og malaður, svartur
pipar (ferskur úr kvörn er bestur)
Fínsaxið ferskar kryddjurtir og
blandið saman í skál, ásamt fín söx
uðum hvítlauk, vorlauk í sneið um
og fræhreinsuðu chili. Setjið þurr
krydd saman við og loks sítr ónu
safa, olíu og edik. Smakkið til með
salti og pipar.
Þessi steinliggur með grill steik
inni eða á grillað flatbrauð.
Skessujurt fæst stundum í versl
unum en með vorinu vex hún víða
villt og hægt að fara út og tína hana.
Þrjár gómsætar grillsósur
Kokkurinn Steinn Óskar Sigurðsson sér fram á frábært grillsumar í Danmörku og deilir með les-
endum þremur uppskriftum að einföldum og girnilegum grillsósum fyrir grillmatinn í sumar.
Frá vinstri: Ingimundur Elí Jóhannsson, Salka Dögg Ingimundardóttir, Sandra Dögg Steindóttir. Á bekk: Dagný Sól
Steinsdóttir, Steinn Óskar, Guðrún Árný Guðmundsdóttir og María Ósk Steinsdóttir. Simbi liggur fremst.
Þrjár grillsósur fyrir sumarið.
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
GARÐAR OG HELLULAGNIR
Sérblað um garða og hellulagnir kemur út fimmtudaginn 7. maí
Tryggðu þér auglýsingapláss í mest lesna blaði landsins
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 550 5654 /jonivar@frettabladid.is
Garðar oG hellulaGnir
Sérblað um garða og hellulagnir kemur út
fimmtudaginn 27. apríl
Áhugasamir geta haft samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími 512 5429
joniv @365.i
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryg ðu þér gott auglýsingapláss
í langmest le na dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R